Barnaverndarstofa fer yfir mál kvennana sem dvöldu á Laugalandi

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að farið verði yfir mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, áður í Varp­holti, hjá stofn­un­inni í ljósi umfjöll­unar Stund­ar­innar um meint harð­ræði og ofbeldi gegn stúlkum sem þar voru vistaðar á árunum 1997 til 2007. Heiða Björg segir einnig að hún sé boðin og búin að funda með þeim konum sem lýst hafa ofbeld­inu sem þær hafi orðið fyrir á heim­il­inu, standi vilji þeirra til þess.

Barnaverndarstofa fer yfir mál kvennana sem dvöldu á Laugalandi
Er til­búin að funda með kon­unum Heiða Björg segir að hún sé boðin og búin að hitta kon­urnar, standi vilji þeirra til þess. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eins og greint er frá í nýju tölu­blaði Stund­ar­innar lýsir fjöldi kvenna því að þær hafi sætt and­legu og lík­am­legu ofbeldi af hálfu Ingj­aldar Arn­þórs­sonar, for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins í Varp­holti og síðar að Lauga­landi, meðan þær dvöldu þar. Barna­vernd­ar­stofa fékk þegar árið 2000 ábend­ingar um að ekki væri allt sem skyldi í rekstri með­ferð­ar­heim­il­is­ins og árið 2001 barst umboðs­manni barna fjöldi ábend­inga um ofbeldi og ofríki Ingjalds. Barna­vernd­ar­stofa sá ekki til­efni til að haf­ast að í mál­inu og Ingj­aldur stýrði með­ferð­ar­heim­il­inu að Lauga­landi áfram til árs­ins 2007.

Í grein í DV árið 2007 lýsti Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, því yfir að Ingj­aldur nyti fulls trausts. Tilefnið voru skrif blaðs­ins um bæði einka­hagi Ingjalds en einnig ásak­anir um harð­ræði á með­ferð­ar­heim­il­inu. Í grein­inni segir Bragi Barna­vernd­ar­stofu for­dæma umfjöll­un­ina, hún sé raka­laus og byggð á ósann­indum. Barna­vernd­ar­stofa hafi kannað sann­leiks­gildi stað­hæf­inga um lík­am­legt ofbeldi að Lauga­landi og „vísar þeim á bug sem raka­lausum“

„Ég vil byrja á því að hrósa þessum konum sem þarna stíga fram“

Heiða Björg Pálma­dóttir, núver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að Barna­vernd­ar­stofa muni fara yfir þau gögn sem séu til hjá stofn­un­inni um rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins í tíð Ingj­aldar sem for­stöðu­manns. „Ég vil byrja á því að hrósa þessum konum sem þarna stíga fram, af því ég veit að það er erfitt að stíga fram og segja frá svona reynslu. Umræða um svona mál er gríð­ar­lega mik­il­væg þannig að það er mik­il­vægt skref sem þær hafa stigið.“

29 prósent lýstu ofbeldi af hálfu starfsmanna

Árið 2012 var gefin út rann­sókn­ar­skýrsla sem unnin var fyrir Barna­vernd­ar­stofu á afdrifum barna sem höfðu dvalið á með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu á árunum 2000 til 2007. Í henni kemur meðal ann­ars fram, í nið­ur­stöðukafla, að yfir­leitt hafi lítið ofbeldi verið inni á með­ferð­ar­heim­ilum og sumt ofbeldi sem ung­menni sögð­ust hafa orðið fyrir afhendi starfs­manns „var talið hluti af því að stoppa ósæski­lega hegðun barns.“ Í þeim til­fellum sem greint var frá ofbeldi var það bundið við ákveðin heim­ili.

Í skýrsl­unni kemur fram að 14 pró­sent allra barna sem dvöldu á með­ferð­ar­heimlum kváð­ust hafa orðið fyrir ofbeldi, and­legu eða lík­am­legu, af hálfu starfs­manns eða starfs­manna. Hlut­fallið er enn hærra, 29 pró­sent, meðal barna sem dvöldu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu, líkt og á Lauga­landi. Mjög mis­mun­andi var þó eftir því á hvaða með­ferð­ar­heim­ili börnin dvöldu hvort þau greindu frá ofbeldi af hálfu starfs­manns en í skýrsl­unni eru þær breytur ekki sund­ur­lið­aðar að fullu. Þó er nefnt að hlut­fallið hafi verið á bil­inu 13 til 50 pró­sent á þeim heim­ilum sem um ræðir og var Lauga­land eitt þeirra. Þá kemur einnig fram að 29 pró­sent þeirra barna sem kváð­ust hafa orðið fyrir ofbeldi sögðu engum frá því á meðan að þau voru á með­ferð­ar­heim­il­inu.

Heiða Björg segir að sú skýrsla hafi síðan verið notuð til að bæta með­ferð­ar­starf Barna­vernd­ar­stofu. „Ákveðið hlut­fall lýsti ein­hvers konar van­virð­andi með­ferð, illri með­ferð og ofbeldi. Það voru settar fram til­lögur í þess­ari skýrslu um hvernig ætti að gera betur og hún hefur verið notuð til að bæta starf­semi með­ferð­ar­heim­ila og gera betur. Þetta voru allt rekstr­ar­að­ilar sem voru hættir þegar skýrslan kom út þannig að það var svo sem ekki til­efni til beinna við­bragða gegn rekstr­ar­að­ilum. En vegna þess hversu hátt hlut­fall fólks lýsti ein­hvers konar óæski­legri hegðun þá fengu allir þeir sem gafst kostur að taka þátt í rann­sókn­inni bréf þar sem þeim var boðið að koma í við­tal hjá sér­fræð­ingi sem Barna­vernd­ar­stofa réði til verks­ins, til að lýsa sinni upp­lifun. Þessi við­töl fóru fram og hafa verið notuð til að bæta með­ferð­ar­starf.“

Ekki gerð frekari rannsókn á starfsemi meðferðarheimilanna

Gaf þessi skýrsla ekki til­efni til þess að Barna­vernd­ar­stofu hæfi rann­sókn á starf­semi neinna þess­ara með­ferð­ar­heim­ila?

„Við þurfum að horfa á að þessi skýrsla var fyrst og fremst notuð til að bæta með­ferð­ar­starf­semi til fram­tíðar, til­gang­ur­inn var að læra af reynsl­unni og gera betur. Svo held ég að af því að allir þeir rekstr­ar­að­ilar sem skýrslan laut að höfðu hætt rekstri hafi þetta ekki gefið til­efni til neinnar beinnar eft­ir­fylgni. Ég geri ráð fyrir að við hefðu ráð­ist í rann­sóknir á starf­sem­inni ef ein­hverjir við­kom­andi rekstr­ar­að­ilar hefðu ennþá verið starf­andi.“

Var það þá ekki svo að slíkar upp­lýs­ingar kæmu fram í frá­sögnum þess­ara barna að ástæða væri talin til að kanna sér­stak­lega hvort þau hefðu orðið fyrir ofbeldi eða harð­ræði á meðan á dvöl­inni stóð?

„Ég get eig­in­lega ekki svarað þess­ari spurn­ingu vegna þess að ég stjórn­aði ekki þess­ari stofnun þá. Að minnsta kosti töldum við ástæðu til að fá þessar frá­sagnir fram. Við höfum verið að bregð­ast miklu harðar við á seinni árum þegar upp koma mál sem kalla á skoðun. Þegar við horfum á síð­ast­liðin tíu ár hafa öðru hvoru komið upp mál sem hafa ekki þótt í lagi. Þá hefur verið tekið mjög fast á þeim, þau afgreidd og stundum hefur það leitt til lok­unar með­ferð­ar­heim­ila.“

Nú þegar þessar frá­sagnir kvenn­anna sem dvöldu á Lauga­landi eru komnar fram í dags­ljósið, ásamt ýmsum öðrum gögnum. Hvaða skref mun, eða á, Barna­vernd­ar­stofa að stíga í því sam­hengi?

„Ég er nú tals­mann­eskja þess að fólk rann­saki ekki sjálft sig. Það kemur fram hjá ykkur að félags­mála­ráð­herra ætli sér að skoða hvað eigi að gera í mál­inu. Ráðu­neytið er sam­kvæmt lögum okkar eft­ir­lits­að­ili. Við munum fagna ein­hvers konar skoðun á mál­unum, gögn­unum, ég held að það sé alltaf af hinu góða.“

Finnst þér ástæða til þess að bjóða þessum konum til fundar við þig, til að ræða við þær um þeirra upp­lifun?

„Að sjálf­sögðu værum við til­búin í það, ef að vilji væri fyrir hendi til þess. Við skor­umst ekki undan því, það er alveg ljóst.“

Vill ekki fullyrða um hvort mistök hafi verið gerð

Telur þú að for­veri þinn í starfi, eða Barna­vernd­ar­stofa, hafi gert mis­tök í þessu máli?

„Ég ætla ekk­ert að full­yrða um það en við munum nátt­úru­lega skoða hvort við­brögðin voru eðli­leg og læra af því sem hægt er að læra af.“

„Að sjálf­sögðu finnst mér eðli­legt að þegar að svona umfjöllun kemur fram þá fari maður yfir þau gögn sem eru til“

Þið munuð sem sagt fara yfir þessi mál og skoða þau gögn sem til eru hjá stofn­un­inni um rekstur þessa með­ferð­ar­heim­ilis, í Varp­landi og á Lauga­landi?

„Já, að sjálf­sögðu finnst mér eðli­legt að þegar að svona umfjöllun kemur fram þá fari maður yfir þau gögn sem eru til og reyni að draga ein­hvern lær­dóm af því. Það verður að líta til þess að þetta er tölu­vert gam­alt. Við vitum að það hefur mjög margt breyst í með­ferð­ar­málum síðan þetta var, sem betur fer, og líka í mann­rétt­indum barna. Við verðum að líta á það þannig að við séum sem betur fer að horfa á gamlan raun­veru­leika en ekki stöð­una eins og hún er í dag. Engu að síður er mjög mik­il­vægt þegar svona upp­lýs­ingar koma fram, sama hversu gamlar þær eru, að við drögum lær­dóm af þeim og lofum að gera betur í fram­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár