Samverkamenn Samherja hætta eftir áralöng störf

Fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, Haraldur Grét­ars­son, hefur ákveðið að hætta, en segir ákvörð­un­ina ekki tengj­ast rann­sóknum á Samherja á Íslandi, Noregi og í Namibíu. Baldvin Þor­steins­son tekur við starfi hans. Einn af stjórn­ar­mönnum Samherja, Sigrún Björk Jak­obs­dóttir, er einnig hætt í stjórn Samherja eftir að hafa verið í stjórn­inni frá árinu 2013.

Samverkamenn Samherja hætta eftir áralöng störf
Tekur við af Haraldi Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, tekur við starfi Haraldar Grét­ars­sonar. Bæði inn­lenri og erlendri starf­semi Samherja verður því stýrt beint af feðg­unum Þor­steini og Baldvini.

Einn af lyk­il­stjórn­endum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Haraldur Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, DFFU, segir að hann hafi ein­göngu ákveðið að hætta hjá félag­inu af per­sónu­legum ástæðum. Haraldur segir aðspurður að ákvörðun sín teng­ist ekki með nokkrum hætti þeim rann­sóknum á við­skipta­háttum Samherja sem nú standa yfir á Íslandi, Namibíu og í Noregi. Rann­sókn­irnar snúa að mútu­greiðslum í Namibíu, sem Samherji greiddi til að kom­ast yfir kvóta í Namibíu, sem greint var frá í nóv­em­ber árið 2019, en einnig að pen­inga­þvætti og skatta­laga­brotum.

Hafa gegnt trún­að­ar­störfum lengiÞau Haraldur Grét­ars­son og Sigrún Björk Jak­obs­dóttir hafa bæði gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Samherja lengi en stíga nú bæði til hliðar.

Samherji greindi sjálfur frá starfs­lokum Haraldar á heima­síðu sinni þann 4. jan­úar en ástæða starfs­lokanna var ekki mjög skýr í þeirri umfjöllun. 

Haraldur: Persónuleg ákvörðun

Haraldur hefur unnið hjá Samherja frá árinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár