RÚV rak fréttamann sem átti í deilum um launagreiðslur

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri segir að deilur séu uppi um túlkun á kjara­samn­ingi. Fleiri en einn frétta­maður eigi í þeirri kjara­deilu og hún hafi ekk­ert með upp­sagnir að gera. Félag frétta­manna gagn­rýnir nið­ur­skurð á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins.

RÚV rak fréttamann sem átti í deilum um launagreiðslur
Segir kjara­deilur ekki tengj­ast upp­sögnum Stefán Eiríks­son segir deilur um yfir­vinnu­greiðslur snúa að túlkun á kjara­samn­ingum. Þær snúi að fleiri en einum frétta­manni og hafi ekk­ert með upp­sagnir að gera. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einn þeirra frétta­manna sem sagt var upp hjá Rík­is­út­varp­inu, RÚV, í síð­ustu viku hefur átt í við­ræðum við yfir­stjórn RÚV vegna van­gold­inna yfir­vinnu­greiðslna. Umræddur frétta­maður, Pálmi Jónasson, hefur starfað hjá RÚV í yfir ald­ar­fjórð­ung. Félag frétta­manna setur spurn­inga­merki við að starfs­maður sem barist hefur fyrir rétt­mætum kjörum sínum fái upp­sagn­ar­bréf áður en það mál er til lykta leitt. Útvarps­stjóri segir hins vegar að deilur um yfir­vinnu­greiðslur snúi að fleiri en einum frétt­manni og þau mál hafi ekk­ert með upp­sagnir frétta­manna að gera.

Í yfir­lýs­ingu Félags frétta­manna, stétt­ar­fé­lags frétta­manna sem starfa á Rík­is­út­varp­inu er sá nið­ur­skurður sem frétta­stofa RÚV stendur frammi fyrir gagn­rýndur en í síð­ustu viku var greint frá því að þremur frétta­mönnum hefði verið sagt upp hjá RÚV. Um er að ræða fyrr­nefndan Pálma, Jóhann Hlíðar Harð­ar­son sem einnig hefur unnið árum saman á frétta­stof­unni og Úllu Árdal sem hóf störf í mars í fyrra.

Alls fækkar níu stöðu­gildum með nið­ur­skurð­ar­að­gerð­unum. 

Segir kjaradeilur í ágætis farvegi

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri segir í sam­tali við Stundina að erfitt sé að ræða mál­efni ein­stakra starfs­manna. „Sú deila sem þarna er vísað til er ákveðin spurn­ing um túlkun á nýgerðum kjara­samn­ingi sem snýr að fleiri en einum frétta­manni. Það hefur ekk­ert með þessa ákvörðun að gera hvernig leyst verður úr því ágrein­ings­efni. Það er bara í ágætis far­vegi og ferli og hefur verið rætt við for­svars­menn stétt­ar­fé­lags­ins hvernig eigi að gera það.“ Stefán segir enn fremur að ákvarð­anir á borð við þessa, það er að segja upp­sagnir starfs­fólks, séu ekki byggðar á grunni þess hvernig sé verið að leysa úr ágrein­ings­málum sem kunni að vera uppi.

„Það hefur ekk­ert með þessa ákvörðun að gera hvernig leyst verður úr því ágrein­ings­efni“

Í umsögn sinni um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar benti Stefán á að í heild­ina muni vanta yfir 600 millj­ónir króna í fjár­mögnun RÚV á næta ári. Stefán segir við Stundina að í öllum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum, frá því að ljóst varð í vor að tekju­fall yrði hjá stofn­un­inni og svo enn frekara tekju­fall í haust, hafi verið reynt að verja eins og kostur er fréttir í öllum miðlum og dag­skrár­gerð. „Við höfum látið hag­ræð­ing­ar­að­gerð­irnar fyrst og fremst ná til yfir­stjórnar, stjórn­enda og stoð­þjón­ustu en umfangið er það mikið að það er óhjá­kvæmi­legt annað en að það hafi áhrif á fréttir og dag­skrár­gerð, því miður. Við treystum okkur til þess að fara í gegnum þessa dýfu sem að blasti við okkur í vor út af falli á aug­lýs­inga­tekjum með því að ein­beita okkur að því að ná hag­ræð­ingu fram með því að fækka stjórn­endum og draga úr stoð­þjón­ustu. Þegar það var ljóst að þetta var umtals­vert meira og allt að 10 pró­sentum þá er óhjá­kvæmi­legt annað en að það hafi áhrif á okkar meg­in­hlut­verk, sem er auð­vitað að miðla fréttum og dag­skrá. Það segir sig sjálft að við getum ekki klárað þetta með öðrum hætti þegar umfangið er þetta mikið.“

Segja niðurskurð sæta furðu

„Á sama tíma og neyð­arástand ríkir í samfélag­inu og aukin krafa er gerð um stöðugar og traustar fréttir þá skýtur skökku við að skorið sé niður á frétta­stof­unni,“ segir í yfir­lýs­ingu félags­ins. Auk þeirra þriggja frétta­manna sem sagt hefur verið upp verður starfs­hlut­fall nokk­urra starfs­manna skert um ára­mót og samn­ingar við aðra ekki fram­lengdir. Þannig tap­ist í allt níu stöðu­gildi sem jafn­gildir tæp­lega fimmt­ungi frétta­manna á frétta­stof­unni. „Félag frétta­manna harmar upp­sagnir vand­aðra frétta­manna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Enn fremur er bent á að RÚV sé hluti af almanna­varn­ar­kerf­inu og sé eina stofn­unin þar innan sem ekki sé veitt meira fé til vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þvert á móti sé skorið niður í fram­lögum til stofn­un­ar­innar. Félag frétta­manna telur furðu sæta að yfir­stjórn RÚV láti þann nið­ur­skurð bitna á frétta­stof­unnio og skorar á yfir­stjórnin að end­ur­skoða þá ákvörðun. Jafn­framt skorar félagið á stjórn­völd að sjá til þess að geta RÚV til að sinna almanna­varn­ar­hlut­verki sínu verði ekki skert.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár