Gjaldþrot Capacent hefur áhrif á starfsemi Tryggingastofnunar

Upp­lýs­ingar um rétt­indi líf­eyr­is­þega, fjölda­þróun og útgjöld til mála­flokks­ins hafa ekki verið birt með reglu­legum hætti á vef Trygg­inga­stofn­unar á hálft ár. Ástæðan er sú að fyr­ir­tækið Capacent, sem sá um rekstur mæla­borðs stofn­un­ar­innar, varð gjald­þrota í júní.

Gjaldþrot Capacent hefur áhrif á starfsemi Tryggingastofnunar

Mælaborð Trygg­inga­stofn­unar hefur verið óvirkt og ekki í birt­ingu á vef stofn­un­ar­innar frá því í júní síð­ast­liðnum. Ástæðan er gjald­þrot Capacent á Íslandi en fyr­ir­tækið sá um rekstur mæla­borðs­ins fyrir stofn­un­ina.

Staðan þykir afar baga­leg sökum þess að inni á mæla­borð­inu var birt ýmis­legt talna­efni tengt rekstri og hlut­verki Trygg­inga­stofn­unar sem hefur því ekki verið aðgengi­legt síð­asta hálfa árið. Inni á mæla­borð­inu mátti meðal ann­ars finna upp­lýs­ingar um rétt­indi skjól­stæð­inga Trygg­inga­stofn­unar, fjölda­þróun líf­eyr­is­þega, greiðslur frá Trygg­inga­stofnun og útgjöld til til mála­flokks­ins. Þá mátti einnig finna þar nið­ur­brot eftir kyni, aldri og búsetu auk fleiri þátt. Þá voru umrædd gögn sömu­leiðis nýleg í hverju til­felli.

Tryggingastofnun hyggst sjálf reka nýtt mælaborð

Sigrún Jóns­dóttir, stað­geng­ill for­stjóra Trygg­inga­stofn­unar, segir að það skipti stofn­un­ina miklu máli að almenn­ingur og við­skipta­vinir geti fengið grein­ar­góðar upp­lýs­ingar á vef stofn­un­ar­innar, bæði um rétt­indi sín, en einnig um tölur er varði almanna­trygg­ingar almennt. Gögnin sem hafi verið birt á mæla­borð­inu séu fram­setn­ing á töl­fræði úr gagna­grunni stofn­un­ar­innar og séu öll til staðar.

„Unnið hefur verið að því frá því í júlí að end­ur­hanna útlitið og finna góð for­rit til að birta töl­fræði­upp­lýs­ingar af þessu tagi. Það er nú þegar búið að leggja tölu­verða vinnu innan Trygg­inga­stofn­unar í að setja gögnin þannig upp að hægt verði að birta þau á ný,“ segir Sigrún í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

„Innan stofn­un­ar­innar var ekki þekk­ing á kerfum sem eru nauð­syn­leg til að birta töl­fræði­gögn“

Samið var við Capacent um rekstur mæla­borðs­ins í mars árið 2018. „Það var talið skyn­sam­legt í ljósi þess að innan stofn­un­ar­innar var ekki þekk­ing á kerfum sem eru nauð­syn­leg til að birta töl­fræði­gögn með þessu móti og því ekki starfs­fólk inn­an­húss til að sinna því verk­efni,“ segir Sigrún. Trygg­inga­stofnun mun hins vegar sjálf sjá um upp­setn­ingu og rekstur nýs mæla­borðs og segir Sigrún að gert sé ráð fyrir að það fari í loftið á næstu vikum.

Á þeim rúmu tveimur árum sem Capacent sá um rekstur mæla­borðs­ins greiddi Trygg­inga­stofnun alls 4.322.500 krónur til fyr­ir­tæk­is­ins, án virð­is­auka­skatts. Ekki er ljóst hvaða kostn­aður mun hljót­ast af því að þurfa að setja upp nýtt mæla­borð á vef stofn­un­ar­innar.

Uppfært 23. nóv­em­ber:

Nýtt mæla­borð Trygg­inga­stofn­unar er komið í gagnið og virkt á heima­síðu stofn­un­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár