Alvarleg staða og grafarþögn hjá Capacent

Ekki hefur náðst í fram­kvæmda­stjóra, stjórn­ar­menn eða eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins. Starfs­menn biðj­ast undan því að tjá sig um málið og vísa á fram­kvæmda­stjór­ann Halldór Þor­kels­son.

Alvarleg staða og grafarþögn hjá Capacent
Svarar ekki sím­tölum Ekki hefur náðst í Halldór Þor­kels­son fram­vkæmda­stjóra Capacent í dag, né heldur stjórn­ar­menn eða eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins. Fullyrt er að það sé á leið í þrot. Mynd: Capacent

Capacent á Íslandi er í alvar­legum lausa­fjár- og rekstr­ar­vand­ræðum, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Ekki fást svör um hvort hægt verði að greiða starfs­fólki laun fyrir maí mánuð.

Fyr­ir­tækið er eitt þeirra íslensku fyr­ir­tækja sem nýtti sér hluta­bóta­leið stjórn­valda eftir að Covid-19 far­ald­ur­inn skall á. For­svars­fólk fyr­ir­tæk­is­ins svarar ekki í síma, skipti­borð fyr­ir­tæk­is­ins svarar ekki og þeir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins sem náðst hefur í hafa vísað á fram­kvæmda­stjór­ann, Halldór Þor­kels­son.

Stundin hefur heim­ildir fyrir því að Capacent á Íslandi sé í alvar­legum rekstr­ar­erf­ið­leikum og búið sé að greina starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins frá því hver staðan sé. Ítrekað hefur verið reynt að hafa sam­band við Halldór Þor­kels­son fram­kvæmda­stjóra sím­leiðis frá því í morgun en hann hefur ekki svarað sím­tölum, né heldur tölvu­pósti. Þá hefur Ingvi Þór Elliða­son, með­stjórn­andi í stjórn félags­ins og einn eig­enda, ekki heldur svarað sím­tölum Stund­ar­innar. Slíkt hið sama má segja um aðra eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins sem Stundin hefur reynt að ná í í dag.

Þegar hringt var í skipti­borð Capacent fyrir hádegi í dag fékkst ekki sam­band við skipti­borð. Eftir hádegi hefur sím­svari hins vegar svarað þegar hringt hefur verið í númer Capacent og gefið eft­ir­far­andi skila­boð: „Ráð­gjafar okkar svara nú sím­tölum í bein númer sem finna má á heima­síðu okkar, Capacent.is.“ Þá er boðið upp á að senda tölvu­póst á fyr­ir­tækið eða að hafa sam­band í gegnum Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Stundin hefur í dag reynt ítrekað að hafa sam­band við starfs­fólk Capacent, bæði sviðs­stjóra sviða og óbreytta starfs­menn. Þeir starfs­menn sem hafa svarað sím­tölum eða skila­boðum eru hátt í tugur tals­ins og hafa þeir allir beðist undan því að tjá sig um rekstr­ar­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins og vísað á fram­kvæmda­stjóra um mál­efni þess, Halldór. Í hann hefur hins vegar sem fyrr segir ekki náðst þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Stundin greindi frá því 8. maí síð­ast­lið­inn að Capacent hefði nýtt sér hluta­bóta­leið stjórn­valda. Halldór fram­kvæmda­stjóri stað­festi það en sagð­ist ekki geta greint frá því hversu margir starfs­menn hefðu verið færðir í minna starfs­hlut­fall. Til þess þyrfti hann heim­ild stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Hagnaður Capacent árið 2018 nam rúmum 13 millj­ónum króna og lagði stjórn til að greiddar yfður 7,3 millj­ónir króna í arð á árinu 2019. Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins námu eignir þess í árs­lok 2018 315 millj­ónum króna og var eigið fé 40,1 milljón króna, sem jafn­gildir 13 pró­senta eig­in­fjár­hlut­falli. Árs­reikn­ingur fyrir árið 2019 hefur ekki verið birtur. 

Blaða­maður Stund­ar­innar gerði sér ferð upp í höfðu­stövðar Capacent þar sem mætti honum miði á hurð fyr­ir­tæk­is­ins. Á mið­anum sagði að í ljósi aðgerða til að draga úr Covid-19 hefði afgreiðslu fyr­ir­tæk­is­ins verið lokað. Óljóst er hvenær umræddur miði var hengdur upp. Blaða­maður náði tali á starfs­manni fyr­ir­tæk­is­ins á staðnum sem gat ekki gefið upp­lýs­ingar um hversu lengi slíkar sótt­varn­ar­að­gerðir ættu að gilda. Næst­kom­andi mánu­dag verður slakað enn frekar en orðið er á sam­komu­hömlum vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. 

Blaða­maður spurði starfs­mann­inn einnig hvort hann og aðrir starfs­menn hefðu fengið upp­lýs­ingar um erf­iða stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Svarið við þeirri spurn­ingu var að eng­inn væri við­lát­inn í fyr­ir­tæk­inu sem gæti svarað fyrir það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár