Capacent nýtir hlutabótaleið – Heimild stjórnar þarf til að tjá sig um málið

Halldór Þor­kels­son, fram­kvæmda­stjóri Capacent, segir að hann vilji full­vissa sig um að honum sé heim­ilt að svara spurn­ingum um notkun fyr­ir­tæk­is­ins á hluta­bóta­leið­inni.

Capacent nýtir hlutabótaleið – Heimild stjórnar þarf til að tjá sig um málið
Segist þurfa að upp­lýsa stjórn Halldór seg­ist vilja full­vissa sig um að hann hafi heim­ild til að tjá sig um noktun Capacent á hluta­bóta­leið­inni. Mynd: Capacent

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Capacent hefur nýtt sér hluta­bóta­leið stjórn­valda en fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins seg­ist ekki geta upp­lýst um hversu margir starfs­menn hafa verið færðir í minna starfs­hlut­fall nema með sam­þykki stjórnar. Það sam­þykki fái hann ekki fyrr en eftir helgi í fyrsta lagi. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins nam rúmum þrettán millj­ónum króna árið 2018 og lagði stjórn til að greiddur yrði út arður að upp­hæð 7,3 millj­ónir króna á árinu 2019. Árs­reikn­ingur fyrir árið 2019 hefur ekki verið birtur.

Halldór Þor­kels­son, fram­kvæmda­stjóri Capacent, stað­festi í sam­tali við Stundina að fyr­ir­tækið hefði nýtt sér hluta­bóta­leið­ina. „Já, það er rétt,“ sagði Halldór en vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo komnu máli. „Ég hefði nú viljað fá full­vissu um það frá minni stjórn um að mér væri alveg bært að tjá mig um þetta, þannig að ég myndi vilja vera alveg klár á því að ég mætti það. Svo skal ég glaður svara þessu.“

Spurður hvernig á því stæði að hann þyrfti heim­ild stjórnar til að tjá sig um málið sagði Halldór að hann vildi bara full­vissa sig um að honum væri það heimit og sömu­leiðis upp­lýsa stjórn fyr­ir­tæk­is­ins um að hann hefði fengið spurn­ingar sem þessa. Spurður hvenær sú heim­ild yrði til­tæk sagði Halldór: „Á mánu­dag ætti ég að geta verið alveg klár í spjallið.“

Samkvæmt heima­síðu Capacent á Íslandi vinna um 50 ráð­gjafar hjá fyr­ir­tæk­inu sem hjálpa við­skipta­vinum sínum að finna og ráða fólk í störf, móta skipu­lag fyr­ir­tækja, efla stjórnun og mannauð og aðstoða við hag­ræð­ingu í rekstri, auk ann­ars. Ekki var hægt að fá upp­lýs­ingar um það að svo stöddu máli hvers vegna fyr­ir­tækið hefði talið þörf á að nýta hluta­bóta­leið­ina eða hvernig efna­hag­skreppan af völdum Covid-19 hefði hitt fyr­ir­tækið fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár