Joe Biden sigurvegari kosninganna

Fjöl­miðlar vest­an­hafs hafa lýst Joe Biden sig­ur­veg­ara for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum. Kamala Harris verður fyrsta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta. Donald Trump og fjöl­skylda hans tala hins vegar um kosn­inga­svindl og bar­áttu fyrir dóm­stólum.

Joe Biden sigurvegari kosninganna
Joe Biden Vara­for­set­inn fyrr­ver­andi verður næsti for­seti Banda­ríkj­anna sam­kvæmt nið­ur­stöðum kosn­ing­anna á þriðju­dag. Mynd: AFP

CNN, Fox News og The New York Times hafa lýst Joe Biden, fram­bjóð­anda Demókrata, sig­ur­veg­ara for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum á þriðju­dag. Hefur hann verið lýstur sig­ur­veg­ari í Penn­syl­vaníu, en það tryggir honum nægan fjölda kjör­manna til að sigra. Kamala Harris verður fyrsta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta.

Talið hefur verið áfram upp úr kjör­kössum und­an­farna daga og sýndu nið­ur­stöður úr Georgíu og Penn­syl­vaníu að Biden hefði for­skot í þeim ríkjum þegar atkvæði úr póst­kosn­ingu voru talin. Með sigri í Penn­syl­vaníu í dag er orðið ómögu­legt fyrir Trump að vinna nógu mörg ríki til að fá nógu marga kjör­menn til þess að tryggja sér sigur.

Þó hefur verið stað­fest að end­ur­talið verði í Georgíu þar eð mun­ur­inn á milli fram­bjóð­end­anna tveggja er mjög mjór. Ekki þarf þó að búast við að það breyti neinu um nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Á lands­vísu hefur Biden fengið yfir 4 millj­ónum fleiri atkvæði en Trump, en úrslitin velta engu að síður á fjölda kjör­manna.

Joe Biden fædd­ist í Scranton í Penn­syl­vaníu og sett­ist fyrst á banda­ríska þingið árið 1973 í öld­ung­ar­deild þess fyrir ríkið Delaware. Hann bauð sig fyrst fram til for­seta árið 1988, en náði ekki árangri í for­kosn­ingum Demókrata. Árið 2008 varð hann vara­for­seti Banda­ríkj­anna þegar Barack Obama var kjör­inn for­seti. Gegndi hann því emb­ætti í átta ár. Hann verður 78 ára gam­all þegar hann tekur við emb­ætt­inu.

Kamala HarrisNæsti vara­for­seti Banda­ríkj­anna var fyrst kjörin á þing fyrir fjórum árum.

Kamala Harris, vara­for­seta­efni hans, verður fyrsta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta í sögu Banda­ríkj­anna. Engin kona hefur verið for­seti lands­ins. Hún var einnig fyrsta svarta konan til að hljóta slíka til­nefn­ingu fyrir annan af stóru flokk­unum tveimur og fyrsta konan af asískum upp­runa, en móðir hennar fædd­ist á Indlandi. Hún sett­ist fyrst í öld­ung­ar­deild­ina fyrir fjórum árum fyrir hönd Kali­forníu, en áður starf­aði hún sem sak­sókn­ari í sama ríki.

Ekki líklegt að Trump viðurkenni ósigur

Trump, fjöl­skylda hans og starfs­fólk, hafa hins vegar gefið til kynna að for­set­inn muni ekki við­ur­kenna sigur Biden. Lögmaður fram­boðs Trump, Matt Morgan, telur að margt hafi farið úrskeiðis í Penn­syl­vaníu og Nevada. „Loks lítur út fyrir að for­set­inn muni vinna í Arizona, þrátt fyrir óábyrga og ranga yfir­lýs­ingu Fox News og Associated Press um að Biden hafi unnið þar,“ bætti hann við.

For­set­inn sjálfur sagði í færslu í dag að hann væri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna með yfir­burðum. Taln­ingin stað­festir hins vegar hið gagn­stæða.

Donald Trump Jr., sonur for­set­ans, segir á Twitter að eng­inn hafi trú á því að Biden hafi fengið fleiri atkvæði en Obama fékk árið 2008. Í öðrum færslum segir hann kosn­inga­svik hafa átt sér stað og að faðir sinn ætti að berj­ast áfram um emb­ættið þar til 20. jan­úar á næsta ári þegar Biden á form­lega að taka við því.

For­set­inn frá­far­andi hefur ýmsar leiðir til að hafa áhrif á ferlið næstu mán­uð­ina. Hann hefur nú þegar kært kosn­ing­arnar í nokkrum lyk­il­ríkjum og eygir að end­an­leg ákvörðun endi hjá hæsta­rétti Banda­ríkj­anna. Á dög­unum valdi hann nýjan dóm­ara við rétt­inn, Amy Coney Barrett, en hún þykir íhalds­söm og nýtur stuðn­ings Repúblikana­flokks for­set­ans.

Gæti komið til kasta þingsins

Þá munu kjör­menn­irnir svoköll­uðu koma saman til að kjósa nýjan for­seta form­lega 14. des­em­ber og geta Repúblikanar reynt að hafa áhrif á það í ríkjum sem þeir stjórna hvaða kjör­menn verða sendir. Eru þeir ekki bundnir til að kjósa sam­kvæmt nið­ur­stöðum kosn­ing­anna og hefur það gerst áður að þeir hlaup­ist undan merkjum. Gæti það því komið í hlut Mike Pence, vara­for­seta Trump, að greiða úr hvaða atkvæði kjör­manna telj­ast gild.

„Full­kom­lega fær um að fylgja boð­flennum út úr Hvíta hús­inu“

Njóti Biden ekki stuðn­ings 270 kjör­manna, eins og nið­ur­stöður kosn­ing­anna segja til um, gæti það komið í hönd full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings að velja nýjan for­seta. Þrátt fyrir að Demókratar séu þar í meiri­hluta dugar Biden það ekki þar sem hvert ríki Banda­ríkj­anna fær eitt atkvæði. Eru Repúblikanar í meiri­hluta þing­manna í 27 ríkjum af 50, þrátt fyrir að vera í minni­hluta í heild­ina. Enn er því mögu­leiki fyrir Trump að þvinga fram áfram­hald­andi setu í emb­ætti, þvert á nið­ur­stöður kosn­ing­anna.

Kosn­ingateymi Biden hefur hins vegar áður lýst því yfir að banda­rísk stjórn­völd séu „full­kom­lega fær um að fylgja boð­flennum út úr Hvíta hús­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár