Biden nálægt sigri

Beðið er nið­ur­stöðu for­seta­kosn­ing­anna í nokkrum ríkjum Banda­ríkj­anna, en Joe Biden vantar örfáa kjör­menn til að tryggja sér sigur. Donald Trump hefur kært í nokkrum ríkjum.

Biden nálægt sigri
Joe Biden Fram­bjóð­andi Demókrata seg­ist sann­færður um að hann reyn­ist sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna. Mynd: Shutterstock

Joe Biden, fram­bjóð­andi Demókrata, er hárs­breidd frá því að geta lýst yfir sigri í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fóru í Banda­ríkj­unum á þriðju­dag. Leiðum Donald Trump, sitj­andi for­seta, til að sigra fækkar í sífellu og hefur hann nú þegar leitað á náðir dóm­stóla í nokkrum ríkjum til að reyna að stöðva taln­ingu atkvæða.

Biden er nú tal­inn hafa sigrað í ríkj­unum Wisconsin og Michigan og hafa frétta­stof­urnar AP, Politico og Fox News einnig lýst hann sig­ur­veg­ara í Arizona. Er hann þar með kom­inn með 264 svo­kall­aða kjör­menn, en fram­bjóð­andi þarf stuðn­ing 270 kjör­manna til að sigra.

Frétta­stofur hafa ekki verið til­búnar til að lýsa sig­ur­veg­ara í Nevada, Georgíu, Norður-Karólínu og Penn­syl­vaníu. Enn er verið að telja atkvæði í þessum ríkjum, mest­megnis atkvæði úr póst­kosn­ingu, en í sumum þeirra er óheim­ilt að byrja að telja þau atkvæði fyrr en á kjör­dag. For­dæma­laus fjöldi kjós­enda valdi að kjósa í pósti, að lík­indum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Hafa nið­ur­stöður úr póst­kosn­ing­unni sýnt að hún hefur verið Biden í vil, sér­stak­lega þegar talin hafa verið atkvæði frá þétt­býlum svæðum. Þannig var Trump yfir í bæði Wisconsin og Michigan lengi vel, en Biden náði for­ystu eftir því sem leið á taln­ing­una. Biden hefur einnig þrengt að for­skoti Trump í Penn­syl­vaníu og Georgíu með sama hætti.

Segist hann því sann­færður um að sigur verði í höfn þegar öll atkvæði hafa verið talin. Í raun dugar Biden að vinna Nevada, sem hann leiðir í nú þegar, til að fá þá 6 kjör­menn sem vantar upp í 270. Trump tap­aði í rík­inu fyrir fjórum árum og er nú beðið eftir að taln­ingu póst­at­kvæða ljúki.

Trump hefur aftur á móti haldið því rang­lega fram að hann hafi unnið Penn­syl­vaníu, Georgíu og Norður-Karólínu. Í færslu á Twitter sagð­ist hann einnig vera sig­ur­veg­ari í Michigan ef „í raun var fjölda atkvæða hent í leyni eins og víða hefur komið fram!“ Twitter merkti færslur hans sér­stak­lega sem mis­vísandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár