Ókynjaðar COVID-rannsóknir skapa hættu

Danskir vís­inda­menn telja brýnt að hefja kynja­grein­ingu á gögnum um COVID-19 sjúk­linga sem fyrst.

Ókynjaðar COVID-rannsóknir skapa hættu

Ný skýrsla vís­inda­manna í Kaup­manna­höfn og Árhúsum sýnir að aðeins tæp 17% vís­inda­rann­sókna á áhrifum COVID-19 skrá kyn þátt­tak­enda og aðeins rúm 4% taka til­lit til kyns í grein­ingu á nið­ur­stöðum. Höfundar skýrsl­unnar segja löngu ljóst að líf­fræði­legt kyn geti haft veru­leg áhrif á hvernig lík­am­inn bregst við kór­ónu­veiru­sýk­ingum og mótefnum við þeim. Mjög brýnt sé að hefja kynja­grein­ingu á gögnum um COVID-19 sjúk­linga sem fyrst.

Samkvæmt gögnum sem birt voru í vor eru cis-karl­menn almennt lík­legri til að deyja af völdum COVID-19 en cis-konur. Enginn veit þó enn nákvæm­lega hvers vegna. Margar get­gátur eru á lofti og snú­ast helst um hegð­un­ar­mynstur. Til dæmis eru karl­menn í mörgum löndum tals­vert lík­legri til að reykja sígar­ettur, sér­stak­lega í Asíu, og getur það haft áhrif á töl­fræð­ina. Aðrar rann­sóknir sýna að karl­menn þvo hendur sínar almennt sjaldnar og eru lík­legri til að hunsa til­mæli heil­brigð­is­yf­ir­valda en konur. 

Ónæmiskerfi karla bregst verr við

Margt bendir hins vegar til þess að einnig sé um líf­fræði­legan mun að ræða. Sabra Klein, pró­fessor í veiru­fræði við John Hopkins-háskóla, segir í við­tali við breska dag­blaðið Guardian að töl­fræðin sé svipuð í löndum á ólíkum menn­ing­ar­svæðum þrátt fyrir að hegð­un­ar­mynstur kynj­anna sé mjög breyti­legt eftir menn­ingu. Til dæmis reyki um 16% karl­manna og 13% kvenna í Bret­landi en í Kína reyki 50% karl­manna og aðeins 2% kvenna. 

„Við erum að sjá hærri dán­ar­tíðni hjá karl­mönnum jafnt í Kína, á Ítalíu og Spáni. Við sjáum sama mynstur í mjög ólíkum löndum og menn­ing­ar­svæðum,“ segir Klein. „Þegar ég sé það finnst mér eins og það hljóti að vera eitt­hvað almenn­ara sem veldur þessu. Ég held ekki að reyk­ingar séu helsta orsökin.“

Klein stýrði sjálf rann­sóknum fyrir nokkrum árum sem sýndu að ónæm­is­kerfi karl­manna á erf­ið­ara með að bregð­ast við ýmsum sýk­ingum á borð við lifr­ar­bógu C og HIV-veiruna. Það sama gæti átt við kór­ónu­veirur sam­kvæmt öðrum rann­sóknum sem gerðar voru á músum á til­rauna­stofu en veiran sem veldur COVID-19 hefur ekki enn verið rann­sökuð hvað þetta varðar.

Ein mögu­leg skýr­ing er að horm­ónar leiki stærra hlut­verk í starf­semi ónæm­is­kerf­is­ins en áður var talið. Estrógen örvar til dæmis ónæm­is­við­brögð í frumum og X-litn­ing­ur­inn virð­ist inni­halda mikið af nauð­syn­legum erfða­fræði­legum upp­lýs­ingum fyrir ónæm­is­kerfið. Þeir sem fæð­ast með tvo X-litn­inga gætu því sýnt önnur við­brögð en fólk með XY-litn­inga. 

Konur eru ekki litlir karlar

Nýja danska rann­sóknin, sem getið er um hér að ofan, bendir til þess að veru­legir mis­brestir séu á því að líf­fræði­legt kyn sé haft til hlið­sjónar í COVID-rann­sóknum til þessa og höf­und­arnir segja að það geti verið lífs­hættu­legt fyrir bæði konur og karla. 

Sem dæmi má nefna 11 rann­sóknir sem meðal ann­ars beindust að virkni malar­íu­lyfs­ins hydroxychloroquine, sem hefur verið nefnt sem mögu­legt vopn í bar­átt­unni við COVID-19 þrátt fyrir lít­inn stuðn­ing í vís­inda­sam­fé­lag­inu. Engin af þeim rann­sóknum greindi nið­ur­stöð­urnar eftir kyni, þrátt fyrir að vitað sé að lyfið geti valdið hjarta­á­föllum kvenna mun frekar en karla. Konur fá oftar og verri hjart­slátt­ar­trufl­anir af því að taka lyfið en ekk­ert til­lit var tekið til þess í nið­ur­stöð­unum.

„Konur eru ekki bara litlir karl­menn,“ segir Cara Tann­en­baum, sem stýrir rann­sóknum í lyfja­fræði fyrir Canadian Institute of Health Research. „Við höfum annan horm­óna­bú­skap, minni nýru og meiri fitu­lög þar sem lyf geta safn­ast fyrir. Það eru svo margar ástæður fyrir því að svona lagað geti farið úrskeiðis,“ segir hún og vísar þar til þess að hefð sé fyrir því í rann­sóknum að líta á karl­menn sem normið.

Ógn við heilsu kvenna

Banda­rísk rann­sókn frá árinu 2001 sýndi að af þeim tíu lyfjum sem höfðu verið tekin af mark­aði vegna hættu­legra auka­verk­ana á fjög­urra ára tíma­bili reynd­ust átta þeirra vera sér­stak­lega hættu­leg konum. Ástæðan var sögð tregða vís­inda­sam­fé­lags­ins til að kynja­greina nið­ur­stöður lyfja­rann­sókna sem oft bitnar á konum þar sem þær eru álitnar frá­vik frá normi karl­manns­ins.

Höfundar dönsku rann­sókn­ar­innar benda á að hefð hafi smám saman mynd­ast fyrir því eftir seinni heims­styrj­öld að úti­loka hrein­lega konur úr rann­sóknum á grund­velli þess að ný lyf geti verið hættu­leg fyrir fóstur og móð­ur­líf. Þetta hafi smám saman tekið að breyt­ast upp úr 1990 en þró­unin sé hæg og þessar fregnir af ókynja­greindum COVID-19 rann­sóknum bendi til þess að enn sé langt í land. Til skemmri tíma litið ógni það heilsu kvenna sem verði látnar taka ný lyf við veirunni án þess að fyrir liggi hvort þau séu sér­stak­lega skað­leg konum.

Við þetta bæt­ast félags­legir þættir. UN Gender Tracker á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna birti í vik­unni nýja sam­an­tekt upp­lýs­inga um þau áhrif sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft á konur í 206 löndum. Heim­il­is­of­beldi hefur auk­ist mikið, í mörgum löndum eru konur og kvenna­stéttir að bera þung­ann af álag­inu á heil­brigð­is­kerfið og efna­hags­legt öryggi kvenna hefur almennt minnkað á heims­vísu í far­aldr­inum þar sem hann dregur úr atvinnu­tæki­færum utan heim­il­is­ins. Banda­ríska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið McKinsey Global Institute segir að konur séu að jafn­aði í tæp­lega tvisvar sinnum meiri hættu á að missa vinn­una í far­aldr­inum en karl­menn.


Ath. Í grein­inni er talað um líf­fræði­legt kyn vegna þess að litlar sem engar sér­tækar rann­sóknir liggja fyrir á áhrifum kyn­leið­rétt­ingar á þá líf­fræði­legu þætti sem eru til umfjöll­unar. Ef rétt reyn­ist að kyn­horm­ónar og fitu­söfnun séu lyk­il­þættir má þó ætla að margt eða allt það sem gildir fyrir cis fólk eigi einnig við um trans­fólk í eða eftir leið­rétt­ing­ar­ferli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár