Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Stjörnu­mynd­un­ar­svæði NGC 3324 í Kjal­ar­þokunni. Mynd: NASA, ESA, CSA, and STScI

James Webb geim­sjón­auk­inn, eitt allra magn­að­asta stór­virki mann­kyns­ins, byggður af þús­undum vís­inda­manna og verk­fræð­inga yfir sam­an­lagt 40 milljón klukku­stundir yfir rúman ald­ar­fjórð­ung, fyrir tæp­lega tíu millj­arða banda­ríkja­dala, er mættur á áfanga­stað og byrj­aður að gefa af sér. Sjón­auk­anum var skotið á loft í Ariane 5 ECA eld­flaug þann 25. des­em­ber í fyrra frá Kourou geim­ferða­mið­stöð­inni í Frönsku-Gvæjana í Suður-Ameríku.

Þessi nýjasti geim­sjón­auki NASA er nefndur eftir James Webb, fyrr­ver­andi for­stöðu­manni NASA á tímum Apollo geim­ferð­anna frá 1961 til 1968. Sjón­auk­inn er arf­taki Hubble geim­sjónaukans, sem gjör­breytti hug­myndum manna um alheim­inn með mörgum af merki­leg­ustu upp­götv­unum í stjarn­vís­indum á 20. öld. Hubble færði okkur stór­kost­legar djúp­myndir af þús­undum vetr­ar­brauta, reiki­stjörnum, tunglum, smá­st­irnum og hala­stjörnum í sól­kerf­inu okkar. Hubble hjálp­aði okkur að meta aldur og stærð alheims­ins, kenndi okkur ótal­margt um myndun og ævi stjarna, sýndi fram á til­vist risa­svart­hola í kjörnum stórra vetr­ar­brauta og sjón­auk­inn heldur áfram að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Frábær grein sem sem lýsir því nýjasta í stjörnuheiminum mjög vel. Það eina sem veldur mér óróleika er að myndirnar sem sýndar eru eru tölvugerðar vegna þess að ljósið sem sjónaukinn tekur á móti er ósýnilegt mannlegu auga eins og raunar er sagt í greininni. Litirnir sem við sjáum eru uppfundnir sennilega með því að búa til "orðabók" sem segir að ákveðin bylgjulengd í innrauðu ljósi samsvari brúnum lit og önnur bláum og svo framvegis. Við verðum því að skoða myndirnar með varkárni og meigum ekki láta litina villa okkur sýn. Hins vegar er greining ljóssins eftir bylgjulengd ákaflega spennandi og leyfir t. d. að efnagreina ljósgjafann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þekking

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár