Sögulegar kappræður: Trompar „Sljói-Jói“ Trump?

Donald Trump og Joe Biden takast á í kapp­ræðum í kvöld sem búist er við að verði sér­stak­lega harð­vít­ugar.

Sögulegar kappræður: Trompar „Sljói-Jói“ Trump?
Biden og Trump Berjast um for­seta­stól­inn fram að kosn­ing­unum 3. nóv­em­ber og hugs­an­lega lengur. Mynd: AFP

Fyrstu kapp­ræður Joe Biden og Donalds Trump fyrir banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar hefj­ast í nótt klukkan eitt að íslenskum tíma. 

Ákveðið hefur verið að umræðu­efnin verði sex, í fimmtán mín­útur í senn: Ferill Trumps og Bidens, Hæsti­réttur, Covid-19, efna­hags­lífið, kyn­þátta­mál og ofbeldi og svo lög­mæti kosn­ing­anna.

Fram­bjóð­end­urnir og kosn­ingateymi þeirra hafa unnið að því að finna við­eig­andi högg­stað á and­stæð­ingum sínum og svo sam­hliða sókn­ar­færi fyrir sjálfa sig. Fram hefur komið að Trump hafi und­ir­búið sig með minn­is­spjöldum, en að Biden hafi haldið æfing­ar­kapp­ræður dögum saman.

Uppnefni Trumps

Donald Trump hefur upp­nefnt Biden líkt og aðra and­stæð­inga sína. Hann upp­nefndi Hillary Clinton spilltu Hillary, „Crooked-Hillary“, en útmálar Joe Biden sem sljóan, ringlaðan og þreyttan með við­ur­nefn­inu „Sleepy-Joe“. Þessu til stuðn­ings hefur kosn­ingateymi Trumps birt til­klippt mynd­bönd á sam­fé­lags­miðlum þar sem Biden tafsar og verður fóta­skortur á tung­unni.

„Hann er heimskur náungi, heimskur náungi, alltaf þekktur sem heimskur náungi,“ sagði Trump í ræðu á fjölda­fundi í Penn­syl­vaniu um helg­ina.

Það þýðir hins vegar að ef Biden reyn­ist öfl­ugri en Trump í kapp­ræð­unum reyn­ist Trump hafa orðið undir í viður­eign við mann sem er vits­muna­lega van­virkur, sam­kvæmt hans eigin orð­ræðu, eins og bent er á í umfjöllun CNN. Til þess að bregð­ast við þessu hefur Trump hins vegar farið fram á að Biden und­ir­gang­ist próf fyrir örvandi efnum áður en kapp­ræð­urnar hefj­ast. Í til­raun til vænt­inga­stjórn­unar hefur Trump síðan sagt að Biden hafi meiri reynslu en hann af kapp­ræðum.

Kapp­ræð­urnar verða að mörgu leyti sögu­legar og búist er við meiri hörku en áður hefur sést, á sama tíma og djúp­stæður klofn­ingur grein­ist í banda­rísku sam­fé­lagi.

Fram­bjóð­end­urnir eru eldri en áður hefur þekkst, Biden er 77 ára og Trump 74 ára. Með­al­aldur for­seta við emb­ætt­is­töku fram að þessu er 55 ár. Trump varð sá elsti til að verða for­seti frá upp­hafi, en bæði Biden og Trump geta slegið ald­urs­met Ronalds Reagans við lok for­seta­tíðar sinnar, en hann varð 77 ára á for­seta­stóli.

Spyrill verður Chris Wallace, frétta­þulur Fox News Sunday. Hann stýrði einnig fyrstu kapp­ræðum Hillary Clinton og Donald Trump 2016.

Heimsmynd Trumps

Líkt og sjá mátti á lands­þingi Repúblik­ana í sept­em­ber, vilja þeir útmála Demókrata sem sós­í­alista sem myndu leysa upp lög­regl­una. Trump hefur hins vegar sett örygg­is­mál, lög og reglu, í for­grunn. Þá hefur hann reglu­lega dregið upp þá mynd að venju­legum Banda­ríkja­mönnum sé ógnað af ofbeld­is­fullum inn­flytj­endum frá Mexíkó og stjórn­leys­ingjum sem mót­mæla lög­reglu­of­beldi.

Trump mun leggja áherslu á jafn­rétt­is­mál í umræðu um skipan hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Trump, sem er vin­sælli meðal karla heldur en Joe Biden, en mun óvin­sælli meðal kvenna, til­kynnti á dög­unum að hann myndi til­nefna íhalds­sinn­aða dóm­ar­ann Amy Coney Barrett í stól hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Hún hefur stutt aukin rétt­indi til byssu­eignar, úrskurðað í þágu harðrar inn­flytj­enda­stefnu Trumps, lýst stuðn­ingi við mál­stað þeirra sem eru and­vígir fóst­ur­eyð­ingum eða þung­un­ar­rofi og er með­limur í kaþ­ólskum trú­ar­hópi sem er andsnú­inn sam­kyn­hneigð.

Fram­bjóð­end­urnir munu reyna að snúa umræðu­efnum kapp­ræð­anna yfir á svæði sem henta þeim best. 

Trump mun að lík­indum hrósa sér af sterkri stöðu efna­hags­mála, en kenna Kín­verjum um Covid-19 far­ald­ur­inn, og þannig snúa efna­hags­málum upp í öryggis- og þjóð­ern­is­mál.

Biden mun á sama tíma kenna Trump um dauða 209 þús­und manns í Banda­ríkj­unum vegna Covid-19. Líklegt er að Trump muni benda á að hann hafi, gegn ráð­legg­ingum flestra og mót­mælum Demókrata, lokað land­inu fyrir Kína strax 31. jan­úar. Biden er lík­legur til þess að vísa í orð Trumps, sem gerði stöðugt lítið úr far­aldr­inum.

Trump mun lík­lega þurfa að svara fyrir skatta­mál sín, líkt og fyrir fjórum árum þegar hann neit­aði að gefa upp skatt­fram­tal sitt. Afhjúpun New York Times sýndi meðal ann­ars fram á að hann greiddi aðeins 750 Banda­ríkja­dali í tekju­skatt síð­ustu tvö ár og hefur aflað sér frá­dráttar frá skatti með því að leggja fram kostnað við hár­greiðslu og ráð­gjafagreiðslur til dóttur hans, Ivönku. 

Sviðið und­ir­búiðKapp­ræð­urnar verða haldnar í Clevland, Ohio.

Sonurinn akkilesarhæll

Búast má við því að Trump forð­ist að vera í vörn með því að fara harka­lega í Biden og saka hann um spill­ingu, tengda syni hans, lög­fræð­ingnum Hunter Biden. 

Sagt var frá því í síð­ustu viku að Hunter Biden hefði þegið 3,5 millj­ónir dala frá rúss­neskri auð­konu, eig­in­konu fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Moskvu. Fréttin byggði á 87 síðna rann­sókn­ar­skýrslu tveggja nefnd­ar­for­manna úr röðum Repúblik­ana í öld­unga­deild­inni. Skýrslan leiddi hins vegar ekki af sér þá nið­ur­stöðu að Joe Biden hefði brotið af sér í starfi eða orðið fyrir áhrifum af störfum sonar hans. Að sama skapi kemur fram í skýrsl­unni að engar sann­anir hafi fund­ist fyrir neinu ólög­mætu athæfi sonar vara­for­set­ans.

Hunter Biden, sem sat í stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tækis í Úkraínu á meðan Joe Biden var vara­for­seti, er akki­les­ar­hæll Bidens í hern­að­ar­á­ætlun Trumps. Fjöl­miðlar hafa skipst í tvo hópa þegar kemur að skýrsl­unni um Hunter Biden. Meg­in­straum­smiðlar eins og New York Times, Bloomberg og Forbes segja hana lítið hafa fært fram, annað en að stað­festa sak­leysi Joe Biden. Íhalds- og smelli­m­iðlar, þar á meðal Fox News og Washington Times sem styðja Trump, lýsa spill­ingu og leggja áherslu á mál­efni Hunters Bidens á sama tíma og svör og gagnárásir Trumps eru ráð­andi í umfjöllun um skatta­mál hans. Málefni Hunters voru einnig í brennid­epli þegar full­trúa­deild þings­ins ákærði Trump síð­asta vetur, fyrir að hafa notað for­seta­emb­ættið í eigin þágu með því að reyna að fá for­seta Úkraínu til að láta rann­saka Hunter Biden.

Trump er því nú þegar far­inn að snúa vörn í sókn. Sonur hans, Donald Trump jr, tal­aði þannig um Biden-glæpa­fjöl­skyld­una í við­tali á Fox News þar sem hann varði föður sinn og skatta­mál hans. 

Hótaði Clinton fangelsisvist

Miklum meiri­hluta þótti Hillary Clinton standa sig betur í kapp­ræð­unum þremur fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016, en Trump sagð­ist hafa unnið kapp­ræð­urnar sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, þótt engin könnun hefði sýnt þá nið­ur­stöðu, heldur allar leitt í ljós að áhorf­endum þætti Clinton standa sig betur.

Margir gagn­rýndu orð­færi Trumps í kapp­ræð­unum fyrir kosn­ing­arnar 2016, meðal ann­ars þegar hann kall­aði Clinton klækja­kvendi, eða „nasty woman“ og sagði að skatta­forðun sín sýndi að hann væri snjall. Þá hót­aði hann því að Clinton færi í fang­elsi ef hann yrði for­seti.

Fyrstu kapp­ræður Clintons og TrumpNýr tónn var sleg­inn í kapp­ræðum þegar Trump mætti Clinton í kapp­ræðum fyrir fjórum árum. Meðal ann­ars var rætt um skatta­mál Trumps.
Aðrar kapp­ræð­urnar„Því þú værir í fang­elsi,“ sagði Donald Trump í öðrum kapp­ræð­unum árið 2016 og hót­aði því að fá sér­stakan sak­sókn­ara til að rann­saka Hillary Clinton vegna tölvu­póst­mála hennar.

Engu að síður vann hann óvæntan sigur, með 40,2% atkvæða á lands­vísu gegn 42,8% atkvæða til Hillary Clinton.

For­seta­kosn­ing­arnar fara fram þriðju­dag­inn 3. nóv­em­ber. Donald Trump hefur fyr­ir­fram haldið fram stað­hæf­ingum um að kosn­inga­svindl sé í aðsigi og neitað að skuld­binda sig til þess að láta frið­sam­lega af völdum fari svo að hann tapi kosn­ing­unum, eins og kosn­inga­spár gefa til kynna. Líklegt er að hann haldi áfram að sá fræjum efa­semda um lög­mæti kosn­ing­anna í kapp­ræð­unum í kvöld. Þannig fjallar Fox News í dag til dæmis um ósann­aðar ásak­anir hægri­s­inn­aðra akti­vista gegn full­trúa­deild­ar­þing­mann­inum Ilhan Omar, um brot á kosn­inga­lögum með söfnun atkvæða­seðla. Trump sagði síð­asta á Twitter í dag að kosn­ing­arnar væru svindl, „Rigged Election!“ Sér­fræð­ingar í lýð­ræð­is­málum hafa hins vegar varað við því að það sé ein­kenni auk­innar ein­ræð­is­stefnu að grafa mark­visst undan lög­mæti kosn­inga, póli­tískra and­stæð­inga og fjöl­miðla.

Í sam­an­tek­inni kosn­inga­spá FiveT­hir­tyEight er gert ráð fyrir því að 77% líkur séu á sigri Bidens, en 22% líkum á sigri Trumps og 1% líkum á jafn­tefli sem leiðir til þess að full­trú­ar­deild þings­ins, sem er að meiri­hluta í höndum Demókrata, kýs for­seta en öld­unga­deildin, sem er í höndum Repúblik­ana, velur vara­for­seta.

Mik­il­vægi kapp­ræðaNew York Times fjallar um lyk­il­at­riði og afdrifa­rík augna­blik í kapp­ræðum fyrir for­seta­kosn­ingar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár