Helgi Hrafn er einn þeirra sem greindust með Covid-19 í gær

Þing­maður Pírata segir tíma­setn­ing­una á smit­inu heppi­lega að því leyt­inu til að Alþingi er ekki starf­andi.

Helgi Hrafn er einn þeirra sem greindust með Covid-19 í gær
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Þing­maður Pírata er einn þeirra sem greindust með Covid-19 í gær. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19,“ segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata,  í Facebook-færslu rétt í þessu. Helgi er einn þeirra nítján sem greindust með COVID-19 í gær. Hann segir ótt­ann vera eitt ein­kennið.

Helgi Hrafn er einn af þeim sem greindust í gær í stærsta stökki í smit­fjölda frá því í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins á Íslandi í vor.

„Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúk­dómi er mér orðið ljóst að fólk verður hratt ótta­slegið og óþreyju­fullt eftir upp­lýs­ingum. Því vil ég minna á að þetta er ferli, og smitrakn­ing tekur ein­hvern tíma. Grein­ingin kom í gær­kvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sér­fræð­inga eða nákomna, sinna smitrakn­ingu og til­flutn­ingi í ein­angrun.“

Helgi Hrafn vill biðla til þeirra sem hafa hitt hann í vik­unni. „Ef þið hittuð mig á mánu­dag eða þriðju­dag og við umgeng­umst hvort annað í meira en 15 mín­útur, og ekki hefur verið haft sam­band við ykkur frá smitrakn­ingu nú þegar, getið þið haft sam­band við mig og ég svara eftir bestu getu. Ég hef haft sam­band við sum ykkar en ekki önnur og stýr­ist það af aðstæðum. Ykkur er frjálst að henda í mig spurn­ingum ef þið hafið áhyggjur, en athugið að ég er ekki sjálfur endi­lega með öll svörin. Ég reyni mitt besta til að upp­lýsa fólk með áhyggjur eftir bestu vit­und.“

Alþingi hefur ekki verið starf­andi frá 4. sept­em­ber og því eru engar líkur á smiti tengdu störfum lög­gjafans. Það tekur aftur til starfa 1. októ­ber.

„Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppi­legt, þá er tíma­setn­ingin gagn­vart þing­störfum ekki sú versta upp á smit­leiðir og þing­störf að gera. Að sjálf­sögðu er þó farið í einu og öllu eftir til­mælum og ráð­gjöf sótt­varn­ar­yf­ir­valda þegar kemur að þing­lokknum og starfs­fólki hans, t.d. hvað varðar sótt­kví. Þá er Alþingi að sjálf­sögðu með­vitað um stöð­una og hefur gert við­eig­andi ráð­staf­anir.“

Hann segir heilsu sína „ágæta enn sem komið er“. „Endilega farið var­lega. Það kom mér ekki minna á óvart að smit­ast en það kæmi þér að smit­ast núna. Við erum öll almanna­varnir.“

Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði, hefur sagt að fjölgun smita nú komi honum á óvart. „Það er eitt­hvað í gangi,“ sagði hann í sam­tali við mbl.is í dag.

Þá hefur Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, varað við því að svæsin bylgja gæti verið í upp­sigl­ingu.

Ungt fólk er meiri­hluti þeirra sem greindust í gær. Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að 13 smit sem greindust í fyrra­dag hafi einkum verið rakin til Háskóla Íslands, Háskól­ans í Reykja­vík og ótil­greinds veit­inga­staðar í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár