Einar Kárason vinnur að verki um Jón Ásgeir

Einar Kárason rit­höf­undur leggur nú loka­hönd á verk um Jón Ásgeir Jóhann­es­son athafna­mann. Höf­und­ur­inn er fáorður um verk­efnið en stað­festir að það komi út á næst­unni. Einar hefur áður skrifað sögu Jóns Ólafs­sonar fjár­festis en hlið­stæður má finna í sögum þess­ara tveggja manna.

Einar Kárason vinnur að verki um Jón Ásgeir

„Þetta er alla vega í vinnslu og drögum,“ segir Einar Kárason, rit­höf­undur og vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, aðspurður um hvort hann sé að skrifa bók um fjár­fest­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son, líkt og heim­ildir Stund­ar­innar herma. Jón Ásgeir er einn þekkt­asti athafna­maður lands­ins, stofn­andi Bónuss ásamt föður sínum heitnum, og var hann leið­andi í íslensku útrásinni á árunum fyrir banka­hrunið 2008. 

Aðspurður um hvort bókin sé ævi­saga segir Einar að það liggi ekki alveg fyrir hvers eðlis bókin verður. „Það verður nú eig­in­lega að koma í ljós. Þetta er allt í vinnslu,“ segir Einar. 

Einar Kárason er aðal­lega þekktur sem skáld­sagna­höf­undur á Íslandi, meðal ann­ars sem höf­undur þrí­leiks­ins sem kall­aður er Djöfla­eyjan, sem sam­nefnd kvik­mynd var gerð eftir á sínum tíma. Einar  hefur hlotið Íslensku bók­mennta­verð­launin einu sinni, árið 2008, auk þess sem hann hefur verið til­nefndur fjórum sinnum til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs. 

 „Það verður nú eig­in­lega að koma í ljós. Þetta er allt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár