Eyþór Arnalds gagnrýnir að borgin auglýsi störf kennara

Borg­ar­full­trú­inn Eyþór Arnalds gagn­rýnir aug­lýs­ingu frá Reykja­vík­ur­borg sem birt­ist á vef CNN.

Eyþór Arnalds gagnrýnir að borgin auglýsi störf kennara
Eyþór Arnalds og Líf Magneu­dóttir Borg­ar­full­trúi Vinstri grænna gerir gys að færslu Eyþórs. Mynd: Pressphotos

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, gagn­rýnir að Reykja­vík­ur­borg aug­lýsi laus störf og að skattfé sé ekki varið í inn­lenda frétta­miðla. Eyþór er einn af stærstu hlut­höfum Morg­un­blaðs­ins, en hann á í því 13,41 pró­senta hlut í gegnum félag sitt.

Eyþór birti skjá­skot af banda­rísku frétta­veit­unni CNN á Facebook síðu sinni í gær. Á því sést aug­lýs­ing frá skóla- og frí­stunda­sviði Reykja­vík­ur­borgar vegna lausra starfa.

„Á sama tíma og fyr­ir­tækin í borg­inni þurfa að segja upp fjölda starfs­manna er borgin sjálf að aug­lýsa eftir starfs­mönnum,“ skrifar Eyþór. „Það vekur ekki síður athygli að verið er að kaupa aug­lýs­ing­arnar meðal ann­ars til birt­ingar á erlendri frétta­veitu. Hefði ekki verið nær að verja skatt­fénu í inn­lenda frétta­miðla? Fjár­festum inn­an­lands. Verjum störfin.“

Aug­lýs­ingin er hins vegar svokölluð Google Ad, form aug­lýs­ingar sem hægt er að kaupa hjá tækni­fyr­ir­tæk­inu Google. Kaupandi velur það land­svæði sem aug­lýs­ingin birt­ist á, sem í þessu til­viki hefur lík­lega verið Ísland eða höf­uð­borg­ar­svæðið, og sjá inter­net­not­endur á svæð­inu aug­lýs­ing­una á ýmsum síðum þegar þeir vafra um netið.

Aug­lýs­ingin er þannig ekki keypt til birt­ingar á CNN heldur fellur Eyþór inn í þann mark­hóp áhorf­enda sem stjórn­sýsla Reykja­vík­ur­borgar valdi til að sjá aug­lýs­ing­una. Aug­lýs­ingar Google Ads birt­ast ekki í miðlum á íslensku.

Þau störf sem skóla- og frí­stunda­svið aug­lýsir um þessar mundir sam­kvæmt vef Reykja­vík­ur­borgar eru störf kenn­ara, stuðn­ings­full­trúa, frí­stunda­leið­bein­enda og skóla­liða.

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, gerir gys að færslu Eyþórs á Twitter. „Eyþór þarf að kynna sér hvernig Google aug­lýs­ingar virka,“ svarar not­and­inn @jonr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár