Bjarni segir að stórfjölgun opinberra starfa sé „einhver versta hugmynd sem ég heyrt“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill örva sköpun nýrra starfa í einka­geir­anum til að mæta þeim sem hverfa vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vill fjölga opin­berum störfum.

Bjarni segir að stórfjölgun opinberra starfa sé „einhver versta hugmynd sem ég heyrt“
Bjarni Bene­dikts­son og Ágúst Ólafur Ágústs­son Þing­menn­irnir eru ósam­mála um fjölgun opin­berra starfa.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir það ekki vera verk­efni stjórn­valda að stór­fjölga opin­berum störfum til að mæta auknu atvinnu­leysi vegna Covid-19 far­ald­urs­ins.

Þetta kom fram í umræðum um fjár­auka­lög á Alþingi í dag. Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði ráð­herra um hvar beinar aðgerðir fyrir heim­ilin í land­inu væri að finna í nýjum aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar. „Það er afskap­lega lítið í þessum pakka sem stuðlar til dæmis að því að búa til ný störf,“ sagði Ágúst Ólafur. „Af hverju ekki að fjölga opin­berum störfum? Það bæði þarft og væri skyn­sam­legt í þessu ásig­komu­lagi. Það er merki­legt að einu nýju störfin í þessum pakka séu sum­ar­störf. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeim en ég get svo sann­ar­lega full­yrt úr þessum stól að fólk bjóst við meiru en hér má finna.“

„Þetta er ein­hver versta hug­mynd sem ég heyrt“

Bjarni sagði hluta­bóta­kerfið hjálpa til við að létta launa­kostnað fyr­ir­tækja og halda fólki í störfum í einka­geir­anum. „Þetta er ein­hver versta hug­mynd sem ég heyrt, að nú sé ástæða til að fara að stór­fjölga opin­berum störfum,“ svar­aði Bjarni. „Ég held að það sé ekki verk­efnið. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því hvert vanda­málið er. Vanda­málið er störfin í einka­geir­anum sem eru að hverfa. Það er rót vand­ans.“

Bætti hann því við að ef ekki yrði tekið ástand­inu muni stjórn­völd ekki hafa efni á sam­neysl­unni og þeim útgjöldum sem búist væri við. „Við munum ein­fald­lega ekki hafa tekjur til rík­is­sjóðs til að greiða bætur almanna­trygg­inga, reka mennta­kerfið, reka heil­brigð­is­þjón­ust­una, félags­þjón­ust­una, standa undir sam­göngu­kerf­inu og svo fram­vegis. Það er hættan sem við stöndum frammi fyrir þannig að aðgerðir okkar hljóta að eiga mið­ast við að örva að nýju starfa­sköpun í sam­fé­lag­inu. Ég held að hlut­inn sem snýr að rann­sókn, þróun og nýsköpun sé mjög lík­legur til að skila árangri í því efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár