Tveir til viðbótar látnir af völdum Covid-19: „Ég elska ykkur bæði“

Maður sem hefur misst báða for­eldra sína af völdum Covid-19 veirunnar minn­ist for­eldra sinna. Tveir lét­ust af völdum veirunnar á síð­asta sól­ar­hring. Annar þeirra var eig­in­maður Jóninnu Mar­grétar Pét­urs­dóttur sem lést af völdum sjúk­dóms­ins í síð­ustu viku.

Tveir til viðbótar látnir af völdum Covid-19: „Ég elska ykkur bæði“
Fjórir hafa lát­ist af vödum COVID-19 hér á landi Mynd: Pixabay

Á síð­asta sól­ar­hring hafa tveir sjúk­lingar lát­ist á Land­spít­ala vegna COVID-19. Þetta kemur fram á vef­síðu spít­al­ans. Annar þeirra er eig­in­maður Jóninnu Mar­grétar Pét­urs­dóttur sem lést af völdum sjúk­dóms­ins í síð­ustu viku. Hann var 75 ára gam­all.

Sonur þeirra minn­ist for­eldra sinna með þessum orðum: „Ég er eig­in­lega búinn með orðin, ég vona bara að þau séu á góðum stað og líði vel saman. Ég elska ykkur bæði.“

„Ég vona bara að þau séu á góðum stað og líði vel saman“

Tólf á gjörgæslu

Fjórir hafa lát­ist lát­ist hér á landi af völdum sjúk­dóms­ins, sá fyrsti var ástr­alskur ferða­maður sem lést á Húsavík 17. mars. Á síð­asta sól­ar­hring voru 99 greindir með COVID-19 veiruna og eru smit­aðir því orðnir 1.319 tals­ins. Alls eru 950 full­orðnir og 108 börn undir eft­ir­liti COVID-göngu­deildar Land­spít­al­ans. 

Af þeim eru flestir í ein­angrun heima hjá sér eða 1.031, en nú liggja 43 á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins og þar af eru 12 á gjör­gæslu á Land­spít­al­anum og á sjúkra­hús­inu á Akureyri. Tveir til við­bótar eru innilagðir á Land­spít­ala þar sem grunur leikur á að þeir séu með COVID-19 veiruna. 

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í dag kom fram að um helm­ingur þeirra sem greindust á síð­asta sóla­hring hafi þegar verið í sótt­kví og að ekki væri mikið um sam­fé­lags­leg smit. Greindu Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir og Alma D. Möller land­læknir frá þvía ð far­ald­ur­inn fylgi almennt spálík­ani, en verstu spám þegar kemur að alvar­leg­ustu veik­indum vegna veirunnar, þeim sem lenda á gjör­gæslu. Mögulega væri skýr­ingin sú að líkanið fylgir gögnum frá Kína þar sem heil­brigð­is­kerfið hafi ekki verið und­ir­búið til að takast á við far­ald­ur­inn, ekki hafi verið hægt að upp­fylla þarfir fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu og gjör­gæslu­þörf hafi lík­lega verið van­metin. 

Vottuðu þeir sem þar komu fram aðstand­endum hinna látnu samúð. 

„Það er mjög dap­ur­legt að svona fari,“ sagði Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­al­ans. 

Hrakaði hratt

Í við­tali við Stundina sagði sonur hjón­anna að faðir hans hefði ekki glímt við nein veik­indi áður en hann smit­að­ist af COVID-19 veirunni. Honum hafi hríð­versnað hratt og legið mikið veikur á Land­spít­al­anum. 

Eig­in­kona hans, Jóninna Margrét Pét­urs­dóttir, lést á Land­spít­al­anum þann 23. mars síð­ast­lið­inn, fyrst Íslend­inga, eftir að hafa verið flutt þangað mikið veik viku áður, 16. mars síð­ast­lið­inn. Fram að því hafði hún engin ein­kenni sýnt. Sonur þeirra sagði að sökum veik­ind­anna hefðu fáið getað vitjað hennar á spít­al­anum og hún hefði dáið ein. 

„Hún var ein þegar and­látið bar að garði. Það er mjög erfitt að vita til þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár