Ferðaþjónustufyrirtækið Sterna Travel gjaldþrota

Á annan tug missa vinn­una auk verk­taka. Áður var búið að segja upp nokkrum fjölda starfs­fólks. Enn er hægt að bóka ferðir í gegnum síðu Sterna en annað fyr­ir­tæki mun veita þjón­ust­una. Gjald­þrotið ekki tengt kór­óna­veirunni.

Ferðaþjónustufyrirtækið Sterna Travel gjaldþrota
Farið í þrot Skipta­stjóri segir að þrot Sterna Travel teng­ist á engan hátt kór­óna­veiru­far­aldr­inum.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna Travel var lýst gjald­þrota 4. mars síð­ast­lið­inn. Enn er þó hægt að bóka ferðir með fyr­ir­tæk­inu sem hefur boðið upp á norð­ur­ljósa­ferðir, rútu­ferðir um Gullna hring­inn og á Suð­ur­landi, auk ferða á Vest­ur­landi og ýmissa dag­t­úra frá Reykja­vík. Samkvæmt skipta­stjóra er ástæða þess að enn er hægt að bóka ferðir sú, að verið er að bjarga þeim verð­mætum í sem í bók­un­ar­kerf­inu fel­ast. Á annan tug starfs­manna missti vinn­una við gjald­þrotið en áður var búið að segja nokkrum fjölda upp. Þá starf­aði tals­verður fjöldi verk­taka fyrir fyr­ir­tækið. Skipta­stjóri segir að gjald­þrot fyr­ir­tæk­is­ins hafi ekk­ert að gera með Covid-19 veiru­far­ald­ur­inn sem nú herjar.

Heiðar Ásberg Atlason, hæsta­rétt­ar­lög­maður hjá LOGOS, hefur verið skip­aður skipta­stjóri þrota­bús­ins. Hann segir að nú sé unnið að því að skoða hvaða eignir séu í búinu og gera það upp. „Það var búið að segja ein­hverjum starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins upp áður en til gjald­þrots­ins kom, en öllum þeim starfs­mönnum sem enn störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu var sagt upp síð­ast­lið­inn föstu­dag.“

Að sögn Heiðars fengu á bil­inu 15 til 20 manns upp­sagn­ar­bréf þá, en mik­ill fjöldi þeirra sem störf­uðu fyrir fyr­ir­tækið voru verk­takar.

Enn hægt að bóka ferðir

Nú er unnið að því að fara yfir þær eignir sem eru í þrota­bú­inu og reiknar Heiðar með því að þær verði seldar á næst­unni. „Það var gert tíma­bundið sam­komu­lag við annan aðila í sam­bæri­legum rekstri að sinna þeim bók­unum sem búið var að bóka í ferðir hjá fyr­ir­tæk­inu. Það er sömu­leiðis enn hægt að bóka ferðir á heima­síðu Sterna og það er gert með sam­þykki skipta­stjóra. Það er vegna þess að ef lokað yrði fyrir bók­un­ar­síð­una myndi lok­ast á verð­mæti sem þar eru og þetta er gert svona tíma­bundið, meðan verið er að vinda ofan af stöð­unni,“ segir Heiðar og bætir við að sá aðili, sem búið er að semja við um að sinna þjón­ustu fyrir þrota­búið, muni einnig sinna nýjum bók­unum. Þetta fyr­ir­komu­lag verður haft á út mars­mánuð, en Heiðar gerir ráð fyrir að búið verði að selja þrota­búið fyrir þann tíma.

„Það er eitt­hvað virði í þessu en fyr­ir­tækið fór auð­vitað í þrot svo virðið er tak­markað“

Þau verð­mæti sem eru í þrota­bú­inu eru nokkur fjöldi lang­ferða­bíla sem þarf að selja, þó þeir séu veð­settir. Þá eru ein­hver verð­mæti í rekstr­inum sjálfum, í bók­un­ar­kerfi og öðru. „Það er eitt­hvað virði í þessu en fyr­ir­tækið fór auð­vitað í þrot, svo virðið er tak­markað.“

Hvetur starfsfólk til að hafa samband við stéttarfélög

Spurður hvort miklar launa­kröfur séu útistand­andi segir Heiðar að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins séu ekki svo, en vænt­an­lega eigi kröfur eftir að koma fram, enda sé standi kröfu­lýs­inga­frestur enn yfir.

Bryndís Guðna­dóttir, for­stöðu­maður kjara­mála­sviðs VR, segir að starfs­menn Sternu, sem séu félagar í VR,  haft sam­band og VR sé að vinna í þeirra málum. Hún hvetur starfs­fólk Sternu til að snúa sér sem fyrst til sinna stétt­ar­fé­laga. Fyrr­ver­andi starfs­menn Sternu sem Stundin ræddi við sögðu að þeir ættu flestir inni laun fyrir í það minnsta febr­ú­ar­mánuð og sumir meira. Auk þess ættu allir starfs­menn að fá greidd laun úr mars­mánuð og þeir sem hafa verið í starfi í sex mán­uði hjá fyr­ir­tæk­inu eiga einnig rétt á þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Sterna Travel fyrir árið 2018 nam hagn­aður félags­ins 33,5 millj­ónum króna á árinu en eigið fé var nei­kvætt um 124 þús­und krónur. Tap fyr­ir­tæk­is­ins nam hins vegar 25 millj­ónum króna árið 2017 og 23 millj­ónum króna árið 2016. Sterna var að fullu í eigu Icelandic Tourist Group ehf en stærsti eig­andi var Benedikt Gísli Guð­munds­son sem átti 86,72 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár