Bernie á toppnum

Bernie Sanders þykir enn lík­leg­astur til að hljóta til­nefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins sem for­seta­fram­bjóð­andi í kom­andi kosn­ingum gegn Donald Trump. Skiptar skoð­anir eru um hvort hann sé of rót­tækur vinstri­maður til að höfða til fjöld­ans eða hvort hann sé einmitt eina von flokks­ins um að koma í veg fyrir þaul­setu Trumps. Millj­arða­mær­ing­ur­inn Michael Bloomberg sækir nú fast á hæla Sanders í skoð­ana­könn­unum.

Bernie á toppnum

Frétta­stöðin CNN tekur dag­lega saman með­al­tal allra nýj­ustu kann­ana í for­vali Demókrata og að jafn­aði er Bernie Sanders þar enn fremstur með tæp 30% atkvæða og um það bil tíu pró­sentu­stiga for­skot á næsta mann. Vikum saman hefur sá maður verið Joe Biden, sem var vara­for­seti Baracks Obama, en Michael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York, virð­ist síð­ustu daga hafa skot­ist fram fyrir Biden og náð öðru sæt­inu eftir mikið aug­lýs­inga­flóð.

Það er oft talað um auð­æfi Bloombergs án þess að fólk geri sér fylli­lega grein fyrir hversu stjarn­fræði­leg þau eru í raun og veru. Bloomberg er sam­kvæmt einum lista níundi rík­asti maður í öllum heim­inum í dag, marg­falt rík­ari en Donald Trump getur nokkurn tím­ann látið sig dreyma um að verða. Eignir borg­ar­stjór­ans fyrr­ver­andi eru í dag metnar á allt að átta þús­und millj­arða króna og gæti hann senni­lega staðið straum af öllum útgjöldum íslenska rík­is­ins næsta ára­tug eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár