Gildi ólíkra reynsluheima, þungarokk og þúsaldarpopp

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 24. jan­úar til 6. febr­úar.

Gildi ólíkra reynsluheima, þungarokk og þúsaldarpopp

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

HAM

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 24. jan­úar kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 6.990 kr.

Goð­sagna­kennda sveitin HAM hefur verið virk í ríf­lega þrjá ára­tugi og verið inn­blástur fyrir margar kyn­slóðir af rokk­urum og flytj­endum á sker­inu. Síðasta afrek þeirra hefur verið að skapa hljóð­heim­inn fyrir Chromo Sapiens sýn­ing­una með Hrafn­hildi Arn­ar­dóttur, einnig þekkt sem Shoplifter, sem var fram­lag Íslands til Fen­eyjat­ví­ær­ings­ins árið 2019. Plata nefnd eftir verk­inu verður gefin út, en þeim til stuðn­ings til að flytja hana verður bassa­séníið Skúli Sverr­is­son. Auk HAM koma einnig fram tvær aðrar stór­sveitir, hin drunga­lega Kælan Mikla og ræfl­arokksveitin Skelkur í bringu. HAM spilar aftur degi síðar fyrir norðan á Græna hatt­inum.

Franska kvikmyndahátíðin

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 24. jan­úar til 2. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr. á hverja mynd

Franska kvik­mynda­há­tíðin er haldin í 20. skiptið, en á henni býðst gestum að horfa á úrval af nýjum og eldri kvik­myndum. Opn­un­ar­mynd hátíð­ar­innar er Fagra ver­öld, róm­an­tísk gam­an­mynd sem fjallar um mann sem gefið er tæki­færi á því að end­ur­lifa for­tíð sína í þeim til­gangi að bjarga hjóna­band­inu.

Far

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? Til 15. mars
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari sýn­ingu stillir Þórdís Jóhann­es­dóttir ljós­myndum sínum við hlið mynda Ralphs heit­ins Hannams. Ralph var áhuga­ljós­mynd­ari sem skildi eftir sig mikið af verkum, en Þórdís er mynd­list­ar­kona. Þrátt fyrir að nálg­ast mið­il­inn með mis­mun­andi hætti eiga þau það bæði sam­eig­in­legt að stilla ekki upp fyrir mynda­tökur heldur reyna að fanga áhuga­verð form á filmu.

Milli kynslóða

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 9. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Curver Thorodd­sen hefur lengi verið virkur í mynd­listar- og tón­list­ar­sen­unum, en á þess­ari mynd­list­ar­sýn­ingu mæt­ast faðir og sonur á stórum velli og taka hvor annan upp. Sonurinn, sem er ungur drengur, mætir vopn­aður með flygildi og fað­ir­inn hand­leikur 8mm mynda­vél. Í sýn­ing­unni mæt­ast þessi tvö sjón­ar­mið svipað og feðgar sem kasta bolta sín á milli eða kyn­slóðir að takast á.

Land handan hafsins

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 24. jan­úar til 5. apríl
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Land handan hafs­ins er sýn­ing á verkum fimm finnskra lista­manna sem veita inn­sýn í hug­myndir sínar og drauma um betri heim. Á sýn­ing­unni má finna mál­verk, ljós­myndir, mynd­bands­verk og skúlp­t­úra. Samspil mynd­listar og fantasíu er kjarn­inn í verkum lista­mann­anna, en sýn­ingin spyr hvort reynslu­heimur eins hafi meira gildi en ann­ars.

Myrkir músíkdagar

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 25. jan­úar til 1. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði

Það er komið að hinum árlegu Myrku mús­ík­dögum, en á þeim eru spiluð helstu fram­sækin ný verk eftir tón­skáld frá Íslandi og nágranna­löndum okkar. Hátíðin leggur áherslu á til­rauna­kennda tón­list sem blandar ólíkum hefðum og tækni til að skapa eitt­hvað nýtt í svart­nætt­inu.

Mamma klikk!

Hvar? Gafl­ara­húsið
Hvenær? 25. jan­úar til 29. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Mamma klikk! er fjöl­skyldu­sýn­ing sem fjallar um hina tólf ára gömlu Stellu og móður hennar sem er óperu­söng­kona og Stella telur vera klikk­aða. Með hjálp vina og vanda­manna reynir Stella að gera mömmu sína „venju­lega“. Leik­ritið er byggt á sam­nefndri verð­launa­barna­bók eftir Gunnar Helgason, en hann hlaut Íslensku bók­mennta­verð­launin árið 2015 fyrir hana.

Reikistjörnur: BRíET

Hvar? Harpa
Hvenær? 25. jan­úar kl. 14.00
Aðgangs­eyrir: 2.200 kr.

Þús­ald­ar­kyn­slóða­popp­stjarnan BRíET hefur verið afkasta­mikil í dæg­ur­tón­list­ar­lífi þjóð­ar­innar síð­ustu tvö ár og haldið dúnd­ur­tón­leika á flestum hátíðum lands­ins. Búast má við slíku á þessum við­burði sem er hluti af tón­leika­röð­inni Reiki­stjörnur þar sem fjöl­skyldum gefst tæki­færi til að sækja saman tón­leika flutta í sal með ein bestu hljóm­gæði lands­ins.

Vocal Project

Hvar? Gamla bíó
Hvenær? 30. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.200 kr.

Popp­kór­inn Vocal Project fagnar því að svartasta skamm­degið er yfir­staðið og sólin farin að hækka á lofti á þessum tón­leikum. Þar verður minnt á að eftir vetur kemur vor. Á þessum tón­leikum verða flutt lög úr ýmsum áttum, en kór­inn er að und­ir­búa sig fyrir keppn­is­ferð til Póllands.

Túttífrútturnar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 30. jan­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Tút­tífrútt­urnar er nýtil­kom­inn burlesque-hópur í ört vax­andi senu burlesque á Íslandi. Frútt­urnar geta ekki beðið eftir að sýna spenntum og burlesque-þyrstum áhorf­endum ný og fersk atriði, auk eldri atriða sem voru til sýnis í fyrra. Hópurinn varð til eftir nám­skeið hjá burlesque-drottn­ingu Íslands, Margréti Erlu Maack, síð­ast­lið­inn maí.

Benni Hemm Hemm útgáfutónleikar

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 31. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Benna Hemm Hemm áskotn­að­ist mikil frægð á fyrsta ára­tug þess­arar aldar í indí-sen­unni sem var þá alls­ráð­andi. Eftir nokk­urra ára hvíld snýr hann aftur með plöt­una KAST SPARK FAST sem kemur út sama dag og þessir tón­leikar eru haldnir. Með honum koma fram Prins Póló, Kristín Anna Val­týs­dóttir, Kött Grá Pje og fleiri.

Ásgeir, GDRN

Hvar? Háskóla­bíó
Hvenær? 1. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 6.990 kr.

Ásgeir Trausti Ein­ars­son, áður þekktur sem Ásgeir Trausti en nú aðeins Ásgeir, fagnar þriðju plötu sinni, Sátt, – sem heitir Bury The Moon á ensku – en hún kemur út bæði í íslenskri og enskri útgáfu. Hann er að halda út í tveggja mán­aða tón­leika­ferða­lag um Evrópu og Banda­ríkin, en fagnar fyrst útgáfu plöt­unnar hér á landi með GDRN.

Sæborg

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? 6. febr­úar til 31. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Tækni og vís­inda­fram­farir urðu Erró snemma inn­blástur í verk þar sem mæt­ast hið mennska og hið vél­ræna. Hann skoð­aði sér­stak­lega inn­grip tækn­innar í manns­lík­amann og aðlögun manns­lík­am­ans að vél­inni. Verkin vekja spurn­ingar um mörk manns­lík­am­ans og tækn­innar. Á sýn­ing­unni Sæborg eru verk sem end­ur­spegla þessar hug­leið­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár