Speglaði sig í veikindum Helga og Kára

Halldór Auðar Svansson lenti í geð­rofi sem ekki síst má rekja til kanna­bis­reyk­inga. Hann hætti í borg­ar­stjórn til að gæta að geð­heilsu sinni. Nú starfar hann við geð­heil­brigð­is­mál og segir mik­il­vægt að nýta reynslu þeirra sem glímt hafa við geð­sjúk­dóma í mála­flokknum.

Speglaði sig í veikindum Helga og Kára
Hugsað til frænda síns og bróður Í sínum geð­rænu veik­indum varð Halldóri oft hugsað til Helga móð­ur­bróður síns og Kára bróður síns, sem báðir höfðu glímt við slík veik­indi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Halldór Auðar Svansson, sonur Auðar Styr­kárs­dóttur, mátti leggj­ast inn á geð­deild árið 2010 eftir að hafa lent í geð­rofi. Halldór lýsir því þannig að hann hafi misst alla yfir­sýn yfir raun­veru­leik­ann, höf­uðið á honum hafi verið yfir­fullt af rang­hug­myndum og hálf­gerðu mik­il­mennsku­brjál­æði. Hann var hins vegar til­tölu­lega fljótur að jafna sig eftir að hann hætti að reykja kanna­bis, en sú neysla var einn af orsaka­þátt­unum fyrir því að Halldór lenti í umræddu ástandi, að hans sögn. Halldór segir að í eft­ir­leik veik­ind­anna, þegar af honum bráði, hafi honum oft verið hugsað til Helga frænda síns og hans veik­inda, en auð­vitað ekki síður til bróður síns Kára, sem einnig hefur barist við geð­ræn veik­indi, eins og kemur fram hér í blað­inu.

Halldór segir að Helgi frændi hans hafi ekki spilað stóra rullu í hans upp­vexti innan fjöl­skyld­unnar. „Hún var nátt­úr­lega …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár