Ólöf Arnalds hóf sólóferil sinn með hinni rómuðu „Við og við.“ Á erlendri grundu var „Við og við“ valin ein af bestu plötum ársins af Paste Magazine og eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta áratugarins. Ólöf hefur síðan gefið út plöturnar Innundir skinni, Sudden Elevation og Palme. Hún hefur leikið á tónleikum víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Fjöldi erlendra miðla hafa fjallað um Ólöfu og verk hennar. Mætti þar nefna The New York Times, The Guardian, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut.
Hún hefur nú samið öll lögin sem eiga að vera á fimmtu breiðskífu hennar, sem mun bera nafnið „Tár í morgunsárið“ og verður á íslensku. Ólöf safnar nú fyrir upptöku hennar á Karolina Fund.
[adspot]Ólöf segist ekkert geta gert að því að þurfa alltaf að vera að búa til tónlist. „Það eru nokkur ár liðin frá útgáfu síðustu plötunnar minnar svo það voru mjög mörg lög og textar búin að hlaðast upp. Ég er svo heppin að hafa fengið tækifæri til að vinna í Sundlauginni hljóðveri á ný. Við og við var hljóðrituð þar og Innundir skinni, svo þetta er svolítið eins og að koma heim. Ég er byrjuð taka upp þar núna. Ég varð bara að fá leyfi frá Kjartani Sveinssyni til að byrja að tappa einhverju af þessu efni af. Svo það er eins gott að ég nái markinu.“
Að sögn Ólafar eru yrkisefni hennar yfirleitt mjög persónuleg. „Ég hef eiginlega aldrei kunnað neitt annað. Gítar og rödd verða í aðal hlutverki en svo verða líka önnur hljóðfæri þar sem mig langar og þar verða vel valdir hljóðfæraleikarar í hverju rúmi.“
Hún segir að á nýju plötunni sé hún á einhvern hátt að snúa aftur heim. „Textarnir verða á íslensku og upptökurnar í Sundlauginni. Ég er ótrúlega þakklát fyrir góðar viðtökur núna strax í byrjun söfnunarinnar og vona að það haldi áfram að ganga svona vel!“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir