Spilamiðstöð sem eflir félagsleg tengsl og sköpunarkraft

Fram­kvæmdaglaðir Norð­lend­ingar safna fyrir rekstri spila­sal­ar­ins Goblin á Akureyri þar sem þau vilja bjóða upp á aðstöðu fyrir skap­andi spila­mennsku þar sem lögð er áhersla á skjá­lausa skemmtun.

Ásta Hrönn Harð­ar­dóttir og Þor­steinn Mar­in­ós­son eru sann­ar­lega fram­kvæmdaglatt fólk og óhrædd við að feta nýjar slóðir. Dag einn stukku þau út í djúpu­laug „nör­da­heims­ins“ og má segja að þau séu nú djúpt sokkin.

Sú ákvörðun, með aðstoð góðra vina og vanda­manna, varð til þess að nú er risin upp fyrsta verslun sinnar teg­undar á Akureyri, spila­sal­ur­inn Goblin, ásamt því sem þau kalla „skap­andi spila­mið­stöð“. Þar kemur fólk saman á ýmsa spila­tengda við­burði, til spila og spjalla.

[adspot]Aðal­á­hersla Ástu og Þor­steins er á félags­lega- og menn­ing­ar­lega þætti borð­spil­anna. Spila­sal­ur­inn er því hjarta rekstr­ar­ins. Þetta byrj­aði allt sem lítil hug­mynd, en hefur nú undið upp á sig og er ljóst að þörfin fyrir aðstöðu sem þessa er lang­þráð á svæð­inu. Því ákalli vilja þau mæta og safna því fyrir upp­bygg­ingu á spila­að­stöð­unni á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Í raun má segja að hug­myndin af verk­efn­inu hafi kviknað fyrir um 20 árum, þegar ég fór með bróður mínum í fyrsta skipti inn í Nexus í Reykja­vík, sem þá var stað­sett á Hverf­is­göt­unni,“ segir Ásta.

„Þarna upp­götv­aði ég alveg nýjan heim. Mjög öðru­vísi, en heill­andi þrátt fyrir að ég skildi nú ekki mikið í mörgu því sem þarna var til sölu. Okkur systkin­unum er spila­mennska í blóð borin, alin upp við skák, félags­vist og spilað ófá borð­spilin saman svo ég tengdi þó við margt. Systkini mín voru þarna búin að kynn­ast spilum á borð við Warhammer, Magic the Gather­ing og D&D og ég að taka nám­skeið í nýsköpun.“

Ásta segir hug­mynda­fræð­ina í kringum öðru­vísi spil áhuga­verða, spil sem eru mjög skap­andi, eins og hlut­verka­spil. „Ég fór að velta þessum bransa fyrir mér. Við byrj­uðum svo að leika okkur með hug­myndir um að opna svona búð á Akureyri, en svo lagð­ist sú hug­mynd í dvala um nokk­urt skeið.“

„Svo kom að þeim tíma­punkti löngu síðar að ég vildi gera eitt­hvað nýtt og stofna mitt eigið fyr­ir­tæki. Þá vakn­aði þessi hug­mynd hjá mér aftur, því bæði börnin mín og systk­ina­börn voru komin með brenn­andi áhuga á þessum heimi. Upp­haf­lega ætl­uðum við Steini bara að reka „litla vef­verslun“ með smá lag­er­að­stöðu á Akureyri. En eitt leiddi af öðru og oft þegar við fáum hug­myndir saman, verða þær oft aðeins stærri en við ætl­uðum og ger­ast oft mjög hratt!“

Skjálaus samvera

Ásta segir að verk­efnið hafi loks farið af stað þar sem þau kynnt­ust frá­bærum og öfl­ugum hópi spil­ara.

„Þar fengum við svo rosa­lega jákvæðar og góðar mót­tökur og ómet­an­legan stuðn­ing í því sem við vorum að gera að bolt­inn fór að rúlla. Það sýndi okkur hversu jákvætt og vald­efl­andi sam­fé­lag er í kringum þessi spil. Við átt­uðum okkur betur á mik­il­vægi þess að skapa þarna ákveðna miðju í bænum til að gera það auð­veld­ara hitt­ast og tengj­ast öðrum með sömu áhuga­mál.“

Þannig varð til áhug­inn á að reka spila­mið­stöð. „Þessi frá­bæri hópur fer svo bara stækk­andi og erum við alltaf að kynn­ast nýju, skemmti­legu og skap­andi fólki,“ segir Ásta.

Þema verk­efn­is­ins er „skap­andi spila­mið­stöð“. „Það felur í sér að við leggjum áherslu á spil sem efla félags­leg tengsl og sköp­un­ar­kraft. Til þess að skapa góða og þægi­lega stemn­ingu þurfum við hlý­legt og nota­legt rými. Einnig að hafa ýmsa auka­hluti og hús­gögn sem þarf fyrir spilin til staðar. Því söfnum við fjár­magni fyrir bæði aðföngum og vinnu, til þess að geta haft aðstöð­una opna öllum án end­ur­gjalds. Aðstaðan er opin spila­á­huga­fólki til afnota á opn­un­ar­tíma versl­un­ar­innar og eru þar ýmsir skemmti­legir við­burðir flesta daga sem vert er að kynna sér.“

Kjarninn í starf­sem­inni er áherslan á skjá­lausa sam­veru.

„Okkur finnst afar mik­il­vægt að börn og full­orðnir stundi áhuga­mál sem styrkja félags­leg tengsl og efla skap­andi hugsun en týni sér ekki í skjá­tækjum. Það er eitt af því sem við erum hvað stolt­ust af við spila­sal­inn okkar. Hjá okkur er tæki­færi til þess að gleyma sér við skjá­lausa skemmtun. Það er eitt­hvað sem okkur er mjög hug­leikið. Við teljum spila­sal­inn geta þjónað því mik­il­væga hlut­verki að vera frið­sælt afdrep í hraða nútím­ans,“ segir Ásta.

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár