Búa til vistvæn leikföng og vörur fyrir börn

Tveir Íslend­ingar í Noregi safna fyrir næstu fram­leiðslu á nýrri leik­fanga­línu á Karolina Fund.

Forest Kids Norway er leik­fanga­fram­leið­andi sem rekin er af tveimur Íslend­ingum, Ólafi Stef­áns­syni og Lilju Björg Eysteins­dóttur og er fyr­ir­tækið stað­sett í litlum bæ í suð­ur­hluta Noregs. Þau hand­smíða leik­fanga­vörur og hus­gögn úr tré sem ætlað er að hjálpa börnum að skapa þrosk­andi upp­götv­anir í gegnum leik, bæði með lík­am­legri hreyf­ingu og með því að bjóða upp á áskor­anir sem stuðla að sjálf­stæði og sjálfs­trausti með ein­földum upp­götv­unum og leik. Flest leik­föngin eru byggð á Montess­ori hug­mynda­fræð­inni.

Ólafur segir hug­mynd­ina að verk­efn­inu hafa vaknað fyrir þremur árum. „Þá veikt­ist ég alvar­lega þar sem ég greind­ist með krabba­mein og fór í stóra aðgerð. Eftir það fekk eg ekki vinnu vegna þessa, svo ég fékk þessa hug­mynd þvi að ég hef alltaf verið mjög virkur og skap­andi og hef mjög gaman að því að vinna með hönd­unum. Það má segja að ég sé aldrei hug­mynda­snauður. Þannig að þessi hug­mynd kom upp sem áhuga­mál til að byrja með. Við byrj­uðum að hanna og búa til barna­leik­föng og pökk­uðum þeim í litla kjall­ar­anum heima hjá okkur. Í dag leigjum við meira áber­andi stað og seljum leik­föngin okkar á vef­síð­unni okkar.“

[adspot]Vörurnar eru nú þegar seldar í Noregi, Banda­ríkj­unum, Kanada, Íslandi og 30 öðrum löndum. Forest Kids Norway er skrá­sett vöru­merkið í tveimur fyrst­nefndu lönd­unum.

Hann segir að söfn­unin á Karolina Fund snú­ist um að fá fjár­magn til að hefja fram­leiðslu á nýrri leik­fanga­línu. Það sé mikið starf að fram­leiða og mark­aðs­setja leik­föngin. „Við þurfum aðstoð við að koma fyr­ir­tæk­inu og vörum þess á næta stig. Það er hægt að styrkja okkur með því að kaupa gæða­vör­urnar okkar í gegnum Karolina Fund á frá­bærum afslætti.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár