Drinni er listamannsnafn Andra Kristinssonar. Hann er gítarleikari, söngvari, og laga- og textasmiður. Drinni er heilinn og sálin á bak við verkefnið Drinni & the Dangerous Thoughts sem í sumar gaf út plötuna Hávær ljóð á stafrænu formi. Nú á að koma henni á vínyl.
Andri segir hugmyndina að verkefninu hafa vaknað úr neyð. „Ég hafði planað að flytja til Belgíu í lok mars 2020. Af augljósum ástæðum (covid19) varð lítið úr því þá og ég festist á Íslandi svo ég hafði ekkert betra að gera en semja lög og vona að hlutirnir skánuðu einhvern tímann. Þó eru þrjú lög þarna sem ég hafði samið löngu áður en mér þótti passa vel við þemað. Drinni & The Dangerous Thoughts er í raun sólóverkefnið mitt, hugmyndin er að tónlistarmenn geta komið og farið og lögin eru útsett með þeim sem eru í bandinu hverju sinni. Nú eftir að takmörkunum var aflétt eftir covid bý ég í Belgíu og er kominn með nýjan kjarna tónlistarmanna sem ég mun útsetja með nýtt efni.“
Hann neitar því ekki að þema plötunnar sé oft ansi þunglyndislegt. „Hatur á morgnum, óhjákvæmilegur dauðinn og eymdin þar til hann loksins kemur, en það er húmor þarna líka.“
[adspot]Stefnt er að því að gefa út plötuna Hávær ljóð undir merkjum plötuútgáfunnar MBS skífur eða Mannfólkið breytist í slím skífur, sem er samstarfsverkefni nokkra tónlistarmanna á Akureyri og hafa allt frá árinu 2010 gefið út tónlist undir sameiginlegum merkjum. „MBS hefur einnig staðið fyrir tónlistarhátíðinni Mannfólkið breytist í slím, sem haldin er árlega á Akureyri síðan 2018. Meginstefna og markmið hátíðarinnar er að gera jaðar- og grasrótartónlist hátt undir höfði þar sem lögð er sérstök áhersla á tónlist úr nærumhverfinu. Ég hef t.a.m. komið fram á tónlistarhátíðinni árlega frá 2018 með þremur atriðum. MBS hefur áður gefið út eina plötu á vínyl sem kom út 2021 og nú er stefnt að annarri útgáfu. Markmiðið með söfnuninni er ekki aðeins að gefa út Hávær ljóð heldur að skapa grundvöll fyrir reglulegum útgáfum sem rata í hinn efnislega heim . Framhaldið og markmiðið er því að reyna að byggja upp vettvang til frekari útgáfu og sköpunar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir