Ljóðin féllu eins og hvítar fjaðrir af himnum ofan

Ólöf Sverr­is­dóttir leik­kona ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi og við það fóru ljóðin að koma til hennar í svefn­rof­anum á morgn­ana. Afrakst­ur­inn ber heitið „Hvítar fjaðrir“ og safnað er fyrir útgáfu ljóða­bók­ar­innar á Karolina fund.

Ólöf Sverrisdóttir ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi í eitt ár. Úr varð ljóðabókin Hvítar fjaðrir.
Ólöf Sverr­is­dóttir ákvað að skrifa ljóð á hverjum degi í eitt ár. Úr varð ljóða­bókin Hvítar fjaðrir. Mynd: Eva Schram

Leik­konan Ólöf Sverr­is­dóttir hefur starfað sem sögu­kona um ára­bil hjá Borg­ar­bóka­safni Reykja­víkur. Hún hefur kennt leik­list í ára­tugi, bæði börnum og full­orðnum en hún og Ólafur Guð­munds­son reka leik­list­ar­skól­ann Opnar dyr.

Ólöf hefur nýverið lokið meistara­gráðu í rit­list frá Háskóla Íslands en hefur líka sjálf kennt rit­list hjá End­ur­menntun HÍ. Hún er nú að gefa út sína fyrstu ljóða­bók en áður hefur hún gefið út barna­sög­una Sóla og sólin.

En Ólöf hefur skrifað ljóð lengi. „Eig­in­lega síðan ég lærði að lesa og skrifa. Með hléum samt,“ segir hún. „En þessi ljóð komu til mín aðeins öðru­vísi. Ég tók ákvörðun að skrifa ljóð á hverjum degi en ég heyrði við­tal við aðra skáld­konu sem hafði gert það í eitt ár. Þegar ég hafði ákveðið það fóru þau að koma til mín í svefn­rof­anum á morgn­ana. Síðan ákvað ég að pósta ljóð­unum á Facebook-prófíl­inn minn áður en ég næði að hugsa of mikið og fara að efast um að þau væru nógu góð.“

[adspot]Ólöf við­ur­kennir þó að hún hafi stundum breytt þeim aðeins seinna um dag­inn. Allavega leið­rétt staf­setn­inga- og mál­fræði­villur ef hún hafi séð slíkt. „Það kom líka fyrir að ferlið héldi áfram í heita pott­inum og ég bætti ein­hverju við þegar ég hafði tíma.“

Það kom Ólöfu á óvart hversu margir urðu hrifnir af ljóð­unum og hún var hvött til þess að gefa þau út. „Mér fannst stundum eins og þau væru frekar eins og skila­boð af annarri vídd sem ég setti í ljóða­form. Stundum birt­ust myndir eða mig dreyndi eitt­hvað sem ég setti í orð eða ljóða­form. Allavega er ég mjög glöð að aðrir kunnu að meta þennan texta og mér fannst nauð­syn­legt að gefa þau út áður en ég héldi áfram. Ég veit ekki hvort næstu ljóð verði í þessum stíl og fannst ég verða að loka þessum kafla með þess­ari bók.“

Las Svartar fjaðrir upp til agna sem unglingur

Nafnið á ljóða­bók­inni kom út frá nokkrum ljóðum þar sem hvítar fjaðrir koma fyrir. „En í raun­inni fannst mér hug­mynd­irnar koma eins og fjaðrir að ofan,“ segir Ólöf.

„Ég tala um mun­inn á svörtum og hvítum fjöðrum en þar er ég líka að vitna í ljóða­bók Davíðs Stef­áns­sonar Svartar fjaðrir en þau ljóð las ég upp til agna sem barn og ung­lingur. Þessi ljóð eru mjög ólík þeim og ég gæti auð­vitað aldrei farið að bera mín ljóð saman við þá snilld. En nafnið eða tit­ill­inn lét mig ekki í friði svo ég lét undan. Stundum er eins og maður fái ekki alveg að stjórna flæð­inu. Flæðið tekur yfir. Þess vegna veit ég eig­in­lega ekk­ert hvað kemur næst,“ segir Ólöf.

Hún seg­ist vona að ein­hverjir vilji hjálpa sér að mæta kostn­aði við útgáf­una en hún kemur líka heim til fólks og les upp eða sendir Sólu sögu­konu til að segja sögur ef fólk velur það.

„Börnin elska Sólu og það er ágætis díll sem boðið er uppá hérna á Karólina fund.“

Hér má nálg­ast söfnun fyrir útgáfu Hvítra fjaðra á Karolina fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár