Safnar fyrir uppbyggingu á Braggaparkinu eftir að sjór flæddi inn og eyðilagði það

Eiki Helgason telur að fólk eigi og megi eyða pen­ingum í hobbíin sín. Hann ákvað að eyða sínum pen­ingum í að byggja upp inn­an­húsa­stöðu fyrir meðal ann­ars hjóla­bretti. Svo flæddi sjór inn og olli skemmdum. Og nú þarf að laga skemmd­irnar.

Eiki Helgason með ungum notendum Braggaparksins.
Eiki Helgason með ungum not­endum Braggap­arks­ins. Mynd: Aðsend

Eiki Helgason ákvað að taka málin í eigin hendur og koma upp inn­an­húss aðstöðu fyrir hjóla­bretti, hlaupa­hjól, línu­skauta og BMX á Akureyri en það hefur verið draumur hans að hafa slíka aðstöðu síðan hann var tíu ára gutti. Eftir að hafa fengið litla und­ir­tekt við hug­mynd­ina hjá bænum ákvað hann að gera þetta á sinn kostnað. Fyrr á þessu ári flæddi hins vegar sjór inn í aðstöð­una, sem heitir Braggap­arkið, og olli skemmdum sem rekst­ur­inn getur ekki staðið undir að laga. Því er safnað fyrir við­gerð á aðstöð­unni á Karolina Fund.

„Mig hefur alltaf langað að hafa inn­an­húss aðstöðu hérna í bænum fyrir þessar íþróttir því að veðrið á Íslandi er ekki alltaf með manni í liði hérna þar sem að rign­ing, vindur og snjór koma í alveg veg fyrir að það sé hægt að stunda þær.

Ég var búinn að hafa ein­hverja hug­mynd lengi um það hvernig ég vildi gera þetta en það var alltaf erfitt að finna laust hús­næði sem hent­aði á Akureyri. Við vorum smá hópur sem fórum á fund með bænum en það var sama vanda­mál, ekki til hús­næði og pen­ingar í svona, þannig að ég ákvað að prófa að demba mér meira í mína hug­mynd.“

[adspot]Eiki fór að fylgj­ast með hús­næði og hringja og kanna hvað væri í boði. „Á end­anum þegar ég var alveg að gef­ast upp þá sá eg að þessir braggar voru að losna þannig að ég hafði sam­band við eig­and­ann sem leist vel á að leigja mér en svo seld­ist húsið!“

Hann gafst þó ekki upp, hafi upp á nýja eig­and­anum og spurði hverjar hans áætl­anir væru og hvort hann hefði áhuga á að leigja sér húsið. „Hann tók mjög vel í það, við græj­uðum samn­ing­inn og við félag­arnir byrj­uðum að smíða annan sal­inn. Svo þegar hann var klár þá var ég í raun­inni alveg búinn með allan pen­ing­inn minn. Þá fékk ég sím­tal um að Reykja­vík lang­aði að fá úti-skatepark á Miðbakka og spurðu hvort ég gæti smíðað það. Ég tók því auð­vitað um leið og allt sem ég skráði á mig sem laun þar fór beint í að geta haldið áfram með seinni sal­inn.“

Eiki seg­ist hafa vitað frá upp­hafi að þetta yrði ekki auð­veldur rekstur. Hann var raunar búinn að sjá fram á tap­rekstur en seg­ist alltaf hafa horft á verk­efnið sem sitt hobbí og að honum finn­ist að fólk megi eyða pen­ingum í hobbíin sín. „Frá því ég opn­aði þá hef ég hins vegar alveg séð hvað það var mikið þörf á þessu hér því það er alveg slatti af krökkum og full­orðnum sem nýta sér aðstöð­una. Við bjóðum líka upp á sér full­orð­ins kort fyrir 16 ára og eldri sem veita aðgang allan sól­ar­hring­inn. Það er mynda­véla­kerfi sem fylgist með og auð­velt að finna út ef ein­hver kemur inn í ein­hverjum leið­in­legum til­gangi.“

Að sögn Eika þá gerir það fyr­ir­komu­lag það að verkum að aðstaðan hans er afþrey­ing sem ungt fólk getur valið sér val­kost við skemmt­ana­lífið á kvöldin. „Það er mjög gaman að sjá hvað margir kjósa þetta fram yfir djam­mið og þar með hefur þetta mikið for­varn­ar­gildi. Gallinn við rekstur sem er svona +/- núll er að þegar eitt­hvað kemur upp eins og eitt stykki flóð, sem ég var ekki tryggður gegn, þá er eng­inn vara­sjóður til að hend­ast bara í fram­kvæmdir á núll einni nema það komi enn og aftur bara úr eig­inn vasa.“

Þess vegna réðst Eiki í söfnun í gegnum Karolina Fund. Til að athuga hvort fólk væri til í að aðstoða upp­bygg­ing­una því margt smátt geri eitt stórt. „Þótt þetta sé kannski ekki ein­hver gígantísk upp­hæð sem þarf til að koma þessu í stand aftur að þá er hún samt mjög stór fyrir einn mann að taka á sig. Þannig að ég vill bara nota tæki­færið og segja takk kær­lega við alla sem nú þegar hafa styrkt þetta og þau fyr­ir­tæki sem hafa lagt þessu lið. Þær mót­tökur urðu að minnsta kosti til þess að ég fór strax að huga að við­gerðum sem standa nú yfir.“

Hér er hægt að styrkja Braggap­arkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár