Vill gefa út valdeflandi feminískt verk á fagurblárri kassettu

Platan Lipstick On með Fríðu Dís Guð­munds­dóttur kom nýverið út. Hún safnar nú fyrir útgafú hennar á vínyl og kasettu á Karolina Fund.

Fríða Dís Guð­munds­dóttir gaf nýverið út sína aðra sóló­plötu sem ber heitið Lipstick On og hefur hlotið ein­róma lof gagn­rýnenda. Fríða var áður í hljóm­sveitum á borð við Klassart, Eldum og Trilogiu en leggur nú ofurá­herslu á sínar eigin laga­smíðar. Á döf­inni eru tvennir útgáfu­tón­leikar Lipstick On í októ­ber, einir í Hljóma­höll og aðrir á Sirkus en hægt er að næla sér í miða á tón­leik­ana í Hljóma­höll á tix.is.

Aðspurð um hvernig hug­myndin að Lipstick On hafi kviknað segir Fríða að lista­gyðjan hafi verið henni ansi gjöful und­an­farin tvö ár. „Lipstick On verður í raun­inni til út frá ann­ari plötu sem ég hafði þegar samið og byrjuð að hljóð­rita. Lögin héldu samt áfram að streyma til mín og allt í einu var ég komin með banka af lögum sem áttu ekki beint saman. Ég var að viðra hug­myndir mínar og vand­ræð­ast með að ráð­ast í að hljóð­rita 20 laga plötu þegar Haraldur Svein­björns­son félagi minn spyr mig hvort ég sé kannski að vinna í tveimur plötum. Auðvitað! Eftir að ég stokk­aði lög­unum upp var það deg­inum ljós­ara að ég væri með tvö nokkuð ólík verk á prjón­unum og þegar strúkt­úr­inn var kom­inn var auð­veld­ara að stilla lög­unum saman og semja fleiri til að skapa tvö heild­stæð verk. Lipstick On er annað þeirra.“

[adspot]Hún segir að Lipstick On sé vald­efl­andi femínískt verk þar sem spil­a­gleði og flæði eru í algleym­ingi. „Á plöt­unni er að finna frum­samið, popp­skotið rokk með áhrifum úr ýmsum áttum, sér í lagi frá sjö­unda og tíunda ára­tugnum. Rauði þráð­ur­inn á plöt­unni er að skapa pláss til að njóta lífs­ins þrátt fyrir þau krefj­andi verk­efni sem okkur eru falin, setja á á sig vara­lit og mæta ótt­anum og öllu því sem heldur aftur að okkur.“

Fríða seg­ist elska rómans­inn við að hlusta á tón­list á físísku formi. End­ur­komnar vin­sældir vín­yl­plöt­unnar á und­an­förnum árum henti því en Fríða vill líka gefa plöt­una sína út á kasettu. „Það gerir per­sónu­lega mikið fyrir mína tón­list­ar­upp­lifun og ég vil því geta boðið fólki að njóta minna verka á þennan hátt. Á plöt­unni er líka að finna lag sem heitir Cats & Cassettes og því kom ekki annað til greina en að fram­leiða 50 kasettur í stíl. Sjálf hlust­aði ég mikið á kasettur í æsku og alveg fram eftir ung­lings­aldri, mamma gaf mér t.d. kasettur með Elvis Presley og Roy Orbison og svo fór ég ekki út úr húsi nema með aðra plötu Prodigy, Music for the Jilted Generation, í vasa­diskó­inu. Ég safn­aði fyrir vín­yl­út­gáfu fyrstu plöt­unnar minnar, Mynda­albúm, hjá Karolina Fund og hef af því góða reynslu og ákvað því að fara aftur þessa leið til að standa undir útgáfu­kostn­aði.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár