Hyllir undir endalok búra í varphænubúskap – bringubeinsskaði gæti frekar aukist en hitt

Útlit er fyrir að búr muni „að mestu“ leggj­ast af á íslenskum varp­hænu­búum um næstu ára­mót líkt og fram­lengdur frestur sem gef­inn var á gild­is­töku reglu­gerðar þar um gerir ráð fyrir. Áratugur er síðan búr voru bönnuð í öðrum Evr­ópu­ríkjum.

Varphænum hefur lengst af verið haldið í búrum en eftir að krafa var gerð um lausagöngu hafa pallakerfi tekið við.
Varp­hænum hefur lengst af verið haldið í búrum en eftir að krafa var gerð um lausa­göngu hafa palla­kerfi tekið við. Mynd: EPA

Stefán Már Sím­on­ar­son, for­maður Félags eggja­bænda og fram­kvæmda­stjóri Nesbús, telur að um næstu ára­mót verði noktun búra í eld­is­húsum varp­hæna hætt „að mestu“. Til stóð að banna að halda hænur í búrum á eggja­búum um síð­ustu ára­mót en fyrr­ver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, ákvað að gefa bændum árs frest til við­bótar til að losa sig við búrin.

Reglu­gerðin var kynnt og ákveðin með sex ára fyr­ir­vara svo bænd­urnir hafa um næstu ára­mót fengið sjö ár til að und­ir­búa umskiptin. Þau eru kostn­að­ar­söm því í stað búr­anna hafa bændur víða um lönd gripið til þess ráðs að setja upp svokölluð palla­kerfi, kerfi sem miða að því að koma sem flestum dýrum fyrir í hverju húsi. Þannig hefur krafa um lausa­göngu hæna, sem varð hávær fyrir mörgum árum, verið upp­fyllt. Slíkur bún­aður er nú þegar til staðar á mörgum búum hér á landi, að minnsta kosti að hluta.

[adspot]

Stefán Már segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að þeir bændur sem ekki verði búnir að klára breyt­ing­arnar, þ.e. að leggja búrin af, séu þeir sem ætli að hætta fram­leiðslu. „Eftir því sem ég best veit þá munu tvö lítil bú hætta og í öðru til­vik­inu er um aldr­aðan bónda að ræða,“ segir hann. „Það verður held ég ekki mikil fram­leiðslu­minnkun vegna þessa og eflaust munu aðrir stækka eitt­hvað á móti.“

[links]Brigitte Brugger, sér­greina­dýra­læknir í heil­brigði og vel­ferð ali­fugla hjá Mat­væla­stofnun (MAST, segir að sam­kvæmt reglu­gerð­inni og bráða­birgða­á­kvæð­inu sem sett var í fyrra skuli notkun á hefð­bundnum búrum hætt 31. des­em­ber 2022. „Svo að það er rétt skilið að ekki er heim­ilt að halda hænur í hefð­bundnum búrum eftir það,“ segir hún við Kjarnann.

Í reglu­bundnu og sér­stöku eft­ir­liti fylgist Mat­væla­stofnun með að ákvæð­inu sé fram­fylgt. Á þessum tíma­punkti liggja ekki fyrir upp­lýs­ingar hjá stofn­un­inni hver fram­vinda hjá eggja­fram­leið­endum er og hvað það eru mörg hús í dag sem eru ennþá í notkun þar sem hænur eru haldnar í hefð­bundnum búrum.

Hins vegar er Mat­væla­stofnun með upp­lýs­ingar um það hversu mörg hús eru til á land­inu sem hafa verið tekin út sam­kvæmt reglu­gerð­inni og sem hafa upp­fyllt skil­yrði hennar varð­andi húsa­kost, bún­aði og þekk­ingu.

„Þau hús skipt­ast þannig að 40% húsa eru með hefð­bundnum búrum og 60% húsa eru lausa­göngu­hús,“ segir Birgitte.

Búr voru bönnuð með sam­bæri­legri reglu­gerð í öðrum Evr­ópu­ríkjum árið 2012 eða fyrir ára­tug. Íslenskir bændur hafa því fengið mjög rúman frest til aðlög­unar.

Þótt búrin verði bönnuð verður eitt helsta heilsu­far­s­vanda­mál varp­hæna í þaul­eldi ekki úr sög­unni. Bringu­beins­skaði sem er tal­inn hrjá um 85 pró­sent allra varp­hæna í stórum eld­is­húsum, hér sem ann­ars staðar, hlýst ekki af ver­unni í þröngum búrum. Tvennt er talið valda því að svo mik­ill fjöldi hæna er ýmist eð sprungið eða brotið bringu­bein. Annars vegar sú stað­reynd að litlar hænur eru látnar verpa mjög mörgum eggjum og stórum. Vís­inda­menn í Danmörku, sem rann­sakað hafa málið, segir þetta geta verið skað­legt fyrir dýrin.

Hitt er svo „brot­lend­ing“ hæna á bún­aði í eld­is­hús­unum. Hænur eru ekki góðir flug­fuglar en þær flögra þó um, sér­stak­lega ef þær fyll­ast ofsa­hræðslu. Þá geta þær lent á inn­rétt­ingum í eld­is­hús­unum, „brot­lenda“ líkt og Birgitte orð­aði það í ítar­legum frétta­skýr­ingum Kjarnans um málið í fyrra.

Æviskeið varp­hænu er stutt. Er ung­arnir koma úr eggi er eins og gefur að skilja um helm­ing­ur­inn hanar. Ungarnir eru kyn­greindir við útungun og han­arnir aflífaðir. Nota má tvenns konar aðferðir við það hér á landi; gösun með koldí­oxíði og mölun (e. shredd­ing).

Hænurnar eyða hins vegar um það bil fyrstu fjórum mán­uðum lífs síns í svoköll­uðum upp­eld­is­húsum en um það leyti sem þær verða kyn­þroska og byrja að verpa eru þær fluttar í varp­hús. Er þær ná um 16-18 mán­aða aldri eru þær drepnar með gösun, hræj­unum fargað og nýr varp­hænu­hópur fluttur inn í húsin.

Sársaukafullt

Hæna með bringu­beins­skaða ber það ekki endi­lega utan á sér. Hún getur jafn­vel haldið áfram að verpa. Brotin bein valda þeim að sjálf­sögðu sárs­auka, líkt og öðrum dýrum með sam­bæri­leg mein.

Engar rann­sóknir hafa verið gerðar á bringu­beins­skaða varp­hæna hér á landi en allar aðstæður eru þær sömu og t.d. í Danmörku, svo yfir­færa má rann­sókn­ar­nið­ur­stöðu vís­inda­manna þar í landi.

Með því að hætta með búrin geta hæn­urnar „meira sýnt sitt eðli­lega atferli,“ sagði Brigitte um ávinn­ing­inn af reglu­gerð­ar­breyt­ing­unni. „Í búr­unum geta þær lítið annað gert en að drekka og éta. Þær geta ekki sand­baðað sig. Þær geta ekki hvílst á prikum eins og þeim er eðli­legt. Þær geta ekki dregið sig í hlé til að verpa í hreiðri. Þannig að með því að taka búrin þá fá þær að minnsta kosti þennan aðbúnað, geta hreyft sig miklu meira og það styrkir líka beinin.“

Það er þó ekki þannig að þessi breytti aðbún­aður muni útrýma bringu­beins­skaða. Síður en svo. „Bringu­beins­skaði er vanda­mál hjá hænum í búrum en hann er ekk­ert minna vanda­mál hjá lausa­göngu hænum af því að þá eru meiri líkur á árekstrum,“ benti Birgitte á í sam­tali við Kjarnann í fyrra.

Á Íslandi eru að jafn­aði um 260 þús­und varp­hænur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár