Tvö fyrstu skotin hæfðu tarfinn í höfuðið – MAST með frekari rannsókn í gangi

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Mat­væla­stofnun fóru fyrstu tvö skot hval­veiði­manna sem lönd­uðu lang­reyð­art­arfi með fjórum sprengiskutlum í sér á mánu­dag í höfuð hvals­ins. Stofn­unin er nú með hval­veiðar sum­ars­ins til „frek­ari rann­sóknar“.

Hér er unnið að því að fjarlægja einn af fjórum sprengiskutlum úr hvalnum á mánudag.
Hér er unnið að því að fjar­lægja einn af fjórum sprengiskutlum úr hvalnum á mánu­dag. Mynd: Hard to Port

Eft­ir­lits­dýra­læknir á vegum Mat­væla­stofn­unar var við­staddur er lang­reyð­art­arfi var landað í Hval­firði á mánu­dag, en fjórir sprengiskutlar voru not­aðir við veið­ina. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá dýra­lækn­inum geig­uðu fyrstu tvö skot hval­veiði­manna á bátnum Hval 8 með þeim hætti að þau hæfðu hval­inn of fram­ar­lega, fóru í höfuð hans og sprungu því ekki.

Þetta kemur fram í svari Sig­ur­borgar Daða­dóttur yfir­dýra­læknis Mat­væla­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem óskað var eftir nán­ari upp­lýs­ingum um löndun lang­reyð­art­arfs­ins.[links]

Kjarninn sagði frá því á þriðju­dag að fjórum skutlum hefði verið beitt, sem þýðir að dauða­stríð hvals­ins hefur að lík­indum verið lang­dregið, ein­hvers­staðar úti á mið­unum. Alla jafna á einn sprengiskut­ull að duga til þess að granda hvölum.

Myndir sem sam­tökin Hard to Port, sem berj­ast fyrir því að hval­veiðum við Íslands­strendur verði hætt, birtu af löndun og verkun hvals­ins, sýndu þrjá skutla standa út úr dýr­inu er það kom á landi. Fjórði sprengiskut­ull­inn gekk svo að öllu leyti inn í hold dýrs­ins og kom ekki í ljós fyrr en starfs­menn Hvals hf. hófu að brytja skrokk­inn í sundur á bryggj­unni.

Eins og Kjarninn hefur sagt frá hafa fleiri dæmi verið um að skot hval­veiði­manna geigi við lang­reyð­ar­veiðar á und­an­förnum vikum og fleiri en einn sprengiskutul hafi þurft til að granda þessum miklu skepnum.

Hvalveiðarnar til „frekari rannsóknar“ hjá MAST

Sig­ur­borg segir í skrif­legu svari til Kjarnans að hval­veið­arnar í sumar séu „til frek­ari rann­sóknar hjá Mat­væla­stofnun“ og að í kjöl­farið verði „lagt mat á hvort þær sam­ræm­ist 27. gr. laga um dýra­vel­ferð sem fjallar sér­stak­lega um hvernig staðið skuli að veiðum.“

[adspot]

Eins og fram hefur komið er Mat­væla­stofnun ekki ætlað að hafa reglu­bundið eft­ir­lit með veiðum villtra dýra, en stofn­un­inni er þó almennt ætlað að fram­fylgja lögum um vel­ferð dýra. Í 27. grein þeirra laga segir meðal ann­­ars að ávallt skuli „staðið að veiðum þannig að það valdi dýr­unum sem minnstum sár­s­auka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma“ og að veið­i­­­mönnum sé skylt „að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverk­­um.“ Þá segir einnig í laga­­grein­inni að við veiðar sé „óheim­ilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa lim­­lest­ingum eða kvöl­u­m“.

„Reikna má með að rann­sókn geti tekið ein­hvern tíma,“ segir Sig­ur­borg í svari til Kjarnans.

Ráðherra vill sjá dýraeftirlitsmenn skipaða í áhafnir

Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði í sam­tali við Kjarn­ann nýlega að það væri alveg skýrt í hennar huga að ef atvinnu­greinar sem byggðu á dýra­haldi eða veiðum gætu ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra, ættu þær sér „enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lag­i“.

Svan­dís hefur lagt fram til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að breyt­ingum á reglu­gerð um hval­veið­ar, en breyt­ing­arnar sem ráð­herra leggur til myndi hafa þau áhrif að skip­stjórum yrði skylt að til­nefna einn áhafn­ar­með­lim sem dýra­vel­ferð­ar­full­trúa. Sá ein­stak­lingur þyrfti að sækja nám­skeið hjá Mat­væla­stofn­un, auk þess sem honum væri ætlað að taka upp myndefni um borð og láta eft­ir­lits­dýra­lækni stofn­un­ar­innar í té.

Hvalur hf. hefur sent inn umsögn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda um fyr­ir­hug­aðar reglu­gerð­ar­breyt­ingar ráð­herra, og seg­ist fyr­ir­tækið þar meðal ann­ars telja það „vand­séð, vægt til orða tek­ið, að umþrætta reglu­gerð­ar­breyt­ingar rúmist innan með­al­hófs­regl­unn­ar“ eins og hún hefði verið skýrð og túlkuð og kom fyr­ir­tækið því á fram­færi að það teldi ráð­herra skorta laga­stoð til þess að setja á umræddar kvaðir um dýra­eft­ir­lits­menn.

Hags­muna­sam­tök útgerð­ar­fyr­ir­tækja, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, komust einnig að þeirri nið­ur­stöðu í umsögn sinni um fyr­ir­hug­aðar reglu­gerð­ar­breyt­ingar að við­un­andi laga­stoð væri ekki til stað­ar, auk þess sem hægt væri að ná sömu mark­miðum og reglu­gerð­inni væri ætlað að ná með „öðrum og væg­ari aðferð­u­m.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár