Skoða hvernig framfylgja megi dýravelferðarlögum „enn fastar“

Mat­væla­stofnun er þessa dag­ana með það til skoð­unar hvort, og þá hvernig, opin­berir aðilar geti „enn fastar“ fram­fylgt ákvæðum laga um dýra­vel­ferð að óbreyttri lög­gjöf. Fundað var um við­brögð við skotum sem geiga við hval­veiðar hjá stofn­un­inni á mánu­dag

Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hvalfirði fyrr í mánuðinum.
Kristján Loftsson for­stjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hval­firði fyrr í mán­uð­inum. Mynd: Hard to Port

Mat­væla­stofnun er þessa dag­ana með það til skoð­unar hvort, og þá hvernig, opin­berir aðilar geti „enn fastar“ fram­fylgt ákvæðum laga um vel­ferð dýra hvað hval­veiðar varðar, að óbreyttri lög­gjöf.

Þetta segir Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir hjá Mat­væla­stofnun í skrif­legu svari til Kjarnans, en á mánu­dag­inn var hald­inn fundur innan Mat­væla­stofn­unar um það hver við­brögð stofn­un­ar­innar yrðu við atvikum sem upp hafa komið í hval­veiðum Hvals hf. það sem af er sumri.

Ekki gangi að skjóta stærri dýr með riffli

Eins og Kjarninn hefur sagt frá hafa skot hval­veiði­manna geigað í að minnsta kosti þrí­gang það sem af er hval­veiði­tíma­bil­inu og dauða­stríð hval­anna lengst.

Mat­væla­stofnun fylgist með vel­ferð hvala við hval­veiða út frá skotum í felldum dýrum og skoðar hvar skut­ull hefur hæft dýrið og hvort skutlar séu fleiri en einn í dýri, en eft­ir­lits­dýra­læknir skoðar hvern ein­asta hval sem kemur að landi.

Í svari Sig­ur­borgar til Kjarnans segir að ekki séu þó til neinar sam­an­tektir hjá Mat­væla­stofnun um þessi mál.

[adspot]

Hún útskýrir að ef skot geigi í stór­hveli þannig að sprengiskut­ull­inn sem not­aður er til verks­ins drepi ekki dýrið sam­stundis, verði að skjóta hval­inn aftur og þá með öðrum sprengiskutli.[links]

„Skot með byssu/öfl­ugum riffli í heila til aflíf­unar gengur aðeins hjá smærri hvölum, en gengur ekki við aflíf­una stór­hvela við veiðar,“ segir í svari Sig­ur­borgar.

Hafa ekki reglubundið eftirlitshlutverk – en eiga að fylgjast með velferð dýra

Samkvæmt lögum er Mat­væla­stofnun ekki ætlað að hafa reglu­bundið eft­ir­lit með veiðum villtra dýra, en stofn­un­inni er þó almennt ætlað að fram­fylgja lögum um vel­ferð dýra, þar á meðal því sem fram kemur í 27. grein lag­anna.

Þar segir meðal ann­ars að ávallt skuli „staðið að veiðum þannig að það valdi dýr­unum sem minnstum sárs­auka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma“ og að veiði­mönnum sé skylt „að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverkum.“

Þá segir einnig í laga­grein­inni að við veiðar sé „óheim­ilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa lim­lest­ingum eða kvölum“.

Sem áður segir er Mat­væla­stofnun með til skoð­unar hvort opin­berir aðilar hafi „mögu­leika á að fram­fylgja enn fastar ákvæðum 27. gr. þ.e. að óbreyttri lög­gjöf“ og þá hvernig hægt yrði að gera það.

Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði við Kjarn­ann fyrr í mán­uð­inum, spurð um skot sem þá var vitað að hefðu geig­að, að það væri skýrt í hennar huga að „ef atvinnu­grein­ar, sem byggja á dýra­haldi eða veið­um, geta ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra – eiga þær sér enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lag­i“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár