Svandís: Óásættanlega margir hvalir sem veiddir eru heyja langdregið dauðastríð

Hvorki mat­væla­ráðu­neytið, né und­ir­stofn­arnir þess, hafa upp­lýs­ingar um hvort að verk­lags­reglum við hval­veiðar sé fylgt, segir Svandís Svav­ars­dóttir. „Það er mik­il­vægt að stjórn­völd byggi ákvarð­anir sínar á gögnum og stað­reyndum.“

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er alveg skýrt í mínum huga að ef atvinnu­greinar, sem byggja á dýra­haldi eða veiðum, geta ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra – eiga þær sér enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi.“

Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra við Kjarnann um þær fréttir að skot hval­veiði­manna á skipum Hvals hf. hafi geigað í að minnsta kosti tveimur til­fellum á yfir­stand­andi ver­tíð. Mat­væla­stofnun, MAST, hefur stað­fest við Kjarnann að slíkt hafi átt sér stað við veiðar á lang­reyði í byrjun júlí og sjáv­ar­vernd­ar­sam­tökin Hard To Port segja slíkt hið sama hafa gerst við veið­arnar í fyrra­dag.

[adspot]

Skutull hlað­inn sprengi­efni er not­aður við veiðar á hvölum við Ísland lögum sam­kvæmt. Á slíkt vopn að tryggja að dýrið deyi sam­stundis. En þá þarf skotið að hæfa hold. Ef það fer hins vegar í bein, höf­uð­kúpu líkt og gerð­ist þann 4. júlí, springur sprengiskut­ull­inn ekki. Hlaða þarf byss­una aftur, miða og hleypa af. Það getur tekið margar mín­útur.

[links]„Ekki verður nógu mikil áhersla lögð á mik­il­vægi þess að dýr séu aflífuð á mann­úð­legan hátt við veiðar,“ segir Svandís. Lög og reglur um slátrun dýra í slát­ur­húsum séu skýr og kveði á um að aflífun sé skjót og án þján­ingar. „Um aflífun hvala liggja ekki fyrir nægar upp­lýs­ingar til að segja til um hvort hún sé mann­úð­leg eða ekki,“ heldur hún áfram. „Rannsókn sem unnin var fyrir Fiski­stofu árið 2015 á aflífun 50 lang­reyða bendir til að óásætt­an­lega stór hluti hvala sem eru veiddir í atvinnu­skyni heyi lang­dregið dauða­stríð. Mik­il­vægt er að skera úr um þetta með því að afla betri gagna.“

Svandís segir að við veiðar sé aldrei hægt að tryggja að aflífun eigi sér stað við fyrsta skot, hvort sem verið sé að veiða hvali, fugla eða hrein­dýr. Verk­lags­reglur við hval­veiðar kveði þó skýrt á um að ef skot geigar skuli draga hval að borði og aflífa sem fyrst með skoti í heila.

„Hvorki ráðu­neytið, né und­ir­stofn­arnir þess, hafa upp­lýs­ingar um hvort svo sé gert. Því þarf að breyta og þess vegna hef ég sett í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að reglu­gerð sem skyldar þau sem hafa leyfi til stór­hval­veiða að til­nefna einn úr áhöfn­inni sem dýra­vel­ferð­ar­full­trúa.“ Samkvæmt drög­unum skal hann bera ábyrgð á því að rétt sé staðið að vel­ferð hvala við veiðar, með því að halda skrá yfir allar aðgerðir er varða veið­arnar, mynda þær á mynd­band og skrá þær niður. Þessum gögnum skal svo komið til eft­ir­lits­dýra­læknis eftir hverja veiði­ferð og skal hann ganga úr skugga um að ákvæði laga um vel­ferð dýra hafi verið fylgt. Komi eitt­hvað þar í ljós sem bendir til þess að ákvæði laga um vel­ferð dýra séu ekki virt er það á hendi Mat­væla­stofn­unar að meta það hvort vísa skuli mál­inu til lög­reglu.

„Það er mik­il­vægt að stjórn­völd byggi ákvarð­anir sínar á gögnum og stað­reyndum,“ segir Svandís. „Það er hins vegar alveg skýrt í mínum huga að ef atvinnu­greinar, sem byggja á dýra­haldi eða veiðum, geta ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra – eiga þær sér enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár