Skot hvalveiðimanna geigaði – aftur

Lang­reyður sem dregin var á land í Hval­firði í gær var með ósprung­inn skut­ul­inn í sér. Það getur hafa lengt dauða­stríð hennar. Dýra­vernd­un­ar­sam­tök vilja að mat­væla­ráð­herra stöðvi veið­arnar svo rann­saka megi meint brot á lögum um hval­veiðar og vel­ferð dýra

Snemma í gær­morgun, 19. júlí, kom hval­veiði­skipið Hvalur 9 með lang­reyði að landi í hval­stöð­inni í Hval­firði og hafði hún sprengiskutul í síðu sinni – ósprung­inn. Þetta er í annað sinn á nokkrum dögum sem skot hval­veiði­mann­anna geigar, að því er virð­ist, á yfir­stand­andi ver­tíð.

[links]Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf. virti skut­ul­inn fyrir sér í dýr­inu áður en að hann var fjar­lægður. Sprengjan í skutl­inum, sem er lög­bundið dráp­stól við veið­arnar, á að deyða dýrið sam­stundis. Ef hún springur ekki þarf að hlaða byss­una aftur og hleypa af. Það getur tekið margar mín­útur og lengt dauða­stríð hvals­ins.

„Skytt­unni um borð í Hval 9 mistókst aug­ljós­lega að skjóta bana­skoti í fyrstu til­raun,“ segir Arne Feu­er­hahn, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­vernd­ar­sam­tak­anna Hard to Port, sem fylgd­ist líkt og fleiri dýra­vernd­un­ar­sinnar með því þegar lang­reyð­urin, kven­dýr, var dregin á land með þau ummerki á skrokk sínum sem að framan er lýst. Hann segir að ann­ars staðar á skrokki hennar hafi sést merki um seinna skotið. „Við göngum út frá því að annað skot hafi þurft til að enda þján­ingar dýrs­ins.“

Hins vegar, bendir hann á, sjá­ist auk ummerkja eftir tvö skot úr sprengju­skutli, mun minna sár við annað bægsli lang­reyð­ar­innar. Hugs­an­lega, segir í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna, er þar um að ræða sár eftir byssu­kúlu. Feu­er­hahn seg­ist ekki full­viss að svo sé en hval­veiði­bátar eru útbúnir rifflum sem eru not­aðir til þrauta­vara ef ekki tekst að drepa dýrið með skutli.

[adspot]

Hard to Port hafa fylgst náið með því sem fram fer vegna hval­veið­anna við hval­stöð­ina í Hval­firði. Það voru einnig þau sem urðu vitni að því þegar annað kven­dýr var dregið á land 4. júlí með skut­ul­inn í síðu sinni. Kjarninn fékk það stað­fest hjá yfir­dýra­lækni Mat­væla­stofn­unar að þá hefði skot veiði­mann­anna geigað og hafnað í beini, höf­uð­kúpu dýrs­ins.

Miðað við þær myndir sem Hard to Port sendu með frétta­til­kynn­ingu sinni hefur það sama gerst í gær.

Líkt og Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir lýsti í sam­tali við Kjarnann um helg­ina þarf sprengiskut­ull að kom­ast inn í hold til að hann springi. Eft­ir­lits­dýra­læknir frá MAST skoðar sér­hvern hval sem dreg­inn er á land. Ekki fyrr en að eft­ir­liti hans loknu má verka hval­inn.

Sævar Guð­munds­son, deild­ar­stjóri land­eft­ir­lits hjá Fiski­stofu, sagði við Kjarnann að skyttur sem ann­ist veiðar og aflífun dýra eigi að sækja við­ur­kennt nám­skeið í með­ferð skut­ul­byssa og sprengiskutla og í aflíf­un­ar­að­ferðum við hval­veiðar.

Hvalur hf. eina fyrirtækið á veiðum

Á Íslandi gilda sér­stök lög um hval­veiðar. Í grunn­inn eru þau frá árinu 1949. Þeim var síð­ast breytt árið 2012. Samkvæmt þeim mega þeir einir stunda slíkar veiðar sem til þess hafa leyfi að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Núver­andi veiði­heim­ildir sem fyr­ir­tækið Hvalur hf. eitt nýtir, gilda út árið 2023.

Í byrjun júlí lagði mat­væla­ráðu­neytið til breyt­ingu á reglu­gerð um hval­veiðar sem fela m.a. í sér að skip­stjórum hval­veiði­skipa verði gert að til­nefna dýra­vel­ferð­ar­full­trúa sem beri ábyrgð á því að rétt verði staðið að vel­ferð hvala við veiðar.

Í núgild­andi reglu­gerð kemur fram að ein­ungis skuli nota skut­ul­sprengjur af gerð­inni hvalgranat-99 og skal dýr aflífað „eins fljótt og kostur er“.

En það eru fleiri lög sem gilda um hval­veiðar en sér­lögin fyrr­nefndu.

Sig­ur­borg yfir­dýra­læknir benti í því sam­bandi á að í lögum um vel­ferð dýra er sér­stakt ákvæði um veiðar í 27. gr. en þar segir:

„Ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýr­unum sem minnstum sárs­auka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. Skylt er veiði­mönnum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverkum.

Við veiðar er óheim­ilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa lim­lest­ingum eða kvölum. Við veiðar á villtum dýrum skal að auki fara að fyr­ir­mælum gild­andi laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spen­dýrum.“

Næststærsta spendýr jarðar

Hvalir eru sann­ar­lega villt spen­dýr. Og þau langstærstu sem fyr­ir­finn­ast á plánet­unni Jörð. Lang­reyður, sem Hvalur hf. veiðir nú af miklum móð, er næst­stærsta spen­dýr jarðar. Einungis frænka hennar, steypireyð­urin, er stærri. Þær eru full­vaxnar 24-26 metrar að lengd og vega þá 60-75 tonn. Þetta eru lang­lífar skepnur, geta orðið 80-90 ára. Svipað gamlar og mann­skepnan.

„Við höfum orðið vitni að og skráð aug­ljós og end­ur­tekin brot á lögum um dýra­vernd,“ segir Feu­er­hahn í nýj­ustu frétta­til­kynn­ingu Hard to Port. „Myndefni okkar sýnir svo ekki verður um villst að hvalir eru ekki drepnir „eins fljótt og kostur er“ á þessum veiðum. Við óskum eftir því að ráð­herra sjáv­ar­út­vegs og land­bún­aðar stöðvi veið­arnar þar til þess mál eru að fullu rann­sökuð.“

Í rann­sókn sem Fiski­stofa lét gera árið 2014 kom í ljós að af 50 lang­reyðum sem fylgst var með veiðum á dóu 42 sam­stundis. Það þýðir að sprengju­skut­ull­inn hafi hafnað í holdi. En átta dýr­anna dóu ekki strax og voru þá skotin aftur. Sú lang­reyður sem lengst tórði eftir fyrra skotið lifði í fimmtán mín­útur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár