Hæfðu hvalkú í bægsli og skáru fóstur úr kviði hennar

Lang­reyð­ar­kýr sem dregin var að landi í Hval­firði í gær hafði verið skotin í bægsli og sprengiskut­ull­inn því ekki sprungið. Öðrum skutli var skotið í kvið hennar. Er gert var að kúnni kom í ljós að hún var kelfd.

Starfsmenn Hvals hf. og eftirlitsmenn á vettvangi við fóstrið sem skorið var úr langreyðinni.
Starfs­menn Hvals hf. og eft­ir­lits­menn á vett­vangi við fóstrið sem skorið var úr lang­reyð­inni. Mynd: Hard to Port

Önnur þeirra lang­reyða sem skip Hvals hf, Hvalur 8, kom með að landi í gær var með tvo skutla í sér. Annar þeirra hæfði bægsli og sprakk sprengiskut­ull­inn, sem á að aflífa dýrin strax, ekki. Hinn var í kviði hennar. Um kven­dýr var að ræða og reynd­ist hún kelfd.

„Við höfum enn einu sinni á þess­ari hval­veiði­ver­tíð orðið vitni að skoti sem geigar,“ segir Arne Feu­er­hahn, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­vernd­ar­sam­tak­anna Hard to Port sem fylgst hafa náið með veið­unum í ár og áður í tvígang myndað hvali með skutl­ana enn í sér, ósprungna. Arne telur að dýrið hafi án efa þjáðst mikið. Rann­sóknir sýna að springi skut­ull ekki geti það lengt dauða­stríð hvals­ins um margar mín­útur.

[adspot]

Lang­reyð­urin var dregin á land og það fyrsta sem var gert, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá Hard to Port, var að fjar­lægja sprengiskut­ul­inn úr henni. Þá var haf­ist handa við að gera að henni og eftir að skurð­ur­inn var nokkuð á veg kom­inn komu inn­yfli dýrs­ins í ljós. Arne segir tvo full­trúa, að því er hann telur eft­ir­lits­að­ila, hafa sýnt legi kýr­innar mik­inn áhuga og farið fram á að það yrði skorið upp. Þá hafi komið í ljós fóstur, um metri að lengd. Reynt hafi verið að koma í veg fyrir að sam­tökin næðu myndum af fóstr­inu og það fjar­lægt í skyndi.

„Miðað við hvar seinni skut­ull­inn lenti þá gæti verið að hann hafi ekki aðeins drepið hið full­orðna dýr heldur einnig ófæddan kálf hennar,“ segir Arne. „Það var erfitt að verða vitni að þessu, jafn­vel fyrir okkur sem höfum fylgst með þessum veiðum lengi.“

Þetta er langt í frá í fyrsta sinn sem kefld kýr er veidd. Það gerð­ist til dæmis ítrekað á ver­tíð­inni sum­arið 2018, að minnsta kosti ell­efu sinnum. „Það er mjög lík­legt að kelfdar kýr séu veiddar,“ segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, sjávar- og atferl­is­vist­fræð­ingur, í sam­tali við Kjarnann. „Þær eru lík­lega um hálf­gengnar eða meira þegar þær eru veiddar.“

Það skýrist af því að þær bera á 2-3 ára fresti að jafn­aði. Fengi­tími þeirra er í des­em­ber og burður í nóv­em­ber eftir ell­efu mán­aða með­göngu. Kálf­ur­inn er á spena í um sex mán­uði áður en hann er van­inn undan.

Samkvæmt lögum og reglum um hval­veiðar er bannað að veiða hvalkálfa, hvali á spena og kven­kyns hvali sem kálfar eða hvalir á spena fylgja. Hins vegar er ekki bannað að veiða kelfdar hvalkýr sam­kvæmt núgild­andi lögum.

Edda Elísabet segir það „ekki mögu­leika“ að velja á milli kynja eða ald­urs full­vax­inna dýra þegar veitt er.

Lang­reyður er annað stærsta dýr jarðar á eftir steypireyði. Lang­reyður er almennt talin far­hvalur sem ferð­ast í átt að heim­skautum á vorin og til baka á hlýrri svæða á haustin. Hafið umhverfis Ísland eru einar helstu fæðu­slóðir lang­reyðar í Norður Atl­ants­hafi.

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði við Kjarnann í gær, spurð um skotin tvö sem þá var vitað að hefðu geigað, að það væri skýrt í sínum huga að „ef atvinnu­greinar, sem byggja á dýra­haldi eða veiðum, geta ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra – eiga þær sér enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi“.

[links]Hún sagði að ekki yrði nógu mikil áhersla lögð á mik­il­vægi þess að dýr séu aflífuð á mann­úð­legan hátt við veiðar. Lög og reglur um slátrun dýra í slát­ur­húsum séu skýr og kveði á um að aflífun sé skjót og án þján­ingar. „Um aflífun hvala liggja ekki fyrir nægar upp­lýs­ingar til að segja til um hvort hún sé mann­úð­leg eða ekki,“ heldur hún áfram. „Rannsókn sem unnin var fyrir Fiski­stofu árið 2015 á aflífun 50 lang­reyða bendir til að óásætt­an­lega stór hluti hvala sem eru veiddir í atvinnu­skyni heyi lang­dregið dauða­stríð. Mik­il­vægt er að skera úr um þetta með því að afla betri gagna.“

Svandís benti á að við veiðar væri aldrei hægt að tryggja að aflífun eigi sér stað við fyrsta skot, hvort sem verið sé að veiða hvali, fugla eða hrein­dýr. Verk­lags­reglur við hval­veiðar kveði þó skýrt á um að ef skot geigar skuli draga hval að borði og aflífa sem fyrst með skoti í heila.

„Hvorki ráðu­neytið, né und­ir­stofn­arnir þess, hafa upp­lýs­ingar um hvort svo sé gert. Því þarf að breyta og þess vegna hef ég sett í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að reglu­gerð sem skyldar þau sem hafa leyfi til stór­hval­veiða að til­nefna einn úr áhöfn­inni sem dýra­vel­ferð­ar­full­trúa.“

Samkvæmt drög­unum skal hann bera ábyrgð á því að rétt sé staðið að vel­ferð hvala við veiðar, með því að halda skrá yfir allar aðgerðir er varða veið­arnar, mynda þær á mynd­band og skrá þær niður. Þessum gögnum skal svo komið til eft­ir­lits­dýra­læknis eftir hverja veiði­ferð og skal hann ganga úr skugga um að ákvæði laga um vel­ferð dýra hafi verið fylgt. Komi eitt­hvað þar í ljós sem bendir til þess að ákvæði laga um vel­ferð dýra séu ekki virt er það á hendi Mat­væla­stofn­unar að meta það hvort vísa skuli mál­inu til lög­reglu.

„Ég held að við höfum safnað nægum sönn­un­ar­gögnum,“ er haft eftir Arne í til­kynn­ingu Hard to Port í morgun. „Það er eng­inn vafi að veiðar á þessum stóru sjáv­ar­spen­dýrum brjóta gegn lögum og reglum um dýra­vel­ferð. Myndefni okkar talar fyrir sig sjálft og við erum til­búin að afhenta það ábyrgum yfir­völdum, fari þau fram á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár