Vilja þúsundir varphæna í viðbót að Vallá

Um 65-75.000 varp­hænur og 10-20.000 yngri hænur verða í búi Stjörnu­eggja að Vallá hverju sinni ef ráð­gerðar breyt­ingar og stækkun raun­ger­ast. Hönum er fargað þegar þeir klekj­ast úr eggi og hæn­unum um eins og hálfs árs ald­ur­inn.

Eggjahús með varpkerfi á pöllum.
Eggjahús með varp­kerfi á pöllum. Mynd: EPA

Með nýju eld­is­húsi fyrir varp­hænur og upp­setn­ingu nýs varp­bún­aðar verður stæðum undir fugla á ýmsum aldri á eggja­bú­inu að Vallá á Kjal­ar­nesi fjölgað í allt að 95 þús­und. Núver­andi leyfi þaul­eld­is­ins sem þar er stundað gerir ráð fyrir 50 þús­und varp­hænum en í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu fram­kvæmd­ar­innar kemur fram að með áform­uðum breyt­ingum verði um 65.000-75.000 varp­hænur og 10.000-20.000 ung­hænur í eld­is­hús­unum hverju sinni. Frá þeim munu falla um 1.400 tonn af skít á ári, skít sem dreift yrði í landi tveggja bæja á Vest­ur­landi.

Verði áform­aðar breyt­ingar að veru­leika mun fram­leiðslu­geta eggja­bús­ins aukast um 30-35 pró­sent.

[adspot]

Fram­leiðsla undir merki Stjörnu­eggja hófst á jörð­inni Vallá á árinu 1970. Sá húsa­kostur á jörð­inni sem teng­ist fram­leiðsl­unni sam­anstendur af sex húsum, auk þess sem sjö­unda húsið er í bygg­ingu. Elstu bygg­ing­arnar eru með búrum og voru þær byggðar á árunum 1970-1988.

[links]Umhverf­is­þætt­irnir sem metnir eru í umhverf­is­mats­skýrslu Stjörnu­eggja eru lykt­ar­mengun, yfir­borðs­vatn, grunn­vatn og sýk­ing­ar­hætta. Er það nið­ur­staða mats fyr­ir­tæk­is­ins að á heild­ina litið verði umhverf­is­á­hrifin óveru­leg.

Klé­bergs­skóli á Kjal­ar­nesi er í um 490 metra fjar­lægð vestur af búinu og íbúa­byggðin í Grund­ar­hverfi er í rúm­lega 650 metra fjar­lægð. Tekið er fram í skýrsl­unni að aldrei hafi verið kvartað vegna lykt­ar­meng­unar, hvorki frá eggja­bú­inu sjálfu eða á þeim stöðum sem skítnum er dreift í dag.

Uppeldi hænu­unga fram á búum í Sætúni og í Saltvík sem eru í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá Vallá. Unghænur eru fluttar nokkra vikna gamlar í eld­is­húsin á Vallá. Þá tekur við 4-5 vikna vaxt­ar­tími áður en þær byrja að verpa. Heildar dval­ar­tími hæna í húsum á Vallá er um 60 vikur eða rétt rúm­lega ár. Að þeim tíma liðnum er eld­is­lotu lokið, eins og það er orðað, dýrin drepin og hræjum þeirra komið til urð­unar hjá Sorpu.

Hanaungar kæfðir eða malaðir

Helm­ingur allra unga sem klekj­ast úr eggjum eru eðli máls­ins sam­kvæmt hanar. Þeir nýt­ast ekki til fram­leiðslu varp­hæna og er fargað, ýmist með gösun eða þeir mal­aðir til dauða. Báðar aðferð­irnar eru við­ur­kenndar aflíf­un­ar­að­ferðir hér á landi og er beitt á tug­þús­undir unga á ári.

Mikil umræða hefur verið um aflífun hanaunga í Evrópu síð­ustu miss­eri og mölun þeirra, þar sem þeir fara lif­andi ofan í hakka­vél, hefur verið harð­lega gagn­rýnd. Banna á aðferð­ina í Hollandi og Þýska­landi, svo dæmi séu tekin. Mann­úð­legra þykir að kyn­greina fóstrin og deyða han­ana á meðan þeir eru enn í eggi.

Stækkun bús­ins á Vallá mun fela í sér að búr sem enn eru til staðar í nokkrum eld­is­húsum verða aflögð og hæn­urnar settar á palla á nokkrum hæðum. Með palla­fyr­ir­komu­lag­inu er hægt að koma mun fleiri dýrum fyrir í sama hús­inu.

Í mats­á­ætlun, fyrra skrefi í átt að umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­innar, var gert ráð fyrir að end­ur­nýja eldri bygg­ingar bús­ins til að taka við auknum fjölda fugla. Frá því hefur nú verið horfið, segir í umhverf­is­mats­skýrsl­unni, og stefnt að bygg­ingu nýs eld­is­húss. Í kjöl­farið verður eggja­fram­leiðslu „að öllum lík­indum“ hætt í elstu hús­unum.

Palla­fyr­ir­komu­lagið er þegar til staðar í tveimur nýj­ustu eld­is­húsum Stjörnu­eggja að Vallá. Það er svar varp­hænu­bænda hér á landi og víðar við banni á varp­hænu­haldi í búrum sem tók gildi í Evrópu árið 2012. Íslensk bú fengu frest til síð­ustu ára­móta að afleggja búra­bú­skap­inn með öllu en gild­is­töku reglu­gerð­ar­innar sem um þetta fjallar var hins vegar frestað um eitt ár. Það þýðir að varp­hænur hér á landi hafa þurft að dúsa í búrum ell­efu árum lengur en hænur í öðrum Evr­ópu­löndum.

Geta að minnsta kosti hreyft sig meira

Með því að hætta með búrin geta hæn­urnar „meira sýnt sitt eðli­lega atferli,“ sagði Brigitte Brugger, sér­greina­læknir í heil­brigði og vel­ferð ali­fugla hjá Mat­væla­stofnun, í sam­tali við Kjarnann síð­asta haust. „Í búr­unum geta þær lítið annað gert en að drekka og éta. Þær geta ekki sand­baðað sig. Þær geta ekki hvílst á prikum eins og þeim er eðli­legt. Þær geta ekki dregið sig í hlé til að verpa í hreiðri. Þannig að með því að taka búrin þá fá þær að minnsta kosti þennan aðbúnað, geta hreyft sig miklu meira og það styrkir líka beinin.“

En palla­fyr­ir­komu­lagið mun ekki útrýma alvar­legum og sárs­auka­fullum sprungum eða brotum á bringu­beini sem rann­sóknir sýna að um 85 pró­sent varp­hæna, hér sem og ann­ars staðar, verði fyrir í eld­is­hús­unum. „Bringu­beins­skaði er vanda­mál hjá hænum í búrum en hann er ekk­ert minna vanda­mál hjá lausa­göngu hænum af því að þá eru meiri líkur á árekstrum,“ sagði Brigitte.

Hænur eru ekki góðir flug­fuglar en þær flögra þó um, sér­stak­lega ef þær fyll­ast ofsa­hræðslu. Þá geta þær lent á inn­rétt­ingum í eld­is­hús­unum og slasast. „Þær bara brot­lenda,“ sagði Brigitte enn­fremur í úttekt Kjarnans á mál­inu.

Annað sem talið er valda bringu­beins­skað­anum er stærð eggj­anna. Litlar hænur hafa verið rækt­aðar til að verpa sífellt fleiri og stærri eggjum. Í versl­unum á Íslandi eru til sölu stór – og jafn­vel risa­stór – egg sem verpt er í búum hér á landi.

Meðal þeirra sem gagn­rýnt hafa þessa gríð­ar­miklu eggja­fram­leiðslu sem stunduð er á Íslandi, þar sem um 200 þús­und varp­hænur eru haldnar á hverjum tíma, eru Samtök græn­kera. Þau hafa barist fyrir auk­inni með­vit­und um með­ferð dýra, m.a. þeirra sem ræktuð eru í þaul­eldi líkt og svín, varp­hænur og ali­fuglar.

„Karlkyns ungar í eggja­iðn­aði munu alltaf vera drepnir og munu því alltaf þjást,“ sagði Val­gerður Árna­dóttir, for­maður sam­tak­anna, við Kjarnann í haust, spurð hvort hún teldi hægt að búa svo um hnút­ana að fólk geti keypt og neytt hænu­eggja án þess að þar búi þján­ingar dýra að baki. „Það eru til minni bú og ein­stak­lingar með hænur sem búa við góðar aðstæður í litlum hópum og fá að fara út og haga sér eins og þeim er eðl­is­lægt. Þessi bú eru þó ekki mörg og fram­leiða ekki mikið af eggjum.“

Val­gerður sagði að á meðan fjár­hags­legur gróði vegi þyngra en vel­ferð hæna verði þessu ekki breytt. „Það var ekki fyrr en til­tölu­lega nýlega að fólk fór að neyta hænu­eggja í svona miklum mæli,“ benti hún enn­fremur á. „Egg eru engin nauð­synja­vara sem krefst þess að þau séu fram­leidd á þann hátt að þau séu sem ódýr­ust. Slík fram­leiðsla hér á landi hefur orðið til þess að fáeinir ein­stak­lingar hafa hagn­ast fjár­hags­lega og það hefur komið illa við smærri fram­leið­endur sem vilja veita hænum betra líf að keppa við lágt vöru­verð verk­smiðju­bú­skapar.“

Samtök græn­kera segja hænur, og sér í lagi varp­hænur, hafa verið rann­sak­aðar nokkuð ítar­lega. Þeim líði vel þegar þær geta kroppað í jörð og blakað vængj­unum. Þær hafi nátt­úru­lega þörf fyrir að fara í ryk­bað og tylla sér á prik. Þær vilji verpa í friði og finn­ist best að vera í hóp sem telji færri en hund­rað. „Aðstæður á þaul­eldis verk­smiðju­búum eru þannig að hæn­urnar geta ekki fram­kvæmt þessi eðl­is­lægu atferli sem stuðla að heil­brigði þeirra og almennri vellíðan. Áætlun um að Stjörnu­egg auki fram­leiðslu sína um 45 þús­und fugla þýðir ein­göngu það að á hverri stundu eru hags­munir 45 þús­und fleiri fugla virtir að vettugi,“ sagði m.a. í umsögn sam­tak­anna við mats­á­ætlun Stjörnu­eggja í fyrra.

Þauleldi verði skilgreint sem iðnaður

Eggja­búið á Vallá er eitt sex þaul­eld­is­búa sem starf­rækt eru á Kjal­ar­nesi. En Reykja­vík­ur­borg íhugar stefnu­breyt­ingu og hóf árið 2016 vinnu við mótun land­bún­að­ar­stefnu fyrir Kjal­ar­nes sem nýta átti til vinnu við breyt­ingar á aðal- og deiliskipu­lagi. Lagði starfs­hópur sem fjall­aði um málið til að ekki yrði heim­ilt að stofna til þaul­eld­is­bú­skapar á öðrum jörðum eða lög­býlum en þeim sem þegar hafa útgefið starfs­leyfi. Í öðru lagi var lagt til að svæði sem þaul­eldi er stundað á verði skil­greind sem iðn­að­ar­svæði en ekki land­bún­að­ar­svæði.

Breyt­ingar á aðal­skipu­lagi í þessa veru hafa ekki enn verið gerðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár