Ætla að banna bæði mölun og kæfingu hænuunga

Stjórn­völd í tveimur ríkjum ESB hafa ákveðið að á næsta ári verði bannað að drepa hænu­unga með mölun. Frakkar ætla að ganga skref­inu lengra og banna einnig kæf­ingu þeirra með gasi.

Á bilinu 150-200 þúsund hænuungar eru aflífaðir með mölun eða gösun hér á landi árlega.
Á bil­inu 150-200 þús­und hænu­ungar eru aflífaðir með mölun eða gösun hér á landi árlega. Mynd: Pexels

Frakkar hafa ákveðið að frá og með næsta ári verði bannað að drepa karl­kyns hænu­unga með mölun eða gösun. Báðum þessum aðferðum er beitt hér á landi við aflífun tug­þús­unda karl­kyns varp­hænu­unga árlega fljót­lega eftir að þeir klekj­ast úr eggjum.

[links]Frönsk stjórn­völd hafa þar með tekið undir gagn­rýni dýra­vernd­un­ar­sam­taka um að aðferð­irnar tvær séu grimmi­legar og ætla þau að þrýsta á að bannið verði tekið upp í öllu Evr­ópu­sam­band­inu.

Á hverju ári eru um 50 millj­ónir karl­kyns hænu­unga drepnir í Frakk­landi með annað hvort mölun (e. shredd­ing) eða gösun, að sögn land­bún­að­ar­ráð­herr­ans Julien Den­orm­andie. Aðeins kven­kyns ung­arnir fá að lifa en þó ekki lengi því ævi varp­hæna á verk­smiðju­búum er stutt, oft­ast ekki lengri en 18 mán­uðir.

„Frakk­land verður fyrsta landið í heim­inum ásamt Þýska­landi til að binda endi á að karl­kyns hænu­ungar séu mal­aðir og gas­aðir,“ sagði Den­orm­andie er end­an­leg ákvörðun um bannið var til­kynnt nýverið.

Hann sagði að frönsk og þýsk stjórn­völd myndu beita sér fyrir því að önnur aðild­ar­ríki ESB færu sömu leið. Frá og með næsta ári þurfa ali­fugla­bændur að koma sér upp bún­aði til að kyn­greina unga á meðan þeir eru enn í eggi.

Den­orm­andie segir að ákvörð­un­inni verði fram­fylgt í skrefum. Gert sé ráð fyrir að meiri­hluti útung­un­ar­stöðva verði kom­inn með tækja­búnað til að kyn­greina unga í eggi fyrir lok fyrsta árs­fjórð­ungs næsta árs. Bannið gæti hækkað verð á sex eggja bakka um 0,1 evru eða um 15 krónur íslenskar.

Frakkar ætla að aðstoða eggja­bændur við að koma sér upp nýjum tækjum og hefur heitið 10 millj­óna evra styrks til verks­ins eða um 1,5 millj­örðum króna.

Um tugur eggja­búa er starf­ræktur á Íslandi. Árlega má gera ráð fyrir að um 150-200 þús­und karl­kyns hænu­ungar séu aflífaðir með ýmist mölun eða gösun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár