Mölun karlkyns hænuunga „er hryllileg iðja“

Á Íslandi er heim­ilt að beita tveimur aðferðum við aflífun hænu­unga; gösun og mölun. Báðum aðferðum er beitt á tug­þús­undir unga á ári. „Allir karl­kyns ungar sem fæð­ast í eggja­iðn­aði eru drepnir eftir að þeir klekj­ast út,“ segir for­maður Samtaka græn­kera.

Við mölunina eru notuð tæki sem eru búin hnífum eða löngum plastþráðum sem snúast hratt og sjálfvirkt. Afköstin skulu vera, að því er fram kemur í svari MAST við fyrirspurn Kjarnans, nægilega mikil til að tryggja að öll dýrin séu deydd samstundis.
Við möl­un­ina eru notuð tæki sem eru búin hnífum eða löngum plast­þráðum sem snú­ast hratt og sjálf­virkt. Afköstin skulu vera, að því er fram kemur í svari MAST við fyr­ir­spurn Kjarnans, nægi­lega mikil til að tryggja að öll dýrin séu deydd sam­stundis. Mynd: Wikipedia

„Því miður kemur það okkur ekki á óvart að varp­hænur séu með áverka og bein­brot þar sem þær eru rækt­aðar og fóðr­aðar til að verpa mun fleiri eggjum en þeim er eðl­is­lægt sem skerðir lífs­gæði og styttir líf­tíma þeirra til muna,“ segir Val­gerður Árna­dóttir, for­maður Samtaka græn­kera á Íslandi. Kjarninn greindi frá því nýlega að gera megi ráð fyrir að um 85 pró­sent varp­hæna á íslenskum eggja­búum séu með skaða á bringu­beini – brot eða sprungur – líkt og kom fram í nið­ur­stöðu nýrrar, danskrar rann­sóknar.

[links]Aðbún­aður á dönskum og íslenskum eggja­búum er sam­bæri­legur og því má, að sögn dýra­læknis hjá Mat­væla­stofnun, yfir­færa rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­urnar á Ísland. Ástæður áverk­anna eru nokkrar. Ein er sú að of litlar hænur eru látnar verpa of stórum eggjum og það um 300 stykkjum á ári. Önnur er sú að hænur eiga það til að fljúga á inn­rétt­ingar í eld­is­hús­unum. „Þær bara brot­lenda,“ segir Brigitte Brugger, sér­greina­dýra­læknir í heil­brigði og vel­ferð ali­fugla hjá MAST.

Val­gerður segir það þekkt í þétt­bærri eggja­fram­leiðslu að hæn­urnar deyi vegna ein­skærs álags og nái ekki einu sinni að þrauka fram á 15 mán­aða aldur þegar þær eru aflíf­aðar. Hún bendir hins vegar á að nátt­úru­leg lífsævi hænsna spanni vel yfir sjö ár. Í stórum búum megi hæg­lega gera ráð fyrir að á hverju ári komi hund­ruð, jafn­vel þús­undir, hænsna til með að deyja langt fyrir aldur fram úr streitu. „Þessi [danska] rann­sókn minnir okkur enn og aftur á að ekki er allt með felldu þegar kemur að eggja­fram­leiðslu og okkur þykir gagn­rýn­is­vert að bringu­beins­brot hafi ekki verið rann­sökuð á eggja­búum hér á landi.“

[adspot]

Samtökum græn­kera á Íslandi þykja aðstæður varp­hæna hér á landi óásætt­an­legar. Leyfi­legt sé sam­kvæmt reglu­gerðum að hafa níu hænur á hvern fer­metra og rækta þær í „glugga­lausum skemmum“ sem sam­tökin segja „með öllu óásætt­an­legt“. Val­gerður bendir á að yfir­vof­andi bann við notkun á búrum í varp­hænu­húsum, sem tekur gildi um ára­mót og bændur hafa fengið nokkur ár til að aðlag­ast, bæti aðstæður hæn­anna lítið. Í stað búra koma pallar sem hæn­urnar fara um sem að sögn dýra­læknis á MAST, sem Kjarninn ræddi nýverið við, dregur t.d. ekki endi­lega úr áflugs­hættu og þar með bringu­beins­brotum.

Dýr eiga að vera laus við þjáningu

Að mati Samtaka græn­kera er ein­fald­lega ekki verið að fram­fylgja lögum um vel­ferð dýra þar sem segir „að dýr eigi að vera laus við þján­ingu og fá að sýna sitt eðli­lega atgervi“. Val­gerður segir að varp­hænur fái almennt „aldrei að fara undir bert loft, kroppa í gras, fara í ryk­bað eða sjá sól­ina. Þeim er stýrt af lömpum í glugga­lausum skemmum, þar sem þær þjást af bruna­sárum á fótum eftir eigin skít og eru með­höndl­aðar eins og þær séu hlutir en ekki skyni gæddar verur sem finna til“.

Um 200 þús­und varp­hænur eru á íslenskum eggja­búum. Æviskeið hæn­anna er stutt. Er ung­arnir koma úr eggi er eins og gefur að skilja um helm­ing­ur­inn hanar. Ungarnir eru kyn­greindir við útungun og han­arnir aflífaðir. Nota má tvenns konar aðferðir við það hér á landi; gösun með koldí­oxíði og mölun (e. shredd­ing). Samkvæmt upp­lýs­ingum frá MAST er báðum aðferð­unum beitt. Við möl­un­ina eru notuð tæki sem eru búin hnífum eða löngum plast­þráðum sem snú­ast hratt og sjálf­virkt. Afköst tæk­is­ins skulu vera, að því er fram kemur í svari MAST við fyr­ir­spurn Kjarnans, „nægi­lega mikil til að tryggja að öll dýrin séu deydd sam­stundis enda þótt um mik­inn fjölda geti verið að ræða í einu“. Mölun er bæði notuð til aflíf­unar á óklökktum ungum í eggjum sem og til aflíf­unar á klöktum ungum. Mat­væla­stofnun hefur eft­ir­lit með þessum aflíf­un­ar­að­ferðum í útung­un­ar­stöðvum.

„Mölun er hrylli­leg iðja sem fjöl­mörg ríki hafa rétti­lega bannað,“ segir Val­gerður. Að kæfa ung­ana með gasi sé „lítt skárri“ aðferð og geti valdið löngum og kval­ar­fullum dauð­daga. „Sögurnar sem við höfum heyrt frá eggja­búum eru þannig að ekki er mikið eft­ir­lit haft með þess­ari fram­kvæmd. Jafnan eru ungar settir í gám sem útblástur vinnu­vélar er tengdur við þar til þeir kafna. Það getur tekið marga klukku­tíma.“

Val­gerður segir að af þessu viti hinn almenni neyt­andi ekki „og heldur ekki að varp­hænur og kjöt­hænur sem rækt­aðar eru til átu eru sitt­hvor stofn­inn og að allir karl­kyns ungar sem fæð­ast í eggja­iðn­aði eru drepnir stuttu eftir að þeir klekj­ast út“.

Þýska­land er meðal þeirra ríkja sem hafa ákveðið að banna mölun lif­andi hænu­unga. Bannið tekur gildi um næstu ára­mót. Frá þeim tíma þarf að kyn­greina ung­ana meðan þeir eru enn í eggi áður en þeir eru mal­aðir. Áfram á að kepp­ast við, líkt og segir í frétt Wall Street Journal um þetta mál­efni, að þróa aðferðir svo hægt sé að kyn­greina snemma á fóst­ur­skeiði til að lág­marka þján­ingar.

Eftirlitsaðilinn heitir Matvælastofnun

Um aðbúnað ali­fugla og þar með varp­hæna á Íslandi gildir reglu­gerð um vel­ferð ali­fugla. Í henni kemur fram hversu þétt­leik­inn í eld­is­hús­unum má vera mik­ill, hvernig verja skuli dýrin fyrir sýk­ingum, hvernig inn­rétt­ingar skulu vera, fóðrun og svo fram­vegis. Í frétt Kjarnans um bringu­beins­skað­ann kom hins vegar fram að MAST sinnir ekki nákvæmri lækn­is­skoðun á hæn­unum, t.d. hvort að þær séu með áverka á bringu­beinum. Eftirlit stofn­un­ar­innar felist í því að taka út húsin og fugla­hóp­inn í heild og ganga úr skugga um að öll ákvæði reglu­gerð­ar­innar séu upp­fyllt.

„MAST er eins og nafnið gefur til kynna Mat­væla­stofnun,“ segir Val­gerður. Stofn­unin hafi ætíð sinnt eft­ir­liti sínu á þann hátt „að dýr séu mat­vara og þeirra helstu áherslur liggja í að vernda neyt­and­ann og passa upp á hrein­læti mat­vöru. Velferð dýra er ekki í fyrsta sæti og verður það ekki á meðan þau eru með­höndluð sem hlutir“.

[adspot]

Hún telur að MAST, eins og svo margar aðrar eft­ir­lits­stofn­anir á Íslandi, sé eflaust van­fjár­mögnuð og að þar sé of fátt starfs­fólk til að sinna ítar­legu eft­ir­liti. „Besta lausnin væri að færa eft­ir­lit með vel­ferð dýra í aðra stofnun sem lætur sér raun­veru­lega annt um að aðbún­aður dýra upp­fylli lög og reglur um að þau séu, líkt og kveðið er á um í dýra­vel­ferð­ar­lögum, „laus við van­líðan, hungur og þorsta, ótta og þján­ingu, sárs­auka, meiðsli og sjúk­dóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur og að þau geti sýnt sitt eðli­lega atferli eins og frekast er unnt“.”

Er hægt að búa svo um hnút­ana að fólk geti keypt og neytt hænu­eggja án þess að þar búi að baki þján­ingar dýra?

„Karlkyns ungar í eggja­iðn­aði munu alltaf vera drepnir og munu því alltaf þjást,“ svarar Val­gerður. „En það eru til minni bú og ein­stak­lingar með hænur sem búa við góðar aðstæður í litlum hópum og fá að fara út og haga sér eins og þeim er eðl­is­lægt. Þessi bú eru þó ekki mörg og fram­leiða ekki mikið af eggjum.“

Val­gerður segir að á meðan fjár­hags­legur gróði vegi þyngra en vel­ferð hæna verði þessu ekki breytt. „Það var ekki fyrr en til­tölu­lega nýlega að fólk fór að neyta hænu­eggja í svona miklum mæli,“ segir hún. „Egg eru engin nauð­synja­vara sem krefst þess að þau séu fram­leidd á þann hátt að þau séu sem ódýr­ust. Slík fram­leiðsla hér á landi hefur orðið til þess að fáeinir ein­stak­lingar hafa hagn­ast fjár­hags­lega og það hefur komið sér illa við smærri fram­leið­endur sem vilja veita hænum betra líf að keppa við lágt vöru­verð verk­smiðju­bú­skapar.“

Enn mikið tabú

„Það er alls ekki nægur gaumur gef­inn að dýra­vel­ferð­ar­málum á Íslandi,“ segir Val­gerður. „Við erum langt á eftir ríkjum sem við viljum bera okkur saman við og enn ríkir mikið tabú yfir mál­efn­inu. Það hefur þó orðið ein­hver vit­und­ar­vakn­ing, aðal­lega meðal ungs fólks, sem hefur leitt til þess að æ fleiri kjósa að lifa án þess að neyta dýra­af­urða eða gera þá kröfu að dýrin búi við góð skil­yrði. Því miður þá er það reynsla okkar að fjár­hags­legir hvatar ráða þegar kemur að dýra­eldi á Íslandi og vel­ferð þeirra mætir afgangi.“

Samtök græn­kera á Íslandi vona að með auknu upp­lýstu sam­tali um mál­efni dýra verði umfangs­meiri vit­und­ar­vakn­ing.

„Til að bæta aðstæður dýra þarf sam­eig­in­legt átak ráða­manna og almenn­ings, aukið eft­ir­lit, strang­ari reglur og við­ur­lög.“ Hvað varðar getu neyt­enda til að hafa áhrif til að aðstæður dýra verði bættar segir Val­gerður fólk til dæmis geta hætt að styðja slæmar aðstæður þeirra í svoköll­uðu þaul­eldi og hætta ein­fald­lega að versla vörur sem fram­leiddar eru með þeim hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár