Ekki hlutverk MAST „að taka afstöðu til siðferðilegra spurninga“

Skaði á bringu­beinum varp­hæna hefur komið „glögg­lega í ljós“ í eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar á íslenskum varp­hænu­búum. Mölun lif­andi hænu­unga kann að þykja „ómann­úð­leg“ en hún er leyfi­leg, segir í svörum MAST við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Gera má ráð fyrir að um 85 prósent varphæna á Íslandi séu með bringubeinsskaða. Helmingur allra varphænuunga sem hér klekjast úr eggjum eru aflífaðir dagsgamlir.
Gera má ráð fyrir að um 85 pró­sent varp­hæna á Íslandi séu með bringu­beins­skaða. Helm­ingur allra varp­hænu­unga sem hér klekj­ast úr eggjum eru aflífaðir dags­gamlir.

Mölun á dags­gömlum hænu­ungum er leyfi­leg aðferð. Mat­væla­stofnun (MAST) hefur eft­ir­lit með varp­hænsna­haldi í sam­ræmi við kröfur í lögum og reglu­gerðum en það er „ekki hennar hlut­verk að taka afstöðu til sið­ferði­legra spurn­inga“.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Mat­væla­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans. Spurt var um tvennt sem Kjarninn hefur fjallað um í fréttum nýverið: Algengan bringu­beins­skaða hjá varp­hænum sem og mölun lif­andi karl­kyns hænu­unga sem bæði Frakkar og Þjóð­verjar hafa ákveðið að banna á næsta ári. Ætla má að um 150-200 þús­und karl­kyns ungar séu aflífaðir hér á landi árlega, ýmist með mölun eða kæf­ingu með gasi.

[adspot]

Ekki stendur til af hálfu Mat­væla­stofn­unar að rann­saka umfang bringu­beins­skaða í íslenskum varp­hænum. „Það er vegna þess að Mat­væla­stofnun gengur út frá því að vanda­málið sé til staðar hér­lendis eins og alls staðar erlendis og í sam­bæri­legu umfangi,“ segir í svari stofn­un­ar­innar. Hægt sé „að gefa sér það“ vegna þess að for­sendur hér séu nán­ast þær sömu og erlendis. „Hér­lendis eru not­aðar sömu varp­hænsna­stofnar og inn­rétt­ingar. Aðbún­aður, fóðrun og umhirða er í sam­ræmi við erlendar ráð­legg­ingar.“

Í nýlegri danskri rann­sókn, sem Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um, kom fram að 85 pró­sent varp­hæna eru með brotið eða sprungið bringu­bein. Skýr­ingin er m.a. rakin til þess að litlar hænur eru látnar verpa of stórum eggjum og það í gríð­ar­legu magni á hverju ári.

[links]Brigitte Brugger, sér­greina­dýra­læknir ali­fugla­sjúk­dóma, sem skrifar svar við fyr­ir­spurn Kjarnans fyrir hönd stofn­un­ar­innar, segir að í eft­ir­liti MAST sé bændum leið­beint að greina skaða á bringu­beini. „Hænur eru teknar til að þreifa bringu­beinið og kemur þá glögg­lega í ljós að bringu­beins­skaði er algengur þó svo ein­ungis fá dýr séu skoðuð.“

Brigitte segir Mat­væla­stofnun hafa brugð­ist við þessu vanda­máli fyrir nokkrum árum með þátt­töku í evr­ópska sam­starfs­verk­efn­inu COST Action um bringu­beins­skaða KBD (keel bone damage). Eggja­bændur voru upp­lýstir um málið og fram­vindu rann­sókna. „Þó svo að þessu verk­efni sé lokið heldur Mat­væla­stofnun áfram að fylgj­ast með rann­sóknum erlendis og mögu­legum lausnum til að draga úr þessu vanda­máli,“ stendur í svari MAST við fyr­ir­spurn Kjarnans. Stofn­unin geti svo miðlað gagn­legum upp­lýs­ingum til eggja­bænda og ráð­lagt um frek­ari aðgerðir.

„Lausnin verður ekki auð­fundin, vanda­málið er marg­þætt og ekki dugar að huga ein­göngu að aðbún­aði og inn­rétt­ingum til að draga úr líkum á að hænur bringu­beins­brotni við að færa sig til í hús­inu,“ skrifar Brigitte. Varp­hænsna­stofn­inn geti einnig skipt máli sem og fóðrun og fleiri þættir. Rann­sóknir hafi sýnt að bringu­beins­brot séu einnig að finna í hænsnfuglum sem verpa mun færri eggjum en nútíma varp­hænsna­stofnar. Bringu­beins­brot hafi fund­ist í villtum hænsnfuglum (red jungle fowl) sem nútíma varp­stofnar séu rækt­aðir úr svo dæmi séu nefnd.

Kjarninn spurði einnig hvort MAST myndi beita sér fyrir því að reglum um aflíf­un­ar­að­ferðir karl­kyns varp­hænu­unga yrði breytt og í stað þess að mala dags­gamla unga yrði farin sú leið sem Frakkar og Þjóð­verjar hyggj­ast fara sem er að kyn­greina fóstur í eggi.

[adspot]

Brigitte segir að öll lönd í Evrópu, sem og Mat­væla­stofnun hér á landi, fylgist með þróun mála vegna aflíf­unar á hanaungum sem „falla til“ við útungun í varp­hænsna­rækt. „Umræðan er fyrst og fremst sið­ferð­is­leg, vegna þess að helm­ingur dýra sem verða til þarf að aflífafa þar sem han­arnir eru ekki not­aðir. Til við­bótar þykir aflíf­un­ar­að­ferðin með mölun ómann­úð­leg.“

Verið sé að skoða margar leiðir til að leysa þetta. Ein sé sú að rækta svo­kall­aðan „Dual-stofn“, þar sem hægt er að nýta kven­dýrin, hæn­urnar, í eggja­fram­leiðslu en karl­dýrin, han­ana, í kjöt­fram­leiðslu. „Sú leið hefur hingað til ekki náð að breið­ast út og slíkir stofnar eru mjög lítið not­aðir.“'

Kyngreining í eggjum

Önnur leið sé að kyn­greina fóstur í eggjum svo hægt sé að taka karl­kyns fóstur nægi­lega snemma úr útung­un­ar­vélum og farga þeim áður en tauga­kerfi er nægi­lega þroskað til að þeir finni fyrir sárs­auka. Frakk­land og Þýska­land hafa kosið að fara þessa leið og þar með banna aflífun á hanaungum.

„Þessi lönd eru þó ekki alveg sam­mála hversu gam­alt fóstur má vera við aflífun eftir vél­ræna kyn­grein­ingu,“ bendir Brigitte á. Þýska­land ákvað að í byrjun árs 2024 verði bannað að aflífa fóstur eftir 6. dag í útungun. Í Frakk­landi verður það ein­hverjum dögum seinna.

Fylgjast með þróun annarra aflífunaraðferða

„Mölun á fóstrum í eggjum og dags­gömlum ungum er leyfi­leg aðferð,“ ítrekar Brigitte. Um hana er fjallað í reglu­gerð (EB) nr. 1099/2011 um vel­ferð dýra við aflífun sem hefur verið inn­leidd hér. „Aðferðin með mölun virkar ómann­úð­leg en það skiptir máli með þessa aðferð eins og með allar aflíf­un­ar­að­ferðir að rétt sé að henni staðið.“

Mat­væla­stofnun fylgist með þróun mála, þá sér­stak­lega þróun ann­arra aflíf­un­ar­að­ferða og hvort þær verði teknar upp í lög­gjöf­ina. MAST hafi eft­ir­lit með því að varp­hænsna­hald sé í sam­ræmi við kröfur í lögum og reglu­gerðum en „það er ekki hennar hlut­verk að taka afstöðu til sið­ferði­legra spurn­inga“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár