Ramminn: Kjalölduveita og Héraðsvötn verði færð úr verndarflokki í biðflokk

Kjalöldu­veita og fjórir virkj­ana­kostir í Hér­aðs­vötnum í Skaga­firði verða færðir úr vernd­ar­flokki í bið­flokk, ef vilji meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar nær fram að ganga. Nefnd­ar­á­lit hafa ekki verið gerð opin­ber.

Fjórir virkjanakostir í Héraðsvötnum í Skagafirði færast úr verndarflokki í biðflokk, samkvæmt tillögum umhverfis- og samgöngunefndar.
Fjórir virkj­ana­kostir í Hér­aðs­vötnum í Skaga­firði fær­ast úr vernd­ar­flokki í bið­flokk, sam­kvæmt til­lögum umhverfis- og sam­göngu­nefndar. Mynd: skagafjordur.is

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis vill gera tölu­verðar breyt­ingar til­lögu um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sam­kvæmt nefnd­ar­á­liti og breyt­ing­ar­til­lögu sem afgreiddar voru á fundi nefnd­ar­innar í gær.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans leggur meiri­hlut­inn til að fjórir virkj­un­ar­kostir í Hér­aðs­vötnum í Skaga­firði og sömu­leiðis Kjalöldu­veita í efri Þjórsá fær­ist úr vernd­ar­flokki í bið­flokk, auk þess sem vind­orku­vinnsla í Búr­fellslundi fær­ist úr bið­flokki yfir í nýt­ing­ar­flokk.

Einnig er það vilji meiri­hluta nefnd­ar­innar að ekki verði að gripið til frið­lýs­inga vegna virkj­ana­kosta í vernd­ar­flokki í Skjálf­anda­fljóti um sinn, að minnsta kosti ekki þar til búið verði að end­ur­skoða lög um ramma­á­ætlun.

Á móti kemur að meiri­hluti nefnd­ar­innar vill færa Skrokköldu og einnig Holta- og Urriða­foss­virkj­anir í neðri hluta Þjórsár úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk.

Nefndarálit bíður birtingar

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans haldið mál­inu þétt að sér og það var ekki fyrr en undir mið­nætti á mið­viku­dags­kvöld að full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar í þing­nefnd­inni fengu fyrst að líta á drög að nefnd­ar­á­liti, þar sem lagt var upp með áður­nefndar breyt­ing­ar­til­lögur við þennan þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar.

Þær voru svo sam­þykktar á fundi nefnd­ar­innar í gær og koma til kasta Alþingis á allra síð­ustu þing­dög­unum, í næstu viku. Ekki er búið að birta nefnd­ar­á­litið á vef þings­ins.

Náttúruverndarsinnar telja tillögurnar mikið högg

Kjarninn veit til þess að afar mikil kurr er á meðal nátt­úru­vernd­ar­sinna vegna þeirra breyt­inga sem lagt er upp með af hálfu meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Við­mæl­endur Kjarnans telja að nátt­úru­vernd á Íslandi verði fyrir afar þungu höggi ef hug­myndir meiri­hluta nefnd­ar­innar verði nið­ur­staða Alþingis, og að fag­legt ferli ramma­á­ætl­unar verði sömu­leiðis sett í upp­nám. Sáttin sem ramma­á­ætlun hafi verið ætlað að skapa sé „end­an­lega rofin“ ef þetta verði nið­ur­staða þings­ins. Gengið sé of langt í aðra átt­ina og jafn­vægi á milli nýt­ingar og verndar verði raskað með þeim breyt­ingum sem meiri­hluti nefnd­ar­innar leggur til.

[adspot]

Einn við­mæl­andi segir að ára­tuga­löng bar­átta nátt­úru­unn­enda fyrir var­an­legri sátt um vernd Þjórs­ár­vera og far­vegar Þjórsár sé að engu gerð, verði nefnd­ar­á­litið grunnur undir nið­ur­stöðu Alþingis um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar.

Sami við­mæl­andi segir meiri­hluta nefnd­ar­innar „hand­velja“ rök sem styðji breyt­ingar á hverjum virkj­ana­kosti fyrir sig, og hundsa í því hand­vali vís­inda­leg gögn sem mæli með því að ein­staka kostir verði settir í vernd­ar­flokk.[links]

Óánægja er einnig með að Hval­ár­virkjun á Ströndum og Aust­ur­gils­virkjun í Ísa­fjarð­ar­djúpi séu enn hafðar í nýt­ing­ar­flokki, á meðan að þeir virkj­ana­kostir sem meiri­hluti nefnd­ar­innar leggur til að fær­ist úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk séu veiga­litlir kostir eða ólík­legir til þess að verða nokk­urn­tíma að veru­leika – „inn­an­tómar dúsur“ – á meðan að Lands­virkjun fái allar sínar virkj­ana­óskir upp­fylltar í til­lögum meiri­hlut­ans.

Tveir stjórnarflokkanna voru með fyrirvara við málið

Í umræðum um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar eftir að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála­ráð­herra lagði þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sína um málið fram á Alþingi fyrr á árinu gerðu þing­menn bæði Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks grein fyrir því að til­laga ráð­herra hefði verið sam­þykkt með fyr­ir­vörum af þing­flokkum flokk­anna beggja.

Orri Páll Jóhanns­son þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður í umhverfis- og sam­göngu­nefnd sagði frá því að fyr­ir­vari flokks­ins væri svohljóð­andi: „Þing­flokkur Vinstri grænna leggur áherslu á mik­il­vægi vand­aðrar máls­með­ferðar af hendi Alþingis. Gætt verði jafn­vægis milli verndar og nýt­ingar, rétt eins og til­laga verk­efn­is­stjórnar byggir á. Sú fag­lega vinna sem end­ur­spegl­ast í þeirri til­lögu er mik­il­vægur grunnur að vinnu umhverfis- og sam­göngu­nefndar. Í stjórn­ar­sátt­mála er fjallað um afgreiðslu máls­ins með þeim hætti að bið­flokk­ur­inn verði stækk­aður, en við slíkt ferli leggur þing­flokk­ur­inn áherslu á að ofan­greindu jafn­vægi verði við­haldið.“

Halla Signý Krist­jáns­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, gerði svo grein fyrir fyr­ir­var­anum sem þing­flokkur Fram­sóknar sam­þykkti til­lögu Guðlaugs Þórs: „Ramma­á­ætlun er mik­il­vægt verk­færi við mat á virkj­un­ar­kostum. Gagnrýni hefur verið uppi um máls­með­ferð 3. áfanga ramma­á­ætl­unar um að mat fag­hópa 3 og 4 hafi ekki verið hluti af mats­ferl­inu. Þing­flokkur Fram­sóknar vill beina því til umhverfis- og sam­göngu­nefndar að horfa einnig til nið­ur­stöður fag­hópanna. Þá hefur aðferða­fræði afmörk­unar land­svæða sem fara í vernd­ar­flokk verið gagn­rýnd sem og rétt­ar­á­hrif sam­þykktar álykt­un­ar­innar þ.e. að frið­lýs­ing fylgi óhjá­kvæmi­lega í kjöl­far þess að virkj­un­ar­kostur fari í vernd­ar­flokk óháð nátt­úru­vernd­ar­gildi. Þing­flokkur Fram­sóknar leggur áherslu á að hraða þarf orku­skiptum á öllum sviðum. Í vinnu umhverfis- og sam­göngu­nefndar með málið verði í ljósi fram­an­greinds skoðað hvort fjölga megi virkj­un­ar­kostum í bið­flokki og/eða breyta afmörkun virkj­un­ar­kosta í vernd­ar­flokki. Þá er lögð rík áhersla á að í kjöl­far afgreiðslu þings­ins verði lög nr. 48 frá 2011, um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, end­ur­skoðuð í ljósi reynsl­unnar af vinnslu 3. áfanga ramma­á­ætl­unar,“ sagði í fyr­ir­vara Fram­sóknar um málið.

Fréttin var upp­færð nokkrum mín­útum eftir að hún birt­ist: Upp­haf­lega stóð fyrir mis­gán­ing í und­ir­fyr­ir­sögn að til stæði að færa Kjalöldu­veitu og kostir í Hér­aðs­vötnum hefðu verið færðir úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk. Hið rétta er að kost­irnir hafa verið í vernd­ar­flokki, og lagt er til að þeir fær­ist í bið­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár