Landsvirkjun vill virkjanir í Héraðsvötnum og Skjálfanda í biðflokk

„Óaft­ur­kræfar afleið­ingar“ hljót­ast af verndun heilla vatna­sviða í kjöl­far flokk­unar eins virkj­ana­kosts í vernd­ar­flokk, segir í umsögn for­stjóra Lands­virkj­unar um til­lögu að ramma­á­ætlun. Raf­orku­kerfið sé fast að því „fullselt“.

Hrafnabjargafoss í Skjálfandafljóti.
Hrafna­bjarga­foss í Skjálf­anda­fljóti. Mynd: Landvernd/Mats Wibe Lund

Lands­virkjun óskar eftir því að umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis, sem nú hefur þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að 3. áfanga ramma­á­ætl­unar til umfjöll­unar, færi virkj­ana­kost­inn Kjalöldu­veitu úr vernd­ar­flokki í bið­flokk og Búr­fellslund úr bið­flokki í nýt­ingu. Fyr­ir­tækið bendir enn­fremur í umsögn sinni um til­lög­una á þær „óaft­ur­kræfu afleið­ingar sem verndun heilla vatna­sviða í kjöl­far flokk­unar eins virkj­un­ar­kosts í vernd­ar­flokk hefur í för með sér. Slík flokkun getur þannig komið í veg fyrir alla fram­tíð­ar­nýt­ingu vatna­sviðs­ins, óháð stað­setn­ingu eða stærð­argráðu. Fyr­ir­tækið mælist til að slíkar ákvarð­anir verði látnar bíða heild­stæðrar end­ur­skoð­unar á ramma­á­ætlun og umræddir virkj­un­ar­kostir í vatns­afli verði færðir í bið­flokk“.

Nokkrir virkj­ana­kostir fyr­ir­tæk­is­ins í ann­ars vegar Hér­aðs­vötnum (Jökulsá aust­ari og vest­ari) eru í vernd­ar­flokki til­lög­unnar sem og nokkrir kostir í Skjálf­anda­fljóti.

[adspot]

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar er nú komin til þing­legrar með­ferðar í fjórða sinn á rúm­lega fimm árum. Núgild­andi ramma­á­ætlun, þar sem virkj­ana­hug­myndir eru flokk­aðar í nýt­ingar-, bið- og vernd­ar­flokk, er frá árinu 2013 og er því orðin níu ára gömul. Verk­efn­is­stjórnir næstu tveggja áfanga hafa lokið störfum og stjórn þess fimmta þegar hafið störf.

[links]Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfang­ann. Því er hins vegar bætt við í sömu setn­ingu að fjölga eigi kostum í bið­flokki. Hægt er að hreyfa við flokk­un­inni svo lengi sem Orku­stofnun hefur ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki eða svæði í vernd­ar­flokki hafi verið frið­lýst.

Um 80 kostir í jarð­varma, vatns­afli og vind­orku eru flokk­aðir í þrennt í til­lög­unni sem byggir alfarið á nið­ur­stöðu verk­efn­is­stjórnar áætl­un­ar­innar sem skil­aði af sér loka­skýrslu á ágúst árið 2016. Lands­virkjun telur hins vegar ákvörðun verk­efn­is­stjórn­ar­innar um að raða Kjalöldu­veitu í vernd­ar­flokk ekki í sam­ræmi við lög. Stjórnin hafi tekið stjórn­valds­á­kvörðun sem hún sé ekki bær að lögum til að taka með því að raða kost­inum beint í vernd­ar­flokk án umfjöll­unar fag­hópa. Var það gert á þeim rökum að Kjalöldu­veita væri breytt útfærsla Norð­linga­öldu­veitu sem væri í vernd­ar­flokki, að sama vatna­svið, Þjórs­ár­ver, væri undir í báðum til­vikum.

Lands­virkjun telur að ákvörðun verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar um flokkun Kjalöldu­veitu í vernd­ar­flokk án umfjöll­unar fag­hópa hafi verið ólög­mæt og óskar því eftir því að honum verði í með­förum Alþingis raðað í bið­flokk.

Raforkukerfið fullselt

„Við stöndum á tíma­mótum þar sem orku­þörf eykst og ákall heims­ins er að sú orka verði end­ur­nýj­an­leg,“ segir í umsögn Lands­virkj­unar sem Hörður Arnarson, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, ritar. Breyt­ingar sem nú þegar eru hafnar og munu aukast umtals­vert á næstu ára­tugum s.s. orku­skipti og 4. iðn­bylt­ingin séu þar gott dæmi. „Lands­virkjun styður heils­hugar metn­að­ar­full áform rík­is­stjórn­ar­innar í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum og mark­mið um full orku­skipti eigi síðar en árið 2040. Fyr­ir­tækið bendir á að eigi þau mark­mið að nást er nauð­syn­legt að auka orku­öflun.“

Hörður skrifar að raf­orku­kerfið sé fast að því fullselt og raf­orku­flutn­ings­kerfið full­lestað. Megi í því sam­hengi benda á nýlegar skerð­ingar til við­skipta­vina Lands­virkj­unar sem séu að hluta til til komnar vegna hind­r­ana í flutn­ings­kerfi raf­orkunnar. „Í því ljósi bendir Lands­virkjun á að mik­il­vægt er að hafa stað­setn­ingu virkj­un­ar­kosta til hlið­sjónar við röðun á virkj­un­ar­kostum í nýt­ing­ar­flokk, bið­flokk og vernd­ar­flokk,“ skrifar Hörður. „Fyrirséð er að orku­þörf muni aukast mikið á sunn­an­verðu land­inu og því er æski­legt að tæki­færi séu til auk­innar orku­öfl­unar í þeim lands­hluta.“

Þeir virkj­ana­kostir sem Lands­virkjun áformar að virkja næst eru allir í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt núgild­andi ramma­á­ætlun. Þetta eru Hvamms­virkjun í Þjórsá (93 MW), virkj­anir á veitu­leið Blöndu (28 MW) og stækkun Þeista­reykja­virkj­unar.

Í til­lögu að 3. áfanga áætl­un­ar­innar eru fjórir nýir virkj­ana­kostir Lands­virkj­unar settir í nýt­ing­ar­flokk: Skrokköldu­virkjun á vatna­sviði Köldu­kvíslar, Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun í neðri hluta Þjórsá og vind­orku­kost­ur­inn Blöndu­lundur. Ekki var breytt flokkun fjög­urra virkj­ana­hug­mynda fyr­ir­tæk­is­ins í nýt­ing­ar­flokki: Hvamms­virkjun, virkj­anir á veitu­leið Blöndu­virkj­unar, Bjarn­arflags­virkjun og Kröflu­virkjun.

Sex nýir virkj­un­ar­kostir Lands­virkj­unar eru í bið­flokki til­lög­unnar: Tvær útfærslur virkj­unar Hólmsár, Stóra-Laxá, Hágöngu­virkjun, jarð­varma­kost­ur­inn Fremri­námar og vind­orku­kost­ur­inn Búr­fellslundur.

Í vernd­ar­flokki til­lög­unnar eru þrír kostir Lands­virkj­unar í Hér­aðs­vötnum: Skata­staða­virkj­anir C og D og Vill­inga­nes­virkjun. Í þann flokk er enn­fremur lagt til að setja fjórar virkj­ana­hug­myndir fyr­ir­tæk­is­ins í Skjálf­anda­fljóti: Fljóts­hnjúks­virkjun og Hrafna­bjarga­virkj­anir A, B og C. Allir þessir kostir eru flokk­aðir í bið­flokk í núgild­andi ramma­á­ætlun.

[adspot]

Verk­efn­is­stjórn þriðja áfanga lagði svo ekki til breyt­ingar á flokkun fimm kosta sem eru þegar í vernd­ar­flokki núgild­andi ramma­á­ætl­unar. Þar eru hinar fyrr­nefndu virkj­anir kenndar við Kjalöldu ann­ars vegar og Norð­inga­öldu hins vegar, báðar á vatna­sviði Þjórsár, ein útgáfa Hólmsár­virkj­unar, Tungna­ár­lón og Gjá­stykki. Ljóst er að ekki verður hróflað við flokkun þriggja þess­ara virkj­ana­hug­mynda því Guð­mundur Ingi Guð­brands­son frið­lýsti hluta Hólmsár, Gjá­stykki og Tungnaá á síð­asta kjör­tíma­bili er hann var umhverf­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár