Vilja virkjanir í Skagafirði úr vernd í biðflokk

Byggð­ar­ráð Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar vill að Alþingi færi fjóra virkj­ana­kosti í jök­ulám í Skaga­firði úr vernd­ar­flokki í bið­flokk er kemur að afgreiðslu ramma­á­ætl­unar. Virkj­an­irnar yrðu í óbyggðu víð­erni og í ám sem eru vin­sælar til flúða­sigl­inga.

Jökulsárnar í Skagafirði eiga upptök í Hofsjökli og vatnasvið þeirra er lítt raskað.
Jök­ulsárnar í Skaga­firði eiga upp­tök í Hofsjökli og vatna­svið þeirra er lítt raskað. Mynd: Landvernd

Meiri­hluti byggð­ar­ráðs Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar fer fram á að Alþingi breyti fram­kominni þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar á þann veg að Skaga­fjarð­ar­virkj­anir fari í bið­flokk og verði þar með rann­sak­aðar til fulls, sem aftur verði grund­völlur ákvarð­ana­töku síðar meir um hvort þessir kostir verði hag­nýttir til orku­öfl­unar eða þeir látnir njóta verndar.

[links]Þrjár virkj­ana­hug­myndir í Hér­aðs­vötnum, Skata­staða­virkj­anir C og D og Vill­inga­nes­virkjun eru í vernd­ar­flokki þings­á­lykt­un­ar­til­lögu ramma­á­ætl­unar sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra hefur mælt fyrir á Alþingi. Hann er fjórði umhverf­is­ráð­herr­ann sem leggur fram sömu til­lög­una sem byggir á loka­skýrslu og til­lögu verk­efn­is­stjórnar sem skilað var í ágúst árið 2016.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar frá því í nóv­em­ber er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar. Því er hins vegar bætt við, í sömu setn­ingu, að kostum í bið­flokki verði fjölgað.

Hægt er að hreyfa við flokkun virkj­ana­kosta í ramma­á­ætlun svo lengi sem Orku­stofnun hefur ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki og svæði í vernd­ar­flokki hafi ekki verið frið­lýst með lögum.

[adspot]

Í nýrri umsögn byggð­ar­ráðs sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar við þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una er bent á að einn virkj­ana­kostur á vatna­sviði á Norð­ur­landi vestra sé í orku­nýt­ing­ar­flokki og einn virkj­ana­kostur í vind­orku. Er þar um að ræða ann­ars vegar veitu­leið Blöndu­virkj­unar og hins vegar Blöndu­lund, kosti á vegum Lands­virkj­unar. Fjórar séu hins vegar í vernd­ar­flokki, allir einnig á vegum Lands­virkj­unar, en auk virkj­anna í Hér­aðs­vötnum er kost­ur­inn Blanda – veita úr Vestari Jökulsá, sem er reyndar einnig á vatna­sviði Hér­aðs­vatna, þar einnig að finna.

Svokölluð Skata­staða­virkjun C er í bið­flokki núgild­andi ramma­á­ætl­unar sem sam­þykkt var á Alþingi árið 2013 þar sem talin var þörf á frek­ari upp­lýs­ingum um áhrif á líf­ríki flæði­engja nærri árósum. Vatna­svið Hér­aðs­vatna fékk hins vegar hæsta verð­mæta­mat allra land­svæða sem fjallað var um af fag­hópi þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar.

Virkj­un­ar­kost­ur­inn er á svæði sem er óbyggt víð­erni sam­kvæmt laga­legri skil­grein­ingu. Virkjun á svæð­inu myndi hafa í för með sér umtals­vert rask á hálendi, svo og á sífrera­rústum og fleiri fyr­ir­bærum sem Íslend­ingar bera alþjóð­lega ábyrgð á. Virkjun myndi slíta sundur vist­kerfi og sam­fé­lög líf­vera, hafa mikil nei­kvæð áhrif á vist­gerðir með veru­legt vernd­ar­gildi skv. nátt­úru­vernd­ar­lögum og valda mik­illi röskun vegna breyt­inga á rennsli og fram­burði, sér­stak­lega á flæði­engjum sem hafa mikið vist­fræði­legt gildi og eru þær umfangs­mestu á land­inu. Þá gætu fram­kvæmd­irnar spillt stórum minja­heildum í Austur- og Vest­ur­dal frá árunum 870-1400, sem jafn­vel eru ein­stakar á heims­vísu. Einnig yrði mikil skerð­ing á sjón­rænni fjöl­breytni og á fágætum lands­lags­gerðum.

Í nið­ur­stöðum ann­ars fag­hóps kemur fram að jök­ulsárnar í Skaga­firði séu bestu ár á land­inu, og jafn­vel í Evrópu, til flúða­sigl­inga og að Jökulsá eystri sé sú eina á land­inu þar sem hægt er að fara í tveggja daga sigl­ingu. Árnar séu því mjög mik­il­vægar fyrir ferða­þjón­ustu bæði á lands­vísu og í hér­aði. Virkjun þess­ara vatns­falla myndi því í raun hafa meiri áhrif en með­al­tal áhrifa­ein­kunna fag­hóps­ins gefur til kynna.

Í kynn­ingu Lands­virkj­unar á Skata­staða­virkj­unum kemur fram að minna rennsli að sum­ar­lagi geti haft áhrif á fljóta­sigl­ingar í Austari Jökulsá en „aðgengi að hálend­inu mun batna til muna“.

Í kafla um set­myndum og aur­burð segir að stór hluti aurs í Austari Jökulsá muni falla út í Bugslóni (lík­lega minnst 80 pró­sent) og sömu­leiðis mun eitt­hvað draga úr fram­burði aurs í Vestari Jökulsá vegna Fossá­ar­veitu. „Minni fram­burður gró­f­efnis gæti minnkað eða stöðvað fram­gang strandar við botn Skaga­fjarðar.“ Lónið yrði 26 fer­kíló­metrar, lengd stíflu 2,4 km og mesta hæð stíflu 75 metrar. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkja 74,5 metrar á hæð.

Skata­staða­virkjun D er til­brigði við Skata­staða­virkjun C. Með henni yrði lægra fall virkjað og þannig haldið opnum mögu­leika á annarri virkjun í Hér­aðs­vötnum, Vill­inga­nes­virkjun. Báðir þessir kostir eru einnig í bið­flokki núgild­andi ramma­á­ætl­unar.

Fjórði virkj­ana­kost­ur­inn í Skaga­firði sem er í vernd­ar­flokki þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar, Blanda – veita úr Vestari Jökulsá, var ekki kom­inn til sög­unnar er 2. áfangi var sam­þykktur.

Byggð­ar­ráðið bendir á í umsögn sinni að með því að setja virkj­ana­kost­ina fjóra í vernd­ar­flokk er stjórn­völdum ekki lengur heim­ilt að veita leyfi tengd orku­rann­sóknum. „Með öðrum orðum, nái til­laga ráð­herra fram að ganga, verður með öllu óheim­ilt um ófyr­ir­séða fram­tíð að stunda orku­rann­sóknir á þeim virkj­un­ar­kostum sem lagðir eru til að fari í vernd­ar­flokk á Norð­ur­landi vestra, nema fyrir Orku­stofnun til að geta sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu, í sam­an­burð­ar­til­gangi eða öðrum almennum til­gangi,“ segir í umsögn­inni. „Er grafal­var­legt að umhverf­is­ráð­herra horfi í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni með öllu fram hjá þeirri stað­reynd að orku­skortur hefur orðið víða um land og að virkj­anir og flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku anna ekki eft­ir­spurn víða á lands­byggð­inni. Orku­skortur kann því að hamla bæði atvinnu­upp­bygg­ingu og orku­skiptum, s.s. raf­bíla­væð­ingu.“

[adspot]

Gísli Sig­urðs­son Sjálf­stæð­is­flokki og Ingi­björg Huld Þórð­ar­dóttir Fram­sókn­ar­flokki sam­þykktu bókun byggð­ar­ráðs­ins þar sem farið var fram á að Alþingi breyti þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni á þann veg að Skaga­fjarð­ar­virkj­an­irnar fari í bið­flokk ramma­á­ætl­unar. Ólafur Bjarni Har­alds­son, full­trúi Byggða­list­ans, sat hjá. Álf­hildur Leifs­dóttir, full­trúi Vinstri grænna og óháðra sat einnig hjá en lét bóka að hún fagn­aði til­lögu verk­efn­is­stjórnar að færa Hér­aðs­vötn í vernd­ar­flokk. „Hér­aðs­vötnin eru verð­mæt nátt­úru­auð­lind fyrir hér­aðið og koma til með að auka verð­mæti sitt óspillt til fram­tíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár