Landsvirkjun vill Kjalöldu í Þjórsá aftur á dagskrá

Það er mat Lands­virkj­unar að nauð­syn­legt sé að taka ferli ramma­á­ætl­unar „til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar“. Ljóst sé að sú sátt sem von­ast var til að næð­ist um nýt­ingu og verndun land­svæða hafi ekki orðið að veru­leika.

Kjalölduveita yrði í efri hluta Þjórsár.
Kjalöldu­veita yrði í efri hluta Þjórsár. Mynd: Landsvirkjun

Í nýrri umsögn Lands­virkj­unar um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu 3. áfanga ramma­á­ætl­unar er sjónum sér­stak­lega beint að tveimur virkj­ana­kostum sem fyr­ir­tækið er ósátt við flokkun á; Kjalöldu­veitu í efri hluta Þjórsár og Búr­fellslundar, fyr­ir­hug­uðu vind­orku­veri sem útfært er nú með tölu­vert öðrum hætti en þegar verk­efn­is­stjórn áætl­un­ar­innar tók kost­inn til umfjöll­unar. Vill Lands­virkjun að Kjalöldu­veita verði færð úr vernd­ar­flokki í bið­flokk og Búr­fellslundur úr bið­flokki í orku­nýt­ing­ar­flokk.

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar komst að því á sínum tíma að Kjalöldu­veita væri í raun breytt útfærsla á Norð­linga­öldu­veitu, og að sama vatna­svið, Þjórs­ár­ver, yrði fyrir áhrifum. Ákveðið var að setja Norð­linga­öldu­veitu í vernd­ar­flokk árið 2013.

[adspot]

Lands­virkjun þykir ljóst að við fram­kvæmd ramma­á­ætl­unar hafi ekki verið farið eftir lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun. Tiltekur fyr­ir­tækið í umsögn sinni í þessu sam­bandi ófull­nægj­andi söfnun gagna til röð­unar á virkj­un­ar­kostum, skort á laga­legri heim­ild til­vernd­unar heilla vatna­sviða þegar virkj­ana­kostir fara í vernd­ar­flokk, auk þeirrar ákvörð­unar verk­efn­is­stjórnar „að ganga fram­hjá valdsviði Orku­stofn­unar og ákvarða sjálf hvaða virkj­un­ar­kostir eru teknir til umfjöll­unar“.

[links]Umsagna­frestur um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar rann út í fyrradg en hún hefur nú verið lögð fyrir Aþingi í þriðja sinn frá árinu 2016. Í áætl­un­inni er virkj­ana­kostum raðað í verndar-, nýt­ingar- eða bið­flokk. Verk­efn­is­stjórn 3. áfanga skil­aði loka­skýrslu sinni um flokkun 82 virkj­un­ar­kosta til umhverf­is­ráð­herra í ágúst árið 2016. Ráð­herr­ann, Sigrún Magn­ús­dóttir, lagði í kjöl­farið fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í fullu sam­ræmi við til­lögur verk­efn­is­stjórn­ar­innar. Tillagan var ekki afgreidd í ráð­herra­tíð Sigrúnar og ekki heldur í tíð Bjartar Ólafs­dóttur.

Tillagan hefur nú verið lögð fram í þriðja sinn og enn í óbreyttri mynd – tæp­lega fjórum og hálfu ári eftir að verk­efn­iss­stjórn skil­aði loka­skýrslu sinni til ráð­herra. Að þessu sinni er það Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sem leggur hana fram en sam­kvæmt henni fara átján virkj­ana­kostir í orku­nýt­ing­ar­flokk, þar af aðeins einn kostur í vind­orku; Blöndu­lundur. Samkvæmt til­lög­unni eru 26 virkj­ana­kostir í vernd­ar­flokki.

Segir sáttina ekki hafa náðst

Í umsögn Lands­virkj­unar segir að sú sátt sem von­ast var til að myndi nást um nýt­ingu og verndun land­svæða hafi ekki orðið að veru­leika. „Þær miklu tafir sem orðið hafa á sam­þykkt 3. áfanga ramma­á­ætl­un­ar­innar á Alþingi, síðan hún var fyrst lögð fram árið 2016, sýnir grund­vall­argalla á lög­gjöf­inni sem ekki er hægt að líta fram hjá.“ Það er því mat Lands­virkj­unar að nauð­syn­legt sé að taka ferli ramma­á­ætl­unar „til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar“.

Fyr­ir­tækið telur að mat verk­efn­is­stjórnar á áhrifum virkj­ana­kosta hafi verið ófull­nægj­andi og ekki í sam­ræmi við lög. Bendir fyr­ir­tækið m.a. á að ekki hafi verið tekið til­lit til nið­ur­staðna allra fag­hópa ramma­á­ætl­unar áður en flokk­unin fór fram líkt og lög kveði á um. Þá telur Lands­virkjun afmörkun land­svæða ekki í sam­ræmi við lög og að verk­efn­is­stjórn hafi ekki verið heim­ilt „að setja heil vatna­svið í vernd­ar­flokk“ á grund­velli nið­ur­stöðu tveggja af fjórum fag­hópum og „setja síðan alla virkj­un­ar­kosti á við­kom­andi vatna­sviði í vernd­ar­flokk“. Óskar Lands­virkjun því eftir end­ur­skoðun á afmörkun land­svæða.

Það eru einkum flokkun tveggja virkj­ana­kosta sem Lands­virkjun gagn­rýnir sér­stak­lega í þessu sam­bandi; Kjalöldu­veitu, sem yrði í efri hluta Þjórsár, og Búr­fellslundar. Fyr­ir­tækið segir að þrátt fyrir að það sé Orku­stofnun sem lögum sam­kvæmt ákveði hvaða kostir fái umfjöllun hafi verk­efn­is­stjórnin ein­hliða ákveðið að ekki skildi fjallað um Kjalöldu­veitu. Honum hafi verið „raðað beint í vernd­ar­flokk án umfjöll­unar fag­hópa. Með því má halda því fram að verk­efn­is­stjórn hafi tekið stjórn­valds­á­kvörðun sem hún er ekki bær að lögum til að taka“.

Breytt útfærsla Norðingaölduveitu

Kjalöldu­veitu er raðað í vernd­ar­flokk verk­efn­is­stjórn­ar­innar með eft­ir­far­andi rök­stuðn­ingi: „Að fengnu áliti fag­hópa 1 og 2 taldi verk­efn­is­stjórn að um væri að ræða breytta útfærslu Norð­linga­öldu­veitu, að sama vatna­svið, Þjórs­ár­ver, sé undir í báðum til­vikum og að virkj­un­ar­fram­kvæmdir á þessu land­svæði muni hafa áhrif sem skerði vernd­ar­gildi svæð­is­ins. Ákvörðun um að setja Norð­linga­öldu­veitu í vernd­ar­flokk í verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun 2013 byggð­ist fyrst og fremst á sér­stöðu og vernd­ar­gildi svæð­is­ins.

Þrátt fyrir að nafn virkj­un­ar­kosts­ins sé annað, vatns­borð lóns­ins sé lægra, lónið minna og mann­virki neðar í far­veg­inum hafa fram­kvæmd­irnar áhrif á sama land­svæði og því hefur þessi breytta útfærsla virkj­un­ar­kosts­ins ekki áhrif á þessar grunn­for­sendur flokk­un­ar­innar.“

Lands­virkjun telur hins vegar að ákvörðun verk­efn­is­stjórn­ar­innar hafi verið ólög­mæt og óskar eftir að Kjalöldu­veitu verði raðað í bið­flokk, „þannig að hægt verði að leggja virkj­un­ar­kost­inn fyrir fag­hópa með lög­form­legum hætti“.

Segir í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins að stækkun friðlands­ins í Þjórs­ár­verum árið 2017 und­ir­striki þann „grund­vall­ar­mun sem er á Kjalöldu­veitu og Norð­linga­öldu­veitu“, en mann­virki og lón Kjalöldu­veitu eru „alfarið utan friðlands­markanna“.

Búrfellslundur allt annar í dag

Hinn virkj­ana­kost­ur­inn sem Lands­virkjun fjallar sér­stak­lega um í umsögn sinni er vind­orku­garð­ur­inn Búr­fellslundur. Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er hann flokk­aður í bið­flokk.

Ný útfærsla hefur verið gerð á hinum fyr­ir­hug­aða Búr­fellslundi að teknu til­liti til athuga­semda í umfjöllun 3. áfanga ramma­á­ætl­unar sem og umhverf­is­mati sem lauk árið 2016. Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði er nú stað­sett enn nær orku­mann­virkjum en áður, innan stærsta orku­vinnslu­svæðis lands­ins, þar sem núver­andi háspennu­línur liggja þvert yfir svæðið, bendir Lands­virkjun á. Jafn­framt hafi verið dregið úr umfangi verk­efn­is­ins, bæði í stærð fram­kvæmda­svæðis (úr 33 km2 í 18 km2) og í upp­settu afli (úr 200 MW í 120 MW).

Fjölda vind­mylla hefur sömu­leiðis verið fækkað úr 67 niður í allt að 30. Með þessu seg­ist Lands­virkjun hafa brugð­ist við áliti Skipu­lags­stofn­unar varð­andi umfangs­minni upp­bygg­ingu og að afrakst­ur­inn sé tölu­vert breytt ásýnd með minni sjón­rænum áhrifum.

Í ljósi þeirra breyt­inga sem hafa verið gerðar á verk­efn­inu og tafa sem orðið hafa á afgreiðslu 3. áfanga ramma­á­ætl­unar, telur Lands­virkjun eðli­legt að horfa til nýrrar útfærslu Búr­fellslundar í stað eldri útfærslu þegar 3. áfangi ramma­á­ætl­unar er tek­inn til umræðu á Alþingi. Lands­virkjun óskar eftir því að flokkun Búr­fellslundar verði breytt þannig að virkj­un­ar­kost­ur­inn rað­ist í nýt­ing­ar­flokk í stað bið­flokks á grund­velli nýrrar útfærslu sem er til umfjöll­unar í 4. áfanga ramma­á­ætl­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár