Setja á fót tímabundna ráðherranefnd um málefni innflytjenda og flóttafólks

For­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og mennta- og barna­mála­ráð­herra munu skipa nýja ráð­herra­nefnd um mál­efni inn­flytj­enda og flótta­fólks, sem á að vinna mark­visst að áherslum stjórn­ar­sátt­mála í þessum mála­flokkum.

Ríkisstjórnin samþykkti skipan nýju ráðherranefndarinnar á fundi sínum í morgun.
Rík­is­stjórnin sam­þykkti skipan nýju ráð­herra­nefnd­ar­innar á fundi sínum í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra munu sitja saman í nýrri tíma­bund­inni ráð­herra­nefnd um mál­efni inn­flytj­enda og flótta­fólks, sem rík­is­stjórnin sam­þykkti að skipa í morgun.

Fram kemur í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að nefndin muni einnig eiga nána sam­vinnu við Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og svo aðra ráð­herra eftir atvikum á starfs­tíma ráð­herra­nefnd­ar­innar.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að hlut­verk nefnd­ar­innar verði að vinna mark­visst að áherslum stjórn­ar­flokk­anna þriggja í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­fólks.

„Málefni inn­flytj­enda varða mál­efna­svið margra ráðu­neyta auk sveit­ar­fé­laga og ýmissa stofn­ana. Því er nauð­syn­legt að tryggja öfl­uga sam­vinnu og sam­hæf­ingu í mála­flokknum og er skipun ráð­herra­nefndar liður í því,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Fleiri á flótta og innlent vinnuafl skortir

Þar er rakið að það sem af er ári hafi tæp­lega 1.700 ein­stak­lingar sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi, að fjöldi flótta­fólks í heim­inum í ár sé kom­inn yfir 100 millj­ónir og að spár bendi til þess að þving­aðir fólks­flutn­ingar muni aukast á næstu árum vegna lofts­lags­breyt­inga og versn­andi umhverf­is­að­stæðna.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir einnig að árið 2021 hafi um 15,5 pró­sent íbúa lands­ins verið inn­flytj­endur og að ef hag­vaxt­ar­spár gangi eftir sé „ljóst að erfitt verður að manna þau störf sem verða til á næstu árum með inn­lendu vinnu­afli“.

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni er einnig fjallað um þau atriði sem stjórn­ar­flokk­arnir þrír sam­mælt­ust um í stjórn­ar­sátt­mála í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­fólks og hlut­verk ráð­herra­nefnd­ar­innar verður að vinna eftir.

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum kemur meðal ann­ars fram að þátt­taka fólks af erlendum upp­runa auki fjöl­breyti­leika, efli íslenskt sam­fé­lag og menn­ingu og sé ein for­senda fyrir vexti efna­hags­lífs­ins og að tryggja þurfi að inn­flytj­endur sem hér vilji búa og starfa fái tæki­færi til aðlög­unar og geti nýtt hæfi­leika sína og þekk­ingu.

„Meðal áherslu­at­riða í mála­flokknum sem birt­ast í stjórn­ar­sátt­mála er að mótuð verði skýr og heild­stæð stefna í mál­efnum útlend­inga, rík áhersla verði lögð á stuðn­ing til aðlög­unar við börn af erlendum upp­runa og fjöl­skyldur þeirra og að lög um útlend­inga og lög um atvinnu­rétt­indi útlend­inga verði end­ur­skoðuð. Mik­il­vægt er að gæta að jafn­vægi milli ólíkra þátta, þ.e. í fyrsta lagi mann­úð­ar­sjón­ar­miða, í öðru lagi sjón­ar­miða um efna­hags­lega hag­sæld, lífs­gæði og vöxt og í þriðja lagi þarf að meta mann­afla­þörf hér á landi til að tryggja vel­ferð­ar­sam­fé­lag og vel­megun þjóðar til fram­tíðar.

Einnig er lögð áhersla á að umsókn­ar­ferli um dvalar- og atvinnu­leyfi ein­stak­linga sem sinna störfum sem krefj­ast sér­fræði­þekk­ingar verði ein­faldað. Þá verði unnið að því að auka hraða og skil­virkni í afgreiðslu mála í sam­ræmi við flótta­manna­samn­ing Sþ, áfram verði aukið við mót­töku kvótaflótta­fólks og unnið verði að því að auka traust og gagn­sæi um ákvarð­anir útlend­inga­yf­ir­valda,“ segir einnig í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Sigmundur Davíð setti ráðherranefnd á laggirnar 2015

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­fólks er sett á lagg­irnar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugssson þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins lagði til að slík nefnd yrði skipuð árið 2015.

Nefnd þeirrar rík­is­stjórnar Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks hafði það að mark­miði að sam­ræma starf ráðu­neyta og stofn­ana í mála­flokk­unum og meta hvernig fram­lag Íslands nýtt­ist best til að ná mark­miðum um mann­úð­ar­að­stoð og aðstoð við flótta­menn, hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur og sam­fé­lags­mál tengd mála­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár