Þórdís Lóa segir ekki ólíklegt að Viðreisn og Framsókn séu að fara að vinna saman

Oddviti Við­reisnar segir Sam­fylk­ingu, Pírata og Viðreisn eiga mál­efna­lega sam­leið í mik­il­vægum mála­flokkum og að Framsókn virð­ist standa nærri þeim. Það sé þó ljóst að gamli meiri­hlut­inn sé fall­inn og að næstu skref séu að mynda nýjan.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti og eini borg­ar­full­trúi Við­reisnar í Reykja­vík, segir að það sé ekki ólík­legt að Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokkur séu að fara að vinna saman í borg­inni, þótt aðrir leikir séu vissu­lega í stöð­unni.

Hún segir ljóst að gamli meiri­hlut­inn, sem Viðreisn var hluti af, sé fall­inn og að næstu skref séu að mynda nýjan meiri­hluta. „Í þessum fyrstu skrefum munum við standa saman; Viðreisn, Sam­fylk­ing og Píratar. Við vitum að mál­efna­lega eigum við sam­leið í mik­il­vægum mála­flokkum sem snúa að fram­tíð borg­ar­innar; í skipu­lags­málum, sam­göngu­málum og staf­rænu upp­bygg­ing­unni. Þetta eru allt saman mála­flokkar þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist standa nærri okkur, sé mið tekið af kosn­inga­lof­orðum. En slíkur meiri­hluti yrði annar meiri­hluti en sá sem er nú að líða undir lok. Það er alveg aug­ljóst.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook sem hún birti í dag.

Tapaði manni og fylgi en er í lykilstöðu

Viðreisn fékk 5,2 pró­sent atkvæða á laug­ar­dag í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík og tap­aði þremur pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Það varð til þess að flokk­ur­inn tap­aði öðrum borg­ar­full­trúa sínum. Flokk­ur­inn er ákveð­inni lyk­il­stöðu þar sem stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, getur ekki myndað meiri­hluta án Við­reisnar í ljósi þess að Píratar, Sós­í­alista­flokkur Íslands og Sam­fylk­ing hafa úti­lokað sam­starf við hann og Vinstri græn ætla að vera í minni­hluta eftir að hafa fengið fjögur pró­sent atkvæða.

[adspot]Haldi þessi staða er eina leið Sjálf­stæð­is­flokks til að mynda meiri­hluta að ná með sér Framsókn, Viðreisn og Flokki fólks­ins. Viðreisn á líka mögu­leika að mynda sterkan 13 manna meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Fram­sókn­ar­flokki og þeir tveir fyrr­nefndu virð­ast horfa mun frekar til Við­reisnar sem sam­starfs­flokks en Sós­í­alista­flokks Íslands, sem fékk tvo borg­ar­full­trúa kjörna.

Enginn einn borgarstjóri ræður Reykjavík næstu árin

Þórdís Lóa segir í stöðu­upp­færsl­unni að Viðreisn sé aftur komið í það hlut­verk að aðrir flokkar vilja vinna með þeim í Reykja­vík, hvoru megin miðju sem þeir standa, nema einna helst Sós­í­alista­flokk­ur­inn sem Viðreisn treysti sér þó alveg til að vinna með. „Þessi staða kemur ekki af sjálfu sér, heldur vegna þess að Viðreisn getur unnið bæði til hægri og vinstri og við sýndum það á síð­asta kjör­tíma­bili. Við vorum í meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri grænum. En við unnum líka náið með Sjálf­stæð­is­flokknum að ýmsum verk­efnum, t.a.m. að nýrri eig­enda­stefnu borg­ar­innar og atvinnu- og nýsköp­un­ar­stefnu.“

Hún seg­ist hafa átt gott kaffi­spjall við Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sóknar sem fékk fjóra menn kjörna um liðna helgi, þar sem þau fóru yfir málin og hvar flokk­arnir tveir standa. „Af þeim meiri­hluta­mögu­leikum sem eru uppi er ekki ólík­legt að Viðreisn og Framsókn séu að fara að vinna saman, þó aðrir leikir séu vissu­lega í stöð­unni. Hver sem nið­ur­staðan verður í þessum blikk­leik, þá skiptir það mestu að kom­ast að nið­ur­stöðu um mál­efna­samn­ing sem bindur næsta meiri­hluta saman. Það eru mál­efnin sem eiga að ráða för en ekki stól­arnir.“

Hún segir að eng­inn einn borg­ar­stjóri muni ráða í Reykja­vík næstu árin. „Þannig var það ekki á síð­asta kjör­tíma­bili og þannig verður það ekki á því næsta. Hver meiri­hluti er sam­starf ólíkra flokka, þar sem sjón­ar­mið allra kom­ast að.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár