Vinstri græn vilja ekki taka þátt í meirihlutaviðræðum

Oddviti Vinstri grænna í Reykja­vík segir nið­ur­stöðu kosn­ing­anna von­brigði. Flokk­ur­inn ætlar ekki að sækj­ast eftir því að sitja áfram í meiri­hluta. Oddviti Við­reisnar von­ast hins vegar til að starfa áfram í meiri­hluta.

Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík.
Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Vinstri græn munu ekki sækj­ast eftir því að taka þátt í við­ræðum um meiri­hluta­sam­starf í borg­inni. Frá þessu greinir Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík, á Facebook.

Líf segir það gleði­legt að flokk­ur­inn hafi haldið sínum borg­ar­full­trúa en að nið­ur­stöður kosn­ing­anna séu veru­leg von­brigði fyrir flokk­inn. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinsti grænna, sagði í Silfr­inu á RÚV í morgun að flokk­ur­inn þurfi að velta fyrir sér hvort hann eigi erindi í borg­ar­stjórn eftir nið­ur­stöðu kosn­ing­anna.

[adspot]Líf ráð­færði sig við félaga í flokknum og eru þau sam­mála um að „nið­ur­staða kosn­ing­anna kalli á að við Vinstri græn leggj­umst vel yfir það hvernig okkur getur tek­ist betur að koma okkar mál­efnum til skila. Til þess ætlum við að gefa okkur svig­rúm.“

[links]Líf segir að flokknum hafi ekki tek­ist að afreka það sem þau höfðu vænt­ingar til, að styrkja rödd félags­legs rétt­lætis, kven­frelsis og umhverf­is­verndar í borg­ar­stjórn með því að bæta við borg­ar­full­trúum.

Frá­far­andi meiri­hluti féll í kosn­ing­unum í gær og fær tíu borg­ar­full­trúa kjörna. Líf segir að Vinstri græn muni veita nýjum meiri­hluta öfl­ugt og mál­efna­legt aðhald og verði ávallt til­búin til sam­starfs um mál sem miða að fram­gangi femín­isma, félags­legs rétt­lætis, umhverf­is­verndar og lofts­lags­að­gerða.

Ljóst er að staðan í borg­inni er snúin og flæk­ist jafn­vel enn þá meira með yfir­lýs­ingu Lífar um að Vinstri græn ætli ekki að taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi.

Viðreisn lýsir yfir vilja til áframhaldandi meirihlutasamstarf

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í borg­inni, gefur hins vegar í skyn í færslu á Facebook að flokkur hennar sé reiðu­bú­inn til að halda áfram í meiri­hluta í borg­ar­stjórn.

Hún segir ljóst að næsta verk­efni í borg­inni verði að mynda starf­hæfan meiri­hluta til að leiða Reykja­vík næstu fjögur árin.

„Ég vona að okkur beri gæfa til að það verði meiri­hluti sem mun áfram leiða Reykja­vík í átt að því að verða meiri borg. Borg þar sem hægt verður að byggja upp lif­andi borg­ar­stemn­ingu í öllum hverfum með skyn­samri þétt­ingu og auk­inni atvinnu og þjón­ustu inn í hverfin. Borg þar sem haldið verður áfram að ein­falda þjón­ustu og færa hana nær borg­ar­búum, þar sem stutt verður við atvinnu­lífið og þar sem haldið verður þétt um rekstur borg­ar­innar. Það eru mál­efnin sem þurfa að ráða för í þessum næsta fas,“ skrifar Þórdís Lóa og bendir á þetta séu þau áherslu­mál sem Viðreisn lagði upp með í nýaf­stað­inni kosn­inga­bar­áttu.

Viðreisn fékk 5,2 pró­sent fylgi og missti einn borg­ar­full­trúa. Þórdís Lóa verður því eini borg­ar­full­trúi Við­reisnar í borg­inni. Hún segir það mikil von­brigði að Pawel Bartoszek hafi ekki náð kjöri. „Hann hefur unnið vel með fólki í öllum flokkum og haldið vel utan um skipu­lags­málin. En hann mun áfram starfa mér við hlið sem vara­borg­ar­full­trúi og við tvö munum áfram vera rödd sam­tals, yfir­veg­unar og frjáls­lyndis í borg­ar­stjórn,“ skrifar Þórdís Lóa.

Hún segir Viðreisn vera öfga­lausan miðju­flokk sem geti unnið bæði til hægri og vinstri „En áherslur okkar virt­ust ekki ná almenni­lega í gegn í síð­ustu vik­unni, þegar bar­áttan um atkvæðin hófst fyrir alvöru. Það breytir því ekki að bar­áttan okkar var jákvæð og skemmti­leg og ég er stolt af henni, “ segir í færslu Þórdísar Lóu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár