Einar ætlar að ræða við baklandið um eina möguleikann í stöðunni

Einar Þor­steins­son oddi­vit Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík segir aðeins einn meiri­hluta mögu­legan í ljósi yfir­lýs­ingar odd­vita Við­reisnar um að ekki komi annað til greina en að virða banda­lagið við Sam­fylk­ing­una og Pírata.

Einar kveðst þurfa að íhuga stöðuna sem upp er komin.
Einar kveðst þurfa að íhuga stöð­una sem upp er komin. Mynd: Bára Huld Beck

Oddviti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík seg­ist ætla að ræða við bak­land sitt um fram­hald myndun meiri­hluta í Reykja­vík í kjöl­far þess að Þórdís Lóa Þór­halss­dóttir, odd­viti Við­reisnar, hafi lýst því yfir að flokk­ur­inn myndi ekki leita annað en í sam­starf með Pírötum og Sam­fylk­ing­unni. Einar segir í sam­tali við mbl.is að þá sé orðið ljóst að aðeins einn mögu­leiki sé á myndun meiri­hluta.

[adspot]Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi reynt að fá annað hvort Viðreisn eða Vinstri græna í sam­starf við Fram­sókn­ar­flokk­inn og Flokk fólks­ins. Nú liggur hins vegar fyrir að slíkt sam­starf er ómögu­legt í ljósi yfir­lýs­ingar odd­vita Við­reisnar, auk þess sem Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, til­kynnti skömmu eftir kosn­ing­arnar að flokk­ur­inn ætl­aði sér ekki í meiri­hluta á þessu kjör­tíma­bili.

[links]„Þá þarf ég að íhuga aðeins stöð­una sem er kom­inn upp. Ég held að ég þurfi að tala við mitt bak­land því að án Viðreisn­ar og VG er ekki hægt að mynda meiri­hluta með Sjálf­stæðis­flokkn­um,“ sagði Einar í sam­tali við mbl.is.

Jafn­framt sagði hann að engar form­legar við­ræður væru í gangi og engir fundir á dag­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár