Vill hefja formlegar meirihlutaviðræður með Framsóknarflokknum

Oddviti Við­reisnar í Reykja­vík segir flokk­inn vera í banda­lagi með Pírötum og Sam­fylk­ingu af heilum hug og vill láta á það reyna með því að hefja form­legar meiri­hluta­við­ræður með Fram­sókn­ar­flokknum.

Þórdís Lóa segir Viðreisn vilji láta á bandalagið reyna með því að hefja formlegar meirihlutaviræður með Framsóknarflokknum.
Þórdís Lóa segir Viðreisn vilji láta á banda­lagið reyna með því að hefja form­legar meiri­hluta­viræður með Fram­sókn­ar­flokknum. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík segir alveg skýrt að flokk­ur­inn sé í banda­lagi með Pírötum og Sam­fylk­ing­unni hvað varðar meiri­hluta­við­ræður í kjöl­far borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sem fram fóru um síð­ustu helgi og að flokk­ur­inn ætli ekki að leita annað.

Í færslu á Facebook segir Þórdís Lóa að auk þess að hafa starfað með flokk­unum und­an­farin fjögur ár sé banda­lagið aug­ljós kostur þegar mál­efna­á­herslur Við­reisnar í kosn­inga­bárátt­unni séu skoð­aðar, sér­stak­lega hvað varðar skipu­lags-, sam­göngu- og lofts­lags­mál.

Þetta verði helstu og mik­il­væg­ustu við­fangs­efni næstu fjög­urra ára og mik­il­vægt sé að vanda þar til verka. Viðreisn vilji láta á banda­lagið reyna með því að hefja form­legar meiri­hluta­viræður með Fram­sókn­ar­flokknum, sem hafi einnig sett Sam­göngusátt­mála og upp­bygg­ingu íbúða á odd­inn. „Með þessum fjórum flokkum næð­ist starf­hæfur og öfl­ugur meiri­hluti að okkar mati.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár