Vilja hækka framlög til dagforeldra um 50 milljónir króna á ári

Viðreisn kynnti stefnu sína fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í dag. Meðal stefnu­mála flokks­ins er að hækka fram­lög til dag­for­eldra og lækka fast­eigna­gjöld á atvinnu­hús­næði.

Viðreisn vill hækka fram­lög til dag­for­eldra um 50 millj­ónir á hverju ári og lækka fast­eigna­gjöld á atvinnu­hús­næði úr 1,65 pró­sent niður í 1,6 pró­sent í tveimur skrefum á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. Þetta kom fram á fundi Við­reisnar þar sem stefnu­mál flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi kosn­ingar voru kynnt.

Með lækkun fast­eigna­gjalda á atvinnu­hús­næði verður Reykja­vík með þriðju lægstu gjöldin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og jafn há gjöld og Kópa­vogur. Þetta mun kosta borg­ar­sjóð 300 millj­ónir.

Það sem meðal ann­ars má finna í stefnu flokks­ins er að þau vilja fjölga ung­barna­deildum og hafa sex leik­skóla opna yfir sum­ar­tím­ann. Viðreisn vill hækka laun kenn­ara um allt að 100 þús­und krónur og ætlar að veita 50 millj­ónum árlega í skóla­þróun.

Þau vilja bæta almenn­ings­sam­göngur og styðja upp­bygg­ingu borg­ar­línu. Á háanna­tíma vilja þau að strætó að gangi á sjö og hálfrar mín­útu fresti á stofn­leiðum en einnig vilja þau fjölga hjóla­stígum. Viðreisn vill finna nýja stað­setn­ingu fyrir inn­an­lands­flug nálægt Reykja­vík en flug­völl­ur­inn verður áfram í Vatns­mýri þar til sú stað­setn­ing verður fundin. Þau vilja stækka gjald­svæði bíla­stæða og lengja gjald­skyldu tím­ann.

Flokk­ur­inn vill einnig selja mal­bik­unar Höfða og greiða upp skuldir tengdar því. Viðreisn gerir ráð fyrir tekjum af gistin­átta­gjaldi og aukna þjón­ustu ætla þau að fjár­magna með upp­færslu á gjald­skrám.

Borgarfulltrúar taka vaktir í símaveri

Viðreisn vill að borg­ar­full­trúar taki vaktir í síma­veri og stefna á að stjórn­sýsla borg­ar­innar verði raf­ræn að fullu. Öllum umsóknum og fylgi­skjölum um bygg­ing­ar­leyfi á að vera hægt að skila raf­rænt og á svar að ber­ast innan 48 klukku­stunda um hvort umsóknin sé gild. Þau vilja stytta bið­tíma og auka gegn­sæi í umsókn­ar­ferli, ekki aðeins í atvinnu­geir­anum heldur fyrir alla þjón­ustu.

Stefna flokks­ins er að veita fleiri styrki til atvinnu­þró­unar og tók Pawel Bartoszek dæmi um að hægt verði að sækja um styrk til að gera upp atvinnu­hús­næði sem hefur staðið autt lengi. Viðreisn hygg­ist veita 30 millj­ónum króna árlega í sam­keppn­is­styrki í atvinnu­þróun yfir þriggja ára tíma­bil, 2019-2021.

Þá vilja þau enn fremur fjölga félags­legum leigu­í­búðum í Reykja­vík um 350 og sér­tækum íbúðum fyrir fatl­aða um hund­rað á kjör­tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár