Ellefu framboðslistar samþykktir í Reykjavík

Ellefu fram­boðs­listar bár­ust fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík sem fram fara í næsta mán­uði og voru öll fram­boðin úrskurðuð gild af yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur í hádeg­inu í dag.

Samkvæmt fyrstu kosningaspá Kjarnans og Dr. Baldurs Héðinssonar heldur borgarmeirihlutinn með 49,8 prósent atkvæða.
Samkvæmt fyrstu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar heldur borg­ar­meiri­hlut­inn með 49,8 pró­sent atkvæða. Mynd: Bára Huld Beck

Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara 14. maí næst­kom­andi munu kjós­endur geta valið á milli ell­efu lista. Skila­frestur var til hádegis í gær, föstu­dag, og bár­ust kjör­stjórn alls ell­efu fram­boðs­listar og voru þeir allir sam­þykktir, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

[links]Um er að ræða tals­vert færri fram­boðs­lista en í kosn­ing­unum 2018, þegar þeir voru 16. Tveir listar hafa ekki boðið fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum áður, en það eru E-listi Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar og Y-listi Ábyrgrar fram­tíðar. Oddvitar þeirra eru Gunnar H. Gunn­ars­son fyrir E-lista og Jóhannes Loftsson fyrir Y-Lista, en sá síð­ar­nefndi stofn­aði flokk­inn Ábyrga fram­tíð fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra, þar sem flokk­ur­inn bauð fram í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og lutu stefnu­mál hans helst að efa­semdum tengdum kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og gagn­semi bólu­setn­inga. Flokk­ur­inn hlaut aðeins 0,1% atkvæða.

[adspot]Samkvæmt fyrstu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar heldur borg­ar­meiri­hlut­inn með 49,8 pró­sent atkvæða, sem myndi skila honum tólf borg­ar­full­trúum.

Eftirfarandi listar bjóða fram í Reykjavík:

B-listi Fram­sókn­ar­flokks­ins

C-listi Við­reisnar

D-listi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

E-listi Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar

F-listi Flokks fólks­ins

J-listi Sós­í­alista­flokks Íslands

M-listi Mið­flokks­ins

P-listi Pírata

S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar

V-listi Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs

Y-listi Ábyrgrar fram­tíðar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár