Saka Ríkisútvarpið um að draga dár að framboði Reykjavíkur, bestu borgarinnar

Umboðs­menn E-lista Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar, hafa farið þess á leit að Fjöl­miðla­nefnd og Per­sónu­vernd skoði umfjöllun Rík­is­út­varps­ins um afhend­ingu list­ans á fram­boðs­gögnum í kvöld­fréttum í gær.

Um var að ræða umfjöllun Ríkisútvarpsins um skil framboðsgagna fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Um var að ræða umfjöllun Rík­is­út­varps­ins um skil fram­boðs­gagna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Mynd: Bára Huld Beck

Umboðs­menn E-lista Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar, sem býður fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í næsta mán­uði, gerir athuga­semd við umfjöllun Rík­is­út­varps­ins um afhend­ingu á fram­boðs­gögnum í borg­ar­ráðs­sal Ráðhúss Reykja­víkur í kvöld­fréttum sjón­varps í gær­kvöldi, 7. apríl.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá list­anum, sem hefur farið þess á leit að bæði Fjöl­miðla­nefnd og Per­sónu­vernd taki málið til skoð­unar.

Um var að ræða umfjöllun Rík­is­út­varps­ins um skil fram­boðs­gagna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Skila­frestur var í hádeg­inu í gær og sýndi kvöld­frétta­tími frá lít­ils­háttar vand­ræðum sem umboðs­menn E-list­ans áttu við að hafa uppi á ákveðnum fram­boðs­gögnum innan um auka­gögn í stórum blaða­bunka. Var meðal ann­ars sýnt frá sím­tölum milli for­svars­manna flokks­ins og tók sýn­ingin frá vand­ræðum þessum í rúm­lega tvær mín­útur af kvöld­frétta­tím­anum.

[links]Í til­kynn­ingu list­ans segir að umfjöll­un­inni virð­ist ætlað að draga dár að fram­boði list­ans og umboðs­mönnum þess og hafa beri í huga að fram­boð, og sér­stak­lega ný fram­boð, séu við­kvæm í þeirri stuttu og erf­iðu veg­ferð sem fram undan er til kosn­inga 14. maí.

„Það er mat fram­boðs­ins að umfjöllun RUV sé til þess fallin að brengla lýð­ræð­is­legt ferli strax í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unnar.“

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna máls­ins sagði Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins, að frétta­maður þess hafi fengið leyfi þeirra sem voru á staðnum til að nota efnið, bæði full­trúa kjör­stjórnar og fram­boðs­ins. Að því sögðu væri þeim frjálst að kvarta og kvörtunin færi þá sína leið í kerf­inu. Spurður um lengd klipp­unnar sagði Heiðar Örn að hún hafi sagt sögu og þess vegna fengið að vera svo löng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár