Stórsigur Vina Kópavogs í takti við könnun sem framboðið lét framkvæma

Þegar félagið Vinir Kópavogs var að ákveða hvort það ætti að bjóða fram í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum eða ekki lét það gera könnun, sem sýndi að rúm 17 pró­sent bæj­ar­búa gætu hugsað sér að kjósa sér­fram­boð félags­ins – sama fylgi og sést í fyrstu tölum.

Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipulagsmál í Kópavogi og eru með 17,2 prósent eftir fyrstu tölur úr bænum.
Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipu­lags­mál í Kópavogi og eru með 17,2 pró­sent eftir fyrstu tölur úr bænum. Mynd: Kópavogur

Íbúa­hóp­ur­inn Vinir Kópavogs virð­ast ætla að vinna mik­inn sigur í kosn­ingum til bæj­ar­stjórnar í Kópavogi, en sam­kvæmt fyrstu tölum úr bænum er fram­boðið með 17,2 pró­sent fylgi og ein­ungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærri.

Þetta eru miklar vend­ingar en ef til vill var þetta nið­ur­staðan sem búast mátti við, miðað við skoð­ana­könnun sem félagið lét gera fyrir sig á meðal bæj­ar­búa í aðdrag­anda þess að það ákvað að taka þátt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum.

Nið­ur­stöður hennar voru þær að rúm 17 pró­sent Kópa­vogs­búa teldu lík­legt að þeir myndu íhuga að kjósa sér­fram­boð undir nafni Vina Kópavogs í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum.

Kjarninn sagði frá þeirri könnun í febr­ú­ar­mán­uði, en þá var íbúa­hóp­ur­inn ekki búinn að taka ákvörðun um að bjóða fram. Útkoman í Kópavogi sam­kvæmt fyrstu tölum er þannig í sam­ræmi við bestu mögu­legu nið­ur­stöð­una sem hægt hefði verið að lesa út úr könnun fram­boðs­ins.

Á fundi sem félagið hélt í Smáranum um miðjan febr­úar kom fram til­laga um að bjóða fram undir hatti Mið­flokks­ins, en hún var felld einum rómi og var það afstaða fund­ar­manna að ef félagið færi fram yrði það óháð flokkspóli­tískum línum.

Hópur íbúa sem eru óánægðir með skipulagsmál

Félagið Vinir Kópavogs er sprottið upp úr óánægju hóps bæj­ar­búa með skipu­lags­mál í bænum, ekki síst upp­bygg­ingu þéttrar íbúa­byggðar við Hamra­borg og á Kársnesi.

[adspot]

Í könn­un­inni frá því í febr­úar, sem félagið lét Gallup fram­kvæma, var einnig spurt um hvernig bæj­ar­búum lit­ist á nýtt mið­bæj­ar­skipu­lag Kópa­vogs­bæjar.

Var nið­ur­staðan á þá leið að tæp 38 pró­sent sögðu að þeim lit­ist illa á áform­in, en rúmum 34 pró­sentum vel. 28 pró­sent sögð­ust hlut­laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár